Tíminn - 10.09.1977, Side 7
Laugardagur 10. september 1977
7
Kvikmyndin
um Liz og
Tomasis
Jacqueline Kennedy
Onassis er mikil blessuð
kona. Hún er rik, og hún er
duttlungafull og eyðslusöm
og þar af leiðandi er hún
lika stórfræg. Kringum
hana gerast hálfgildis
hneykslismál, og undir-
strikun þess, hversu merki-
leg manneskja hún er.
Nú er lika á döfinni kvik-
mynd á eynni Korfú, og hún
fjallar um griskan stórút-
gerðarmann, sem giftist
ekkju bandarisks forseta.
Kvikmyndagerðarmennirn-
ir neita þvi að visu harð-
lega, að þessi mynd fjalli
um ónassis og kvinnu hans,
enda þótt það sé siglt harla
nærri lifi þeirra og leik-
konan, sem fer með hlut-
verk ekkjunnar, sé næsta
snoðlik Jacqueline og
klæðist þar á ofan nokkurn
veginn eins og hún.
Aftur á móti eru nöfnin
önnur, þvi að útgerðar-
maðurinn heitir Theo
Tómasis og kvenpersónan
Liz Cassidy. Myndin hefst á
þvi að stórútgerðarmaður-
inn hittir konu bandarisks
þingmanns og duflar við
hana lukkulega, unz þing-
maðurinn gerist forseti og
frúin stigur fram á sviðið
sem fremsta kona Banda-
rikjanna, og verður fyrir þá
upphefð að þoka Grikkjan-
um til hliðar.
En siðan ber það svo til
(óvænt atriði?), að forsetinn
er myrtur, og forsetafrúin
verður vitaskuld afarrauna-
mædd andspænis svo geig-
vænlegum atriðum. En það
er lán i óláni að Grikkinn
lifir og er óskaplega rikur,
og hann kemur og huggar
hana blessunarlega, og hún
leitar innan tiðar athvafs á
eynni hans, þar sem allt er
af gulli gert og filabeini.
Snekkjan góða kemur við
sögu, en þess þó ekki getið,
að áklæðið á skinnstólunum
sé af limum hvala úr stöð-
inni undir Þyrilsklifi. En öll
dýrðin hjaðnar, þegar sonur
útgerðarmannsins ferst i
flugslysi, og honum finnst
allt autt og tómt og dautt i
kringum sig, þrátt fyrir
konuna ágætu og öll auð-
æfin.
Skjaldbakan aftur! s; Siggi, þvi
Hvers vegna ætli'' lengursem:
hún hafi sigli hér um
_bjargaö 4'þvi furöulegri hluti |
Lstráknum? ’ )rek é8 m‘S é
Slepptu þessu
Biddu rétt,
ein,... tvær,
. þrjár,;
fjórar... 5
Gleymdu {
spurningunni
Tíma-
spurningin
— Er komin ofþensl a i
skólakerfið?
Kristján Krist jánsson, af-
greiöslumaður:
Mér finnst þaö vera svo.
Stendur ekki einhvers staöar, ekki
veröur bókvitiö i askana látiö —.
Bókiega kennslan er oröin of
viöamikil. Þaö mætti vera meira
um verklega kennslu.
Bjarni Bjarnason, rafvirki:
Nei, þaö finnst mér ekki. Þetta
er rétt þróun.
Páll Hannesson verkfræöingur:
Já, mikil ósköp. Þetta er oröiö
forkastanlegt. Námsefniö er of
litiö miöaö viö námstimann. Ég
vil taka upp kinverskt skólakerfi.
Óskar Halldórsson, forstjóri:
Já, mér finnst vera oröin of
mikil breidd i þvi. Þaö þarf aö
marka skólakerfiö i ákveönari
rásir. Þaö er oröiö of laust i
reipunum.
Emil Hjartarson, forstjóri:
Þaö ber meira á þvi aö þaö er
vanskapaö heldur en aö þaö sé of-
vaxiö.