Tíminn - 07.08.1977, Page 36

Tíminn - 07.08.1977, Page 36
36 Sunnudagur 7. ágúst 1977 Þegar Fredrick Lundell kom heim Ur vinnunni aö kvöldi 10. desember sl., tók hann eftir aö kona hans, Rose var i uppnámi. En þar sem synir hans tveir voru setztir i fang hans, sagöi hann ekkert þá stundina. Hann beiö þar til drengirnir voru komnir i háttinn og spuröi þá konu sfna, hvaö þjakaöi hana. — Þaö er George, svaraöi hún. —Fyrir tveimurdögum fór hann aö spyrja eftir hundinum sinumog sumum leikföngunum. Ég reyndi aö eyöa þvi og sagöi þér þaö ekki, af þvi aö ég var aö reyna aö komast til botns i þessu sjálf. Nú verö ég aö segja þér, að þaö er eitthvaö undar- legt að gerast. — Hann á engan hund, sagöi Fredrick Lundell og hrukkaöi ennið. — Hann hefur aldrei átt hund. Eftir hvaöa leikföngum spuröi hann? — Hlaupahjólinu og þrihjól- inu, svaraöi frú Lundell. — En hann spuröi ekki bara eftir hundinum, hann spuröi eftir Spot! Lundell horföi rannsakandi á konu sina og svipur hans varð alvarlegur. — Hefuröu nokkurn tima sagt honum frá Gregory? spurði hann. — Hefurðu sagt nokkuð, sem gæti gefiö honum upplýsingar um Gregory? — Nei, svaraði kona hans. — Vib komum okkur saman um það, þegar börnin fæddust eftir að Gregory dó, að segja þeim þaö ekki, fyrr en þau væru orðin vel stálpuö! George veit ekkert um Gregory. Hann hefur aldrei séð mynd af honum eöa hundin- um, hann veitekki einu sinni, aö þeir hafi verið til. — En nágrannarnireöa önnur börn, byrjaöi Lundell, en þagn- aöi. — Auövitaö veit enginn hér neitt um okkur, svo enginn hef- ur getaö sagt George neitt. Ég skal sjálfur tala viö George og reyna að komast aö þvi, hvernig i málinu liggur. Hann er ekki sofnaður ennþá. Ég fer upp til hans. Undarlegt minni George Henri Lundell var fjögurra ára og tveggja mánaða þetta desemberkvöld, þegar faöir hans gekk upp i svefnher- bergið sem hann deildi meö litla bróöur sinum, Charies Herbert. Drengurinn var vakandi ennþá og lá og gældi viö bangsann, sem hann tók alltaf meö sér i rúmið. Lundell dró fram stói og sett- ist við rúmiö hjá eldri syni sin- um og sagði: — Hvað veizt þú um Spot?, George? — Nú, hann var hundurinn minn. Hvaö varö af honum, pabbi? Hvers vegna fæ ég aldrei aö sjá hann? Hver tók hann frá mér? — Hvernig leit hann út, George? Manstu, hvernig hann var á litinn? spurði Lundell og áhyggjur hans jukust. Drengurinn hrukkaöi enniö og sagði: — Eins og venjulegur hundur, hann var loöinn og var meö stóran, hvitan blett á enn- inu og viö köUMÖum hann Spot (ensktorö, sem þýðir Flekkur). — En hvað um leikföngin, •^essi sem þú varst að spyrja mömmu eftir? Hvaö var þaö, sem þig vantaöi? — Græna þrihjólið og rauöa hlaupahjólið. Hvar eru þau pabbi? Gafstu einhverjum þau? Mig langar aö fá þau. Get ég ekki fengiö þau aftur, æ gerðu þaö, pabbi. Þungar áhyggjur Lundell stóö upp og sagöi: — Faröu nú aö sofa, George og svo skulum viö tala um þaö á morg- un. Hann breiddi vel ofan á drenginn og yfirgaf herbergið með þungar áhyggjur, þar eö hann vissi, aö þaö var ekki George litli sem man slysiö er varö bróður hans aö bana. Þaö geröist áöur en George fæddist, og enginn hefur minnzt á neitt viö hann. nokkur möguleiki á að sonur hans vissi um hundinn eöa hjól- in, sem hann lýsti svo vel. Aö- eins hann sjálfur eða kona hans hefðu getað sagt drengnum frá þessum hlutum, en hvorugt þeirra hafði gert þaö. Lundell, sem var 32 ára, og Rose kona hans, þritug, höföu oröið fyrir þungri sorg i júli 1969. Þá höfðu þau verið gift i rúm sex ár og áttu einn son, Gregory, sem var nýlega fimm ára. Gregory var augasteinn föður sins og þó Lundell-hjónin langaöi til að eignast fleiri börn, ætluöu þau að biða um tfma, þar til þau hefðu ráö á að kaupa sér hús. Um þær mundir bjuggu þau á leigubýli i útjaöri Oakland i Kaliforniu og söfnuöu i ákafa fyrir draumahúsinu sinu i nýju hverfi. Bæöi «nnu utan heimilis, hún á lögfræöiskrifstofu og hann á Spsteignasölu. Fjölskylduvin- ur gætti sonarins, á meöan þau voru i vinnunni. Hinn örlagarika dag áriöl969hafði dagmamman, frú May Forrester, 37 ára, fariö með drenginn og hundinn, á- samt sjö ára syni sinum i al- menningsgarö í grendinni svo þeir gætu leikið sér. Harmleikur Þegar frú Forrester yfirgaf garöinn, þurfti hún að fara yfir fjölfarna götu: Hún leiddi venju- lega drengina, en Gregory Lundell var akandi á þríhjólinu sinu þennan daginn, og hundur- inn skokkaöi viö hlib hans. Hann Rose og Frederick Lundell meö syni sina tvo. George (t.h.) hefur vakiö undrun margra. Hann viröist hreinlega hafa erft minni bróöur sfns látins brunaði skyndilega út á götuna, áöur en hún gat rönd viö reist. Hundurinn hljóp á eftir. Það iskraöi ákaflega i hemlum, þeg- ar tveir bílar reyndu aö foröast þaö aö aka á barnið. Annar þeirra skall á drengnum og sfð- an á hinum bilnum, og báöir bi'larnirrákust Svo aftur á hund- inn og drenginn. Bæöi drengurinn og hundur- inn létu lifið á stundinni og frú Forrester og presturinn i sókn- inni þurftu aö segja Lundell hjónunum sorgarfréttina. Þau voru óhuggandi. Þau tóku illa farið þrihjóliö, hlaupahjólið og önnur leikföng drengsins og settu upp á loft, tóku myndirnar af honum úr albúminu og geymdu á afviknum staö og reyndu að komast yfirsorg sina. 1 apríl 1971, þegar frú Lundell átti á ný von á barni, reyndist þeim hjónunum loks unnt aö kaupa draumahúsið sitt og flytja þangað i nýtt umhverfi. Þau tóku með sér leikföng látna sonarins og settu Igeymsluna uppi á lofti i nýja húsinu. Frú Lundell eignaöist annan son. Hjónin komu sér saman um aö segja honum ekki frá eldri bróöur sinum fyrr en um fermingaraldur, eða þegar hann væri nógu gamall til að skilja þaö. Engin sérstök ástæða til þagnar — Viö höföum enga sérstaka ástæöu til að segja George ekki frá dauða bróður síns sagði Lundell i marz sl. — Viö komum okkur bara saman um aö geyma þaö þangað til hann skildi þaö. Frá þvi hann fæddist og til þess dags, hefur honum ekki veriö sagt eitt orö um Gregory. En nú höföu Lundell-hjónin fengið þungar áhyggjur af George. Hvernig gat hann vitað um hundinn, þegar enginn haföi sagt honum neitt um hann? Hvernig gat hann vitað um þri- hjóliö eöa hlaupahjólið eöa hin leikföngin sem bróöir hans haföi áttog höföu veriö geymd uppi á lofti og hann haföi aldrei séð? Hvernig gat drengurinn vitað þetta, þar sem hann komst ekki með nokkru móti upp á loftið og nýju nágrannarnir vissu ekkert um slysiö? Svo virtist, þegar drengurinn var spuröur, sem hann vissi heilmikið um hinn látna bróöur sinn. Þegar hann var spurður um þrihjóliö sagöist hann haf:a gaman af aö hjóla i garðinum, þvi þar væri fiskatjöm. Þannig var það i garðinum, þar sem Gregory haföi veriö vanur aö leika sér, en þangaö haföi George aldrei komiö! Janúarnótt eina i vetur tók George aö æþa. Þegar foreldrar hans þutu inn i herbergið sat hann uppi i rúminu. Hann var rennsveittur og hræddur og hrópaði að bill væri að aka á hann. Hann hrópaði: — Ekki Dag einn spurði George UtH eftir Spot, hundinum sínum, þríhjólinu sínu og hlaupahjólinu. En hann hafði aldrei átt neitt af þessu. Bróðir hans, sem lézt, áður en George fæddist, hafði átt það. Hundurinn Spot var dauður. Enginn hafði nokkurn tíma minnzt á neitt af þessu við George...... Erfði hann minni bróður 9 i * 4

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.