Tíminn - 07.08.1977, Page 8
8
Sunnudagur 7. ágúst 1977
[t[\{ H ll
í þættinum 11. júni sl. var birt
óþekkt mynd af fólki við úti-
vinnu. Upplýsingar hafa nú bor-
izt úr fleiri en einni átt og er
myndin birt aftur. Fólkið er að
mótekju i Grafarholti Mosfells-
sveit. Fremst til vinstri er Björn
Birnir bóndi i Grafarholti, með
skóflu sina og hund, skozkan, en
næstur honum er vinnumaður
hans, Guðjón Júliusson, kunnur
hlaupari og siðar bilstjóri i
Reykjavik. Lengst til hægri
(skeggjaður með hettu) er
Sigurður Einarsson, fyrrum
bóndi á Reynisvatni, fóstri Guð-
jóns. Bak við til hægri er Guð-
rún Björnsdóttir, systir Björns
og þar næst Helga Björnsdóttir,
lengi búandi i Hulduhólum.
Drengurinn með hvita hárið er
Guðmundur Elliðason, uppeld-
isbróðir systkinanna i Grafar-
holti, en drengurinn með sjó-
hattinn er Björn, sonur
Steindórs Björnssonar frá Gröf.
„Guðmundur er einn eftirlif-
andi af þessu blessaða samvist-
arfólki minu”, skrifar Guðjón
Ólafsson Stóra-Hofi 13/6 1977.
Hestarnir hétu Stóri-Rauður og
Dálkur (sem snýr undan) —
Myndin er tekin um 1920.
Utanfarir tiðkast nú mjög og
ber margt fyrir augu, en liklega
hefur enginn orðið sjónarvottur
að einkennilegum gömlum
bónorðssið, langt suður og aust-
ur i löndum. — Sjá mynd — Bið-
illinn fær hinni útvöldu vatns-
krukku. Ef hún tekur krukkuna
og sækir i hana vatn handa
yngissveininum, þýðir það að
hún tekur bónorði hans...
Litum snöggvast til Noregs —
og þar á byggðasafn (Bygde-
tun) i Hamarey. Við sjáum
reisulegan kaupmannsgarð,
prýddan tréskrauti og stafbúr,
sem hvilir á stoðum, til varnar
rottum, músum o.fl. Á annarri
mynd sést gamalt bjálkahús,
rammlega viðað. 1 þessu húsi
var banki — Kvam Privatbank
— á árunum 1862-1875. Skyldu
bjálkahús vesturfaranna is-
lenzku fyrir aldamótin, ekki
hafa verið svipuð þessum
norsku? Nógur var skógviður-
inn i Kanada og Bandarikjun-
um. Vandaðri hús koma seinna.
Ingólfur Davíðsson:
183
Byggt og búið
í gamla daga