Tíminn - 07.09.1977, Side 7
Miðvikudagur 7. september 1977
7
Libby á leið i mat.
Osæmilegt á
afmælisári
Svolitið uppnám hefur orðið við ensku hirðina á þessu
blessuðu afmælisári út af fallegri mynd af fallegri stúlku,
Karen Jo Pini, 21 árs gamalli Ungfrú Astraliu. Ekki var
það reyndar myndin sjálf, sem uppnáminu olli, heldur sú
staðreynd að ljósmyndarinn er náfrændi Elisabetar
drottningar, Patrick Lichtfield að nafni og lávarður að
nafnbót. Hann er atvinnuljósmyndari og hefur verið lengi,
en hefur ekki áður fengizt við að taka myndir af nöktu
kvenfólki. Þótti hirðsiðameisturum sérlega illa til fundið
að taka upp á þessu á hátiðisárinu mikla, þegar drottning
heldur hátiðlegt 25 ára rikisstjórnarafmæli sitt. Arið 1977
hefur verið samfelld hátið i Bretlandi. Eitt uppátæki er
það, að stúlkubörn sem fæðzt hafa á árinu, hafa unnvörp-
um hlotið nafnið Jubilee (afmælishátið). Nú hefur glögg-
skyggn kona bent á það að þetta geti átt eftir að gera þess-
um stúlkubörnum erfitt fyrir, þegar að þvi kemur að þær
vildu gjarnan fara aðeins að hagræða aldri sinum, þá fel-
ist fæðingarárið hreinlega i nafni þeirra!
Það er ekki að undra þó að honum Libby þyki
gott að fara i bað, hann er nú einu sinni flóðhest-
ur.
Tíma-
spurningin
Hefurðu komið á heim-
ilissýninguna?
Arndis Jósepsdóttir, afgreiðslu-
stúika: Nei ég hef ekki farið -
ennþá. Ég hef þó heyrt vel af sýn-
ingunni látið og ætli maður drifi
sig ekki.
Kristin Guðbrandsdóttir,
húsmóðir: Búin að fara og likaði
ljómandi vel. Svona sýningar
hjálpa manni til að fylgjast með
og gefa góðar hugmyndir.
Maria Sigurlaugsdóttir, vinnur á
ljósmyndastofu: Ég hef ekki farið
á sýninguna og er ekki enn búin
að ákveða, hvort ég fer á hana.
Sigurbjörn Asgeirsson, múrari:
Nei, ekki ennþá, en ég er eigin-
lega á leiðinni. Ég ætla að fara
siðar i dag. Svona sýningar eru
mjög hjálplegar t.d. þeim sem
eru að byggja.
Þorgrimur Eyjólfsson, fyrrv.
framkvæmdastj: Nei, ég er ekki
búinn að sjá hana, þvi miður.
Maður á það ef til vill eftir.