Tíminn - 17.09.1977, Side 10
10
Laugardagur 17. september 1977
t fyrri viku var staddur hér á
landieinn af framkvæmdastjór-
um danska ferðamálaráösins,
Danmarks turistraad, en hingað
til lands hafði hann verið feng-
inn til skrafs og ráðagerða, aö
sögn Heimis Hannessonar, for-
manns Ferðamálaráðs.
Töldu þeir Heimir Hannesson
og Ludvig Hjálmtýsson fram-
kvæmdastjóíi mjög mikilsvert,
að geta ráðfært sig við mann frá
svo þekktri og virtri stofnun, en
samvinna i ferðamálum hefur
verið allnáin með þessum stofn-
unum um árabil.
Danir auka fjárveit-
ingar til feröamála
Nýverið voru kynntar nýjar
efnahagsróðstafanir i Dan-
mörku. Danir skáru niður alls
konar eyðslu hins opinbera, en
juku jafnframt verulega fram-
lög til ferðamálaráðs, vegna
þess að þeir telja sig geta aukið
ferðamannastrauminn til lands-
ins. Dað eykur gjaldeyristekjur
þjóðarinnar og skapar aukna
atvinnu fyrir atvinnulaust fólk.
Við hittum Jörgen Helweg,
framkvæmdastjóra hjá danska
ferðamálaráðinu, aö máli og
hafði hann eftirfarandi að segja
um dönsk ferðamál og hin
auknu fjárframlög, þvi vera
kann að starf Ðana að ferða-
málum geti verið fordæmi fyrir
okkur Islendinga.
Hann hafði þetta að segja, en
fyrst spurðum við hann um fs-
landsferðina:
— Þetta er nú i sjötta eða sjö-
unda skipti, sem ég kem til ts-
lands, og að þessu sinni i sér-
stökum erindum, þvi samvinna
milli íslands og Danmerkur hef-
ur verið góð i ferðamálum.
Þjóðir og stofnanir á Norður-
löndum hafa svo margháttaðan
hag af samstarfi.
Oft er verið að vinna að hlut-
um i einu landinu, sem reynslan
er af i öðru.
Ilvað koma margir feröa-
menn til Ilanmerkur á ári og
hve lengi hefur Ilanmörk verið
ferðamannaland?
— Það er erfitt að segja það
Danir juku
framlög til
ferðamálar
ráðs um 350
milljónir
króna á
siðasta ári.
Það er liður
i nýjum
efnahags-
ráðstöfunum
Hafa skrif-
stofur um
allan heim
með vissu, en ef við litum á
gjaldeyristekjur Danmerkur af
ferðamönnum, þá voru þær á
siðasta ári um 17 milljarðar is-
lenzkra króna.
Reiknað er með að þessar
tekjur aukist um 12-14% á þessu
ári, og verði um 19 milljarðar
islenzkra króna.
Er Danmörk ekki dýrt ferða-
mannaland?
— Jú, það er dýrt fyrir ferða-
menn að koma til Danmerkur ef
miðað er við svokölluð ódýr
lönd. En fleiri lönd eru dýr. Það
er dýrt að vera ferðamaður i
Þýzkalandi, Sviþjóð, Noregi og
Frakklandi. Lika á Islandi.
Verðlag mun stiga i Dan-
mörku vegna aukinna rikisút-
gjalda, sem valda verðhækkun-
um.
Kaupmannahöfn er dýr borg
en ekki sú dýrasta þó, en verð-
lag úti á landi er hagstæðara og
þaö notfæra ferðamenn sér lika
i rikum mæli.
-
Gj aldeyris tekj ur
Dana af ferðamönn
um 17-19 milljarðar
króna á ár
Rætt við Jörgen Helweg
framkvæmdastjóra Danmarks
Turistraad
Frá hvaða landi koma flestir
feröamenn til Danmerkur? Er-
uö þið vissir um að geta aukið
feröamannastrauminn?
— Flestir ferðamenn koma
frá Þýzkalandi. Þá koma Sviar,
þá Bandarikjamenn, Norðmenn
og Englendingar.
Það er enginn efi á þvi að með
ferðamálastarfi má auka ferða-
mannastrauminn. Annars væri
þetta ekki gert. Rikisstjórnin
veit að ef hún eykur ferða-
mannastrauminn verulega þá
minnkar atvinnuleysið og gjald-
eyristekjurnar aukast.
Hótel, tjaldsvæði og sum-
arhús.
Jörgen Helweg framkvæmdastjóri hjá danska ferðamálaráðinu.
Ferðamannastraumurinn
eftirstríðsfyrirbrigði
gera um 40 sem hafa náð mjög
athyglisverðum árangri.
— Hve langt rekur feröamála-
iðnaðurinn sögu sina i Dan-
mörku?
— Ferðaiðnaður er tiltölulega
ung viðskipta- og þjónustugrein.
Hér áöur ferðuðust menn yfir-
leitt aðeins til útlanda í brýnum
erindum. A þessu verður breyt-
ing eftir striðið, skemmtiferða-
mönnum tekur allt i einu að
fjölga.
Að visu var ferðamálaráð eða
viss stofnun i Danmörku, sem
annaðist ferðamál, fyrir strið,
en Danmörk var ekki ferða-
mannaland eins og landið er
nú, þvi menn höfðu ekki gert
sér grein fyrir að unnt var að
byggja upp ferðaiðnað, alveg
eins og aðrar hentugar atvinnu-
greinar. Þetta hefst þvi ekki
fyrr en að striðinu loknu.
Það voru einkum Bandarikja-
menn sem lögðu leið sina til
landsins. Þeir komu einkum
frá Þýzkalandi, en þar var þá
fjöldi bandariskra hermanna.
Ferðamenn frá fleiri löndum
bættust svo við og byrjað var að
sinna þessari atvinnugrein.
Danmarks turistraad i þvi
formi sem það er núna er um
það bil 10 ára gamalt. Það er
rikisstofnun sem fær sinar tekj-
ur á fjárlögum, og höfum við
haft um það bil einn og hálfan
milljarð króna til okkar þarfa á
ári.
— Hvert er helzta viöfangs-
efni ferðamálaráðs Danmerk-
ur? Hvernig stefnir ráðið að
markmiðum sinum?
— Markmiðið er að auka
ferðamannastrauminn til Dan-
merkur og að auka gjaldeyris-
tekjur þjóðarinnar af þjónustu
við erlenda ferðamenn.
Þetta gerum við með öllum
mögulegum ráðum. Einkum þó
með þvi að koma á framfæri
upplýsingum erlendis.
Við höfum skrifstofur viða um
lönd. 1 Los Angeles, New York,
Japan, Noregi Sviþjóð Eng-
landi, Hollandi, Paris, Ham-
borg, Ziírich, Austurriki.
Allar þessar skrifstofur eru i
nánu sambandi við fjölmiðla á
þessu svæði og reyna að koma
upplýsingum á framfæri og
hvetja menn til þess að koma til
Danmerkur.
Nú hefur nýverið verið gengið
frá nýjum efnahagsráðstöfun-
um i Danmörku, og liður i þeim
var að auka fjárframlög til
danska ferðamálaráðsins um
350 milljónir islenzkra króna.
Fé þetta munum við nota til
þess að opna þrjár skrifstofur i
Þýzkalandi, skrifstofur i Kan-
ada, Ástraliu og Nýja Sjálandi.
Einnig munum við auka starfið
t.d. i Paris og viðar.
— Hvernig er aðstaðan til þess
að taka á móti þessum aragrúa
af fólki?
— Við teljum að nú séu um
65.000 hótelrými (rúmafjöldi) i
Danmörku. Þá leigjum við út
um 50.000 sumarbústaði til er-
lendra ferðamanna. Þetta er
mjög þýðingarmikill liður þvi
yfirleitt dveljast um 4 mann-
eskjur i hverju húsi, en það er
um 200.000 manns i einu.
Við gerum ráð fyrir að afköst
hótelanna séu 7-8 milljónir hót-
elnótta á ári og ferðamanna-
fjöldinn, sem tjaldar eða býr i
húsvögnum er álitinn svipaður
og sá sem notar hótelin.
Tjaldsvæðin eru þvi geysi
þýðingarmikil, og þau háfa vax-
andi gildi fyrir ferðaiðnaðinn.
Tjaldfólkið notar peninga i
landinu og viðskiptin aukast.
Þetta þyrftu menn að skilja
betur á Islandi, og ennfremur
ber að athuga það hvort ekki má
leigja hér út sumarbústaði, þvi
eigendur þeirra nota þá hvort eð
er aðeins litinn hluta úr árinu.
Þeir sumarbústaðir, sem leigðir
eru út i Danmörku handa ferða-
mönnum, eru flestir i einkaeign.
Eigendur þeirra leigja þá út,
þann tima sem þeir ekki nota þá
sjálfir.
„Eigendur þeirra snúa sér til
ferðaskrifstofanna og bjóða hús
sin til leigu fyrir erlenda ferða-
menn og húsin eru skoðuð og
leigð, ef þau fullnægja almenn-
um kröfum.
Gætirðu lýst nánar, hvernig
danska ferðamálaráðið hyggst
nota auknar fjárveitingar til
þess að auka ferðamanna-
strauminn?
— Það hefur verið gerð sér-
stök áætlun, sem samþykkt hef-
ur verið af danska ferða-
málaráðinu. Eftir henni verður
unnið.
Nýjar skrifstofur Dana
erlendis
Eins og áður var sagt, þá
verður opnuð ný skrifstofa i
Torónto i Kanada. Opnaðar
verða fieiri skrifstofur t.d. i
Astraliu og þrjár skrifstofur i
Þýzkalandi, i Diisseldorf,
Frankfurt og i Miinchen.
Þá verður starfið aukið i Par-
is og sérstakur fulltrúi verður i
Finnlandi en þar hefur ekki ver-
ið starfað áður.
Þá hyggjumst við leggja
mikla vinnu i að laða ráðstefnur
Danskt tjaldsvæði. A þeim dvelst helmingur erlendra ferða-
manna, þeir búa í tjöldum, húsvögnum og leggja til drjúgan
skerf af gjaldeyristekjum Dana.
Mjög mikil vinna og fjármagn hefur verið lagt f tjaldsvæðin.
Danmarks turistraad
Danska ferðamálaráðið er þó
ekki eina stofnunin sem vinnur
að ferðamálum. 1 hverjum bæ
og sveitarfélagi er starfandi
sérstakt ferðamálaráð, sem
hefur það meginverkefni að
vinna að ferðamálum fyrir
sveitarfélagið og að reyna að
laða ferðamenn þangað.
Þessi ferðamálaráð eru um
160 talsins og þau eru sjálfstæð
og hafa tekjur sinar af bæjar-
sjóðum og sveitarsjóðum og eft-
ir öðrum leiðum. Sum þessara
ráða vinna mjög mikið starf, en
onnur minna. Verulegt gagn
Verulegar gjaldeyristekjur eru af þvi að leigja erl. ferðamönnum sumarbústaði I einkaeign
leigir útlendingum sumarhúsið, þegar það annars stæöi autt. Þannig vinnst tvennt. Það er
eiga sumarhúsið, og þjóðin fær gjaldeyri.
Fjölskyldan
ódýrara að