Tíminn - 14.09.1977, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 14. september 1977.
3
909 metra langt
haf yfir Botnsvog
áþ-Reykjavik—Fyrsta desember
er gert ráb fyrir ab hleypt verbi
rafmagni á linuna, sem veita mun
verksmiöjunni á Grundartanga
orku. A einum stað verður linan
lögð yfir Hvalfjörðinn, nánar til-
tekiö yfir Botnsvog, úr MUlahorni
yfir i Þyrilsnes. Hafiö sem mun
vera eitt hið lengsta sinnar gerð-
arhér á landi er 909 metrar. Sitt
hvoru megin eru 60 metrar há
möstur.
Til að byrja með verður linan'
rekin á 132 kilóvatta spennu, og á
hún að geta flutt með því allt að 50
megavött. Þegar starfræksla
málmblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga hefst, verður
spennan aukin i 220 kilóvött, og
mun hún þá geta flutt 250 til 300
megavött. Framkvæmd þessier á
vegum Landsvirkjunar, en hún er
einnig aö byggja, l samvinnu við
RARIK tengivirki á Brennimel l
Hvalfiröi. Þar greinist linan, og
fer þaðan strengur til málm-
blendiverksmiðjunnar og f tengi-
virkið kemur byggöalinan marg-
umtalaða. Aætlaður kostnaður
við byggingu linunnar frá Geit-
hálsi að málmblendiverksmiðj-
unni er um það bil einn miUjarð-
ur.
— Þegar byggðallnan kemur
fæst rafmagn um hana frá Anda-
kilsárvirkjun, sagði Agnar Ólsen
hjá Landsvirkjun i samtali við
Timann. — Þá verður hægt að
dreifa rafmagninu til Akraness
og inn ströndina. Það verður á-
reiðanlega gert I framtiðinni
verbi orkuskortur á svæðinu.
Kolmunnaveiðar
gefa góöa raun
— rannsaka þarf betur áhrif
hitabreytinga sjávar
KEJ — ReykjavJk. 1 gærdag kom
skuttogarinn Runólfur með 70-80
lestir af kolmunna til N jarðvikur,
og fer aflinn til vinnslu I Garöin-
um. Togarinn hefur verið viö Kol-
munnaleit á hafsvæðinu vestur af
iandinu á vegum Hafrannsókna-
stofnunarinnar, og fékkst megnið
af þessum afla á Dohrmbanka,
tslandsmegin við miðlinuna.
Þessi veiðiferö lofar mjög góðu
um framhaldiö.
Kolmunninn var mjög stór
þarna, oft 40-42 cm að lengd, en
kolmunninn, sem veiðzt hefur
fyrir austan land, er kynþroska
yfirleitt ekki nema 29-31 cm að
lengd. Þá koma fram við rann-
sóknirnar, að hita stig sjávar hefur
mikið að segja og auövelt að ná
kolmunnanum þegar botnhiti er
þetta 3 1/2 — 4 1/2 stig, en þegar
kaldara er hækkar fiskurinn sig I
sjónum og erfiðara er um vik aö
ná honum. Ljóst er, að rannsaka
þarf betur áhrif hitabreytinganna
og kanna hvenær á árinu bezt er
að veiða kolmunnann, en rann-
sóknir nú vestur af landinu gefa
strax betri raun en sambærilegar
rannsóknir út af Austurlandi. Þó
er hér aðeins um byrjunarrann-
sóknir að ræða, og þvi ekki hægt
enn sem komið er að slá neinu
föstu.
Alþýðusamband Norðurlands:
Fleiri orlofshús
að Illugastöðum
'AÞ Reykjavík. Að Iilugastöðum
i Suður-Þingeyjarsýslu hefur um
árabil verið rekið orlofsheimili á
vegum verkalýðsfélaga. Alþýöu-
samband Norðurlands á jörðina
Illugastaöi, en orlofshúsin, sem
nú eru 19 að tölu eru I eigu ýmissa
verkalýðsfélaga. Húsin hafa að
jafnaöi verið fullnýtt yfir sumar-
timann.ognotkun þeirra haust og
vor hefur farið vaxandi.
Alþýðusamband Norðurlands
hefur nú ákveöið að gangast fyrir
byggingu fleiri húsa, sem reist
verða i námunda við hin sem fyrir
eru. Útboð varðandi byggingu
þeirra hefir þegar farið fram og
munu framkvæmdir hefjast nú i
haust, og stefnt að þvi að nokkur
húsanna verði tilbúin til afhend-
ingar fyrst næsta sumar. Ný]u
húsin eru smfðuð eftir sömu
teikningu og þau sem fyrir eru, en
reynslan af þeim eru mjög góð.
1 kjallara eins hússins er starf-
rækt verzlun þar sem fást öll
helztu matvæli og aörar nauð-
synjar.
HLUTAFE SAMVINNU-
BANKANS AUKIÐ UM
300 MILLJÓNIR KR.
áþ-Reykjavik Þegar hafa hlut-
hafar Samvinnubankans notað
sér forkaupsrétt sinn á hiutabréf-
um og keypt hlutabréf fyrir rúm-
lega 200 milljónir en samþykkt
var á siðasta aðalfundi bankans
að auka hlutafé bankans um 300
milljónir. Enn fremur var sam-
þykkt að gefa út jöfnunarhluta-
bréf að upphæð 100 milljónir, og
tvöfalda þar með hlutafjáreign
hiuthatanna. Hiutafjáreign bank-
ans nam 100 ntiiljónum. Eftir
fyrsta september voru hlutabréf-
in sem eftir voru selt á almennan
markað.
— Þegar þessu takmarki er
náð, verður hlutafé bankans 500
milljónir, sagði Snæþór Aðal-
steinsson, skipulagsstjóri Sam-
vinnubankans I samtaJi við Tím-
ann i gær. — Fyrir árlð 1976 var
greiddur 13% aröur til hluthafa.
en þetta hefur fylgt aimennum
sparisjóðsvöxtum. Hærri arður
en þetta hefur ekki veriö greiddur
hjá öðrum bönkum.
Astæðan fyrir þessari hluta-
fjáraukningu er sú að bankinn
hefur staðið I byggingarfram-
kvæmdum og talið hefur verið
heppilegra að nota eigið fé til
þeirra, Mörg útibúa bankans búa
við mjög slæman húsakost, en
nýtt hús hefur verið reist fyrir
aöalbankann. Enn fremur hafa
ný bankahús verið byggð i Hafn-
arfirði og á Stöðvarfiröi, en hús
hafa verið keypt fyrir útibúin I
Reykjavik, Keflavik, á Akranesi,
Egilsátöðum Patreksfirði, Húsa-
vik og i Grundarfiröi.
Vöxtur bankans hefur verið ör
og viðskiptamönnum hans fjölgaö
jafnt og þétt. Viöskiptareikningar
við bankann voru 48.487 að tölu
viösíðustu áramót. Heildarinnlán
i bankanum námu i lok júli 1977
5,5 milljörðum króna. Innláns-
aukning varö 1.052 milljónir árið
1976og rúmar900milljónirá fyrri
helmingi ársins 1977. Eigið fé
bankans nemur um 302 milljón-
um króna. Við bankann staria
rúmlega eitt hundraö manns.
Samvinnubanklnn er nú fjórði
stærsti banki landsmanna, næst-
ur á eftir rikisbönkunum. Þá má
geta þess aö hverjum þúsund
króna hlut fylgir eitt atkvæði.
Sigurður RE
með 1362 tonn
— mesti loönuafli af einum bát
KEJ-Reykjavik — Bræla hefur
nú verið á loðnumiðunum slðan
á mánudagsmorgun, en þá
landaði Sigurður RE m.a. 1362
tonnum I Vestmannaeyjum, og
er mesti afli sem einn bátur bef-
ur boriöað landi af loönu hér viö
land. Loðnuaflinn á vertíðinni er
nú orðinn um 120 þús. tonn, sem
er einum tiu þúsund tonnum
meira en á allri loðnuvertiðinni I
fyrra, en sumarveiöar voru þá
iitlar sem engar.
Að sögn Andrésar Finnboga-
sonar litur þetta vissulega mjög
vel út, en ekkert er hægt að
segja um framhaldið. Þrir mán-
uöir eru nú eftir, haustmánuð-
irnir og mikið getur oltið á t.d.
desember einum. Þá má vænta
þessaðá næstunni verði löndun-
arbiö lengri strax og eitthvað
kemur að, fyiiast allar
geymsluþrær og þá veröa bát-
arnir að biða með að landa. 1
sumar hefur það sama raunar
verið uppi á teningnum, en af
nokkuð öðrum orsökum.
Bræðslustöðvarnar hafa sem sé
ekki viljað taka við of miklu til
bræöslu I einu vegna sumarhit-
anna. A sama tima hafa aðrir
bræðslustaðir ekki haft neitt
hráefni, en verið langt undan til
þess að þaö borgaði sig fyrir
bátana að sigla þangað með
afla. Þessa dagana hefur loðna
verið brædd víöast hvar á land-
inu, en austanlands hefur syðst
borizt afli til Neskaupstaðar.
Norsku kosningunum
lauk með jafntefli
Vinstriflokkurinn með tvo þingmenn í úrslitaaðstöðu
Norsku þingkosningarnar urðu
haria sögulegar. Nokkru fyrir
þær haföi borgaraflokkunum ver-
iö spað sigri en þegar nær þeim
dró, þóttu llkur vaxa á þvl aö
Verkamannaflokkurinn fengi
meirihluta á stórþinginu með til-
styrk vinstri sósialista, þótt sýnt
væri frá upphafi að hægriflokkur-
inn myndi vinna stórlega á.
A mánudagskvöldið, er fyrstu
atkvæðatölur fóru að berast,
höfðu Verkamannaflokkurinn og
vinstrisósíalistar yfirburði, og
hélt Verkamannaflokkurinn
þeim, þótt á atkvæðatalninguna
liöi. Aftur á móti drógust vinstri
sósialístar aftur út, og var þó
lengi liklegt að þeir fengju þrjá
þingmenn. En þar kom, aö sýnt
var að þeir myndu missa nær alla
þingmenn slna, og tók þá að syrta
i álinn fyrir Verkamannáflokkn-
um.
Langt fram eftir nóttu voru
horfurá, að Verkamannaflokkur-
inn fengi 77 þingsæti og hefði
þannig meirihluta á stórþingi
með stuðningi eins þingmanns,
sem eftir stóð af fyrra þingliöi
vinstri sósíalista.
Við talningu utankjörstaðaat-
kvæða raskaðist þetta, og lék þaö
á eitt til tvö hundruö atkvæöum
hvort Verkamannaflokkurinn
missti einn þingmanna sinna til
Kristilega þjóðarflokksins og
missti þar með völd i Noregi. Sú
varð lika raun á, að Kristilegi
þjóðarflokkurinn vann þetta
þingsæti með litlum atkvæöa-
mun.
Niðurstaða kosninganna varð
þvi sú. að Verkamannaflokkurinn
fékk 76 þingmenn kosna og vinstri
sósialistar einn, hægriflokkurinn
42, Miðflokkurinn tólf og Kristi-
legi þjóðarflokkurinn 22. Loks
fékk Vinstriflokkurinn, sem einu
sinni var einn öflugasti stjórn-
málaflokkur Noregs, tvo þing-
menn kjörna.
Úrslit norsku kosninganna urðu
þess vegna jafntefli og hafa hvor-
ugur meginandstæðinganna,
Verkamannaflokkurinn né
borgaraflokkarnir þrir, mátt til
þess að mynda rikisstjórn.
Það veltur i rauninni á Vinstri-
flokknum meðsina tvo þingmenn,
hvaöa rikisstjórn verður mynduð
i Noregi, nema þvi aðeins aö
Verkamannaflokkurinn nái sam-
komulagi við einhvern borgara-
flokkanna þriggja og þá einna
helzt miðflokkinn. En um afstöðu
Vinstriflokksins er það að segja
að formaður hans lýsti þvi yfir I
fyrri nótt að hann myndi ekki
taka þátt i stjórnarmyndun og
gilti það jafnt um borgaraflokk-
ana þrjá og Verkamannaflokk-
inn.
I þessum kosningum unnu bæöi
Hægriflokkurinn og Verka-
mannaflokkurinn stórlega á, en
vinstri sósialistar guldu afhroð og
Miðflokkurinn stórtapaði. Tveir
smáflokkar sem komu að mönn-
um 1973, misstu nú þingmenn
sina, annar þeirra hliðstæður
flokki Glistrups I Danmörku.