Tíminn - 10.09.1977, Blaðsíða 1
Fyrir
vörubila
Sturtu-
grindur
Sturtu
dælur
Sturtu-
drif
Eiturgufu hefur orðið
vart í Bjarnarflagi
Eftir hádegi i gær var settur
lögregluvörður i Bjarnarflagi,
en hætta var talin á eiturgufum
úr einni holunni. Menn sem fóru
um svæðið i gærmorgun urðu
hálfvankaðir eftir að hafa farið
þar um. Að sögn Jóns Illugason-
ar, þá ætluðu jarðfræðingar að
efnagreina gufuna i gær, en
Timanum tókst ekki að ná sam-
bandi við neinn þeirra i gær-
kvöldi til að fá niðurstöður
rannsóknanna. Samkvæmt upp-
lýsingum jarðvisindamanna
varð gos i holu fjögur f Bjarnar-
flagi i fyrrakvöld, en áður var
taliö að kviknað hefði i eldfim-
um gasefnum. Gufan brýtzt út
óbeisluð gegnum rör yfir hol-
unni og hefur étið sér leiö gegn-
um þaö.Mikil þrýstingsaukning
varð á svæðinu feldsumbrotun-
um i fyrrakvöld og nótt, en slikt
hið sama gerðist i aprfl sfðast
liðnum. ÖIl hætta er hinsvegar
talin liðin hjá, þó svo enn eigi
sér stað gliðnun i sprungum á
öllu svæðinu.
Þó svo að hraunið sjálft hafi
ekki valdið neinum skemmdum
á mannvirkjum, þá hafa um-
brotin sem fylgdu eldsum-
brotunum skilið eftir sig miklar
skemmdir. Þannig skemmdust
tvær af þróm Kisiliðjunnar og
verður verksmiöjan óstarfhæf
um tima. Hús Léttsteypunnar,
sem er skammt frá Kisiliðjunni,
varð einnig fyrir skemmdum og
ekkert gufustreymi er til verk-
smiðjunnar eins og stendur.
Simastrengir og raflinur urðu
einnig fyrir skemmdum.
— Þetta viröist vera aö ganga
hjá, sagði Páll Einarsson jarð-
eðlisfræðingur i samtali við
Timann i gærkveldi. — Þaö er
smámsaman aö hægja á öllum
hreyfingum og landsigiö er að
mestu búið. Einnig eru jarö-
skjálftarnir á undanhaldi. Þessi
umbrot eru talsvert meiri en
þau sem voru I april, sprungu-
hreyfingar eru minni og sama
máli gegnir með landsig. Það er
i sjálfu sér ekki hægt að draga
neinar ályktanir af þessu ein-
staka gosi, þvi það er bara einn
viðburður af mörgum. En ef
landris heldur áfram eins og aö
undanförnu, hlýtur það aö enda
með þvi að eitthvað meira af
hrauni komi uppá yfirborðið.en
hvelengi landrisiðheldur áfram
getur enginn sagt neitt um.
— Við höfum verið að vinna
við hitaveituna og hófst undir-
búningur strax I morgun. Þaö er
ljóst að húsin i Voga- og Reykja-
hliðarhverfi verða án heits
vatns næstu daga, sagði Jón
Illugason oddviti i Skútustaöa-
hreppi. — En það er ekki á
hreinu hvort við getum leyst
vandamálið með bráðabirgða-
lögn, á þaö er ekki enn komin
endanleg niðurstaða. Hitaveitu-
leiðslan er mjög illa farin á um
kilómetra kafla og það er ljóst
að mikið verk er að gera við
hana. Eins og stendur er mjög
gott veður i Mývatnssveit og
það bjargar miklu.
Jón sagði að starfsmenn raf-
magnsveitnanna væru komnir á
vettvang til aö gera við línur en
ekki munu þ ær þó vera kom nar i
sundur. Hinsvegar var orðið
mjög strekkt á þeim. Viðgerö
stendur yfir á veginum þar sem
hann fór verst, en í hann komu
sprungur og misgengi. I Náma-
fjalli, til dæmis er misgengi 20
m. langt, mannhæöar hátt eftir
veginum endilöngum. Vegurinn
mjókkaði til muna og var að
lokum rétt rúmlega bilbreidd.
Ennfremur komu sprungur i
veginn á móts við Kfsiliöjuna.
— Yfirleitt tóku menn þessum
atburðum með æðruleysi en
nokkrar fjölskyldur fóru af
staönum i gærkveldi, sagöi Jón,
— Þá var eitthvaö um að börn
væru flutt burtu. Hinsvegar brá
mönnum æöi mikið þegar grun-
ur lék á að gos væri hafið i
Bjarnarflagi.
Gosinu.sem hófst viö Kröflu I fyrrakvöld, lauk jafn snögglega og það byrjaöi. Hraunið sem kom upp er fremur lftiö vöxtum, rétt um tveir
ferkilómetrar, og mjög gljúpt. Timamenn heimsóttu Kröflusvæöiö f gær og lituöust um á umbrotasvæðinu. Myndir: Gunnar.Texti: áþ.
Kísilgúr-
verksmiðjan:
Meiri
skemmd-
ir en
áður
— Mesta skemmdin varö á
einni þrónni, en einnig skeinmdist
verksmiðjan og skrifstofuhús-
næöiö. Þá fóru vatns-, gufu- og
rafmagnsleiöslur, sagöi Þor-
steinn Ólafsson framkvæmda-
stjóri f saintali viö Tlmann. — En
I vor hvarf vatniö, hins vegar
hélzt annaö nokkuö i skoröum i
þeim náttúruhamförum.
1 Kisilgúrverksmiðjunni eru
þrjár þrær sem eru um 100x120
metrar að stærð. 1 vor skemmd-
ust tvær þeirra allverulega. Við-
gerðá annarri varnýlokið.en hún
bilaði aftur i fyrradag. Viögerö á
þeirri siöari var ekki lokið, svo aö
þótt komið hafi ný sprunga i
gegnum hana núna, kemur það
ekki að sök. Þorsteinn sagði að þó
nokkuö mikið magnaf Kísilgúr
hefði runnið niður er nýja sprung-
an myndaðist, en mikið var eftir
af kisilgúr sem hafði náö aö setj-
ast. Nýting á þvi sem eftir situr,
er háð þvi að hægt sé að gera við
þróna. Sú þróin, sem hélt nú, er
hin sama og stóðst jarð-
hræringarnar i vor.
Þær skemmdir sem urðu á
skrifstofubyggingunni núna eru
yfirleitt á sömu stöðum og i vor,
en bara meiri, og sagði Þorsteinn.
— Það á hins vegar eftir að meta
þær. Framleiösla verksmiðjunn-
ar fellur niður núna um tima
meðan viö erum að athuga þaö
sem gerzt hefur, en eftir að
prófanir hafa veriö gerðar á vél-
um og búnaöi sé ég ekkert þvi til
fyrirstöðu að hefja vinnu á ný.
Þrærnar taka 250 þúsund rúm-
metra samtals, og sagöi Þor-
steinn að gúrinn sem hefði tapazt,
væri varla umtalsveröur. En
hann tók fram að af þessum 250
Framhald á bls. 4.