Tíminn - 17.09.1977, Síða 15
Laugardagur 17. september 1977 WÍttltttDt
Gigtarsjúklingar einn
stærsti sjúklingahópurinn
í hverju þjóðfélagi
Timdníim hafa borizt greinar-
gerðir fjögurra lækna, tveggja
islenzkra og tveggja útlendra,
um gigtarsjúkdóma og áhrif
þeirra. Niðurstöður erlendu
læknanna tveggja eru mjög
samhljóða og þvi birtar i heild.
Þeir eru W. Watson Buchanan
prófessor i lyflækningum við
háskólann i Glasgow og Eric
Allander, sem starfar við
Karolinska sjúkrahúsið i Stokk-
hólmi.
Gigtarsjúkdómar
mjög vanræktir
Gigtarsjúkdómar þykja ekki
fréttnæmir þvi þeir kreppa fólk
fremuren drepa það. Liðamótin
höfða ekki eins mikið til sálar-
innar og t.d. hjartað, fólk
sperrti þvi ekki eyrun þó
Christian Barnard þyrfti að
flytja mjaðmarlið milli manna.
Fyrr á timum lá Islendingum
við tortimingu af völdum svarta
dauða. í dag gengur önnur
plága yfir alla V.-Evrópu, hún
er hljóðlát en veldur ómældum
þjáningum og efnahagslegu
tjóni. A alþjóðlegu gigtarári
hefur þó orðið breyting til hins
betra og athyglin beinzt að
þessu vandamáli.
Stórkostlegt fjárhags-
tjón
Gigtarsjúkdómar eru sem óð-
ast að verða sá sjúkdómaflokk-
ur, semerhvað algengastur i V-
Evrópu, en einnig hvað dýrast-
ur i meðförum. Rannsóknir sem
gerðarhafa verið benda til þess
að 1-2% fullorðinna hafi gigtar-
sýki (liðagigt). Ennþá fleiri
bera einkenni slitgigtar. Sam-
kvæmt rannsóknum frá London
er slitgigt algengasti sjúk-
dómurinnsem herjará aldraða.
U.þ.b. 1-2% allra fullorðinna
þjást af öðrum kvalafullum lið-
sjúkdómum, sem afmynda lið-
ina, t.d. liðsjúkdómum af völd-
um húðsjúkdómsins Psoriasis,
og margirungir karlmenn þjást
af hrygggigt. Algengasta
ástæða fyrir fjarvistum ungs
fólks frá vinnu er brjósklos i
baki. Þessi háa tiðni ofan-
nefndra sjúkdóma fer að verða
mjög alvarlegt fjárhagsvanda-
mál I V-Evrópu.
Það er vitað að 10% fjarvista
úr iðnaði i Bretlandi orsakast af
gigtsjúkdómum af einhverju
tagi. Eins og er kostar þetta
brezka rikiskassann 400
milljónir sterlingspunda á ári,
sem er jafnt og 10. hluti af
kostnaði við alla heilbrigðis-
þjónustu Bretlands og jafnast
þvi sem næst á við alla lyfja-
neyzlu Breta, mælt i peningum.
Hérerum að ræða stórkostlegt
verðmætatjón, þó ekki sé öll
sagan sögð, þvi hér er ekki
reiknað með kostnaði vegna
spitalalegu, læknishjálpar,
lyfjameðferðar, skurðlækninga
og hjálpartækja.
Ef borið er saman þjóðhags-
legt mikilvægi og kostnaður
vegna gigtsjúkdóma i Banda-
rikjunum, Bretlandi, og Svi-
þjóð, kemur i ljós, að kostnaður-
inn i heild er mismunandi og
einstakir kostnaðarliðir breyti-
legir frá einu landi til annars.
Fjárútlát vegna sjúkradagpen-
inga og örorkulifeyris eru meiri
en greiðslur vegna lækninga.
Heildarkostnaður vegna gigt-
sjúkdóma á hvern þjóðfélags-
þegn á árier 6.400-26.000ísl. kr. i
þeim löndum sem talin eru að
ofan. Aðeins 1-6% af þessum
kostnaði renna til rannsókna á
gigtsjúkdómum. Aætlað er að i
Sviþjóð einni saman kosti gigt-
sjúkdómar 1.106 milljónir
Bandarikjadala á ári. Fræði-
lega séð efu einstökum heil-
brigðisstofnunum og sjúkrahús-
um ýmsar leiðir færar til þess
að lækka þennan kostnað, en
samtsemáðurferkostnaður við
þennan hluta heilbrigðiskerfis-
ins vaxandi, þegar á heildina er
litið.
Átta ára bið
eftir aðgerð
Eins og stendur láta Bretar
einungisum 4.5% af fjárveiting-
um til heilbrigðismála renna til
meðferðar og rannsóknar á
gigtsjúkdómum. Biðlistar eftir
liðaaðgerðum eru geysilangir
og getur tekiðátta árað komast
að. Þetta er nú að verða meiri
háttar pólitiskt vandamál, þar
sem það er gjörsamlega
ómannlegt að ætla gigtsjúku
fólki að biða svo lengi eftir að-
gerð, sem sannanlega hefur
bætandi áhrif. Enginn stjórn-
málamaður né nokkur annar
áhrifaaðili um skipulag heil-
brigðismála mundi láta við-
gangast að sjúklingar með
tannpinu þyrftu að bíða svo
lengi. Þannig lýsa þó gigtsjúkl-
ingar einmitt verkjunum í liðum
sinum.
Rikisstjórnir Vestur-Evrópu
þyrftuað veita auknu fjármagni
til rannsókna á þessu sviði.
Langmestur hluti þess fjár-
magns sem veitt er til rann-
sókna á þessum hlutum i Bret-
landi kemur frá góðgerðar-
stofnunum, en sú upphæð sem
hið opinbera ver til sömu hluta
mun'di vafalaust sóma sér vel i
metabók Guinnes sem lægsta
upphæð, er veitt væri til lausnar
nokkrum meiri háttar félags-
vanda.
Yfirleitt er almenningur
ánægður með heilbrigðisþjón-
ustu, og um 70% telja hana góða
eða ágæta, en hjá yngra fólki
gætir nokkurrar tortryggni. Oft
er það svo i heilbrigðismálum
að erfitt er að styðja ákvarðanir
um forgang tiltekinna þátta
gildum rökum og á þetta einnig
við um gigtsjúkdóma. En ein-
mitt þetta, hve mælistikunni
verður sjaldan viö komið, veld-
ur miklum erfiðleikum, þegar
bæta þarf heilbrigðisþjónustu
við gigtsjúklinga, en þeir
eru einn stærsti sjúklingahópur-
inn i hverju þjóðfélagi.
Auka þarf hvers konar
aðstoð við gigtsjúka
Gigtsjúkdómar eru svo al-
gengir, að meira en 40% þeirra
sjúklinga, sem koma á göngu-
deildir, leita til heilsugæzlu-
lækna eða fá örorkulifeyri, hafa
einkenni frá stoðkerfi, en 2%
þjóðfélagsþegna hafa að stað-
aldri einkenni gigtsjúkdóma og
mynda gigtsjúklingar þannig
stærsta sjúklingahópinn i þjóð-
félaginu.
Sú læknishjálp og aðstoð, sem
gigtsjúklingar njóta, er ærið
mismunandi og yfirleitt ófull-
nægjandi, en þekkingu lækna
varðandi þennan þátt heilsu-
gæzlu er mjög ábótavant. 1 Svi-
þjóð hefur fjöldi þeirra sjúkl-
inga, sem fá örorkulifeyri vegna
gigtsjúkdóma farið vaxandi,
tiðni sjúkdómsins fer því greini-
lega vaxandi.
Augljóst er að ekki er nóg að
rannsaka orsakir þessara sjúk-
dóma heldur verður lika að
rannsaka hvernig bezt má
standa aö hjálp við sjúklingana.
Lyf jaframleiðendur leggja
fram mikið fé til framleiðslu á
nýjum lyfjum. Hvetja þarf
rikisstjórnir vestrænna landa til
að koma á samvinnu við lyfja-
framleiðendur.og læknasamtök.
Skipuleggjendur heilbrigðis-
mála verða að sjá svo til, að út-
vegun aðstöðu til skurðaðgerða
á liðamótum fái verulegan for-
gang. Einnig þarf að endur-
skoða mjög náið aðstöðu til
endurhæfingar og félagslegrar
aðstoðar við fólk er þjáist af
þessum alvarlegu sjúkdómum.
Truflanir á
ónæmiskerfi likamans
Helgi Valdimarsson hefur
starfað sem sérfræðingur og
kennari við St. Mary’s lækna-
skólann i London og hefur einnig
rekið rannsóknarstofu i
ónæmisfræði fyrir St. Mary’s
sjúkrahúsið. Hann hefur boðið
heilbrigðisyfirvöldum að setja
upp og annast rekstur rann-
sóknarstofu af þessu tagi á Is-
landi. Hyggst hann segja upp
stöðu sinni erlendis og flytjast
heim jafnskjótt og grundvöllur
hefur verið tryggður fyrir
rekstri ónæmisfræðilegra rann-
sókna hérlendis.
Helgi telur að flestir illvigir
gigtarsjúkdómar eigi rætur að
rekja til truflana á ónæmiskerfi
likamans. Greining og meðferð
þessara sjúkdóma byggist þess
vegna að verulegu leyti á
ónæmisfræðilegum rannsókn-
um. Aðstöðu til slikra rann-
sókna vantar hérlendis, enda
hefur til skamms tima vantað
ónæmisfræðing til að annast
þessa þjónustu.
Erfðir og
gigtarsjúkdómar
Dr. Alfreð Amason deildar-
stjóri erfðarannsóknadeildar
Blóöbankans hefur unnið aö
erfðarannsóknum á sviöi erfða-
marka siðan 1964 og bæði fjallað
um dýr og menn. Dr. Alfreð hef-
ur ritað eftirfarandi um rann-
sóknir sinar á gigtarsjúkdóm-
um:
Ættarfylgjur eru vel þekktar
meðal Islendinga. Það er hins
vegar nýmæli aö ákveðið
gigtarafbrigði fylgi ákveðnum
vefjaflokkum, sem erfast eftir
þekktum erfðareglum.
Eftir að vefjaflokkun hófst
hér á landi, var möguiegt að
hefjast handa um að kanna
fylgni gigtarsjúkdóma og vefja-
flokka meðal tslendinga. Sam-
starf var hafið milli Blóðbank-
ans og lyflæknisdeildar Land-
spftalans á þessu sviði. Þessar
athuganir voru styrktar fjár-
hagslega af Astra Syntex i Svi-
þjóð og Visindasjóði tslands.
Þegar athugun á fylgni erfða-
marka og sjúkdóma er gerð,
þarf að vita hvernig þessu er
variö hjá hinum heilbrigðu.
Niðurstöður þessara athugana
leiða I ljós að algjör fylgni er
með einu gigtarafbrigðinu og
ákveðnum vefjaflokk, önnur af-
brigði hafa mjög sterka fylgni
við vefjagerð.
Ættarrannsóknir á sviði sjúk-
dómaerfðafræði er hægt að
stunda betur á tslandi en i flest-
um öðrum löndum, vegna hins
almenna ættfræðiáhuga i land-
inu og góðrar skrásetningar. I
stuttu máli verða dregnar tvær
ályktanir af þessum athugun-
um. 1. Vefjaflokkun er gagnleg
við greiningu gigtarsjúkdóma
ogflýtir þannig fyrirréttri með-
ferð. 2. Ættarrannsóknir á
vefjaflokkum og öðrum
ónæmiserfðamörkum auka
skilning á eðli þessa flókna
samspils erfða og sjúkdóma. A
þessu sviði getum við lagt
þyngri lóð á vog þekkingarinnar
en margir þeir, sem stærri eru.
Þekking er forsenda réttrar
meðferðar og lækningar.
Að lokum: Kjörorð gigtar-
sjúklinga i dag er, „Likn i dag,
er lækning á morgun”.
SKJ
Anna Ingigerður
Jónsdóttir
Reykjum , Mjóafirði
f. 1.12.1908,
d. 6.9.1977
Það er margt sem kemur i hug-
ann nú á kveðjustund. Snemma
kom fram þitt mikla þrek og
kjarkur. Min fyrsta minning frá
æsku okkar var, þegar ég var
tæpra 4 ára og þú 5 1/2 árs reiddir
mig fyrir aftan þig frá Úlfs-
stöðum út að Unaósi. Ég hafði þaö
gott og blundaði við bak þitt og
hrökk upp við að þú kallaðir til
pabba og mömmu: ,,Hún er alltaf
að detta af baki.” Þetta þykir nú
ef til vill, ekki i frásögur færandi,
en þetta var byrjunin að þeim ár-
um sem við vorum saman. Það
varst alltaf þú, sem tókst ábyrgð-
ina. Þú passaðir mig fyrir hest-
um, sem áttu það til að bita, og
teymdir undir mér ótemjur.
Löngu fyrir fermingu máttir þú
taka á þig störf pabba á vetrum,
þegar hann fór sinar alkunnu
læknisferðir. Það þótti alveg
sjálfsagt þá, að hann færi alltaf
hinn stranga fjallveg til að sel-
flytja lækninn er bjó á Borgar-
firði, fyrir Héraðsbúa.
Svo voru þessi yndislegu æsku-
ár, að baki, pabbi dáinn frá 6
ófermdum börnum, en þú stóðst
svo sannarlega við hlið okkar
góðu móður. 1 blámóðu minning-
anna finnst mér, að þú hafir verið
dul og fáskiptin svo að ég gerði
mér ekki ljóst hvað þú bjóst yfir
mikilli andlegri orku.
Fermingarveturinnþinn vorum
við saman i bekk, þvi þá var nú
siður að hafa börnin bara i tveim-
ur deildum. Aðeins tvö sköruðu
svo fram úr,að þau höfðu nokkur
erfiö aukafög. Við hin sátum svo
hljóð, aö þaö hefði mátt heyra
saumnál detta, þegarveriö var að
hlýða ykkur yfir. Ég sat oft og
starði og spuröi sjálfa mig:
,,Skyldi hún geta svarað öllu? ” og
það brást ekki.
Svo skildu leiðir. Þú fórst til
Mjóafjarðar og giftir þig sumarið
1929. Mér eru ógleymanlegar all-
ar þær yndisstundir, sem ég átti
með ykkur hjónum bæði á Ask
nesi og siöar á Reykjum. „Guð
gaf ykkur stóran og mannvænleg-
an barnahóp, 11 urðu börnin.
Enginn skyldi samt halda, að
allt hafi þetta gengið átakalaust.
Sjálfsagt muna margir Mjó-
firðingar, þegar þú, ein heima
með barnahópinn bjargaðir bæði
börnum og skepnum i náttmyrkri
og foráttu rigningu úr húsinu,
þegar áin hljóp i gegnum húsið og
velti stórgrýti og aur yfir allt tún-
ið. En þú bjargaðir börnunum
upp á hjalla fyrir ofan bæinn og
tjaldaðir þar smáu tjaldi, sem
var svo litið að sjálf máttir þú
sitja i tjalddyrunum fram á næsta
morgun, þar til svo bjart var
orðið að sveitungarnir hinum
megin við fjörðinn sáu hvað gerzt
hafði á Asknesi og voru þeir fljót-
ir að bregðast við til hjálpar.
Jörðina varð svo að yfirgefa og
var þá fluttað Reykjum og öll úti-
hús byggð upp að nýju.
Þetta er aðeins smábrot af ykk-
ar hetjusögu. En það er lika yfir
miklu að gleðjast,mikið barnalán,
góðir grannar, tryggð við mann
þinn og sveitina.
Elsku systir, ég þakka þér fyrir
alla tryggðina og hlýjuna, böm-
unum þinum og mági minum,
Hans Guðmundssyni Wium, votta
ég innilega samúð. Sveitungum
þinum þakka ég lika fyrir alla
hjálp þér veitta.
Guðný Jónsdóttir
Húseigendur
í Hveragerði —
á Selfossi —
i Þorlákshöfn
— á Stokkseyri — á Eyrarbakka og ná-
grenni.
Þéttum sprungur i steyptum veggjum og
þökum með Þan-þéttiefni, áralöng reynsla
i meðferð og þéttingum með Þan-þéttiefni.
Látið þétta húseign yðar fyrir veturinn og
verjið hana fyrir frekari skemmdum.
Leitiðupplýsinga i sima 3863 Þorlákshöfn.
Alternatorar og
startarar
í Chevrolet, Ford, Dodge,
Wagoneer, Fiat o.fl. í stærð-
um 35-63 amp. 12 & 24 volt.
Verð á alternator frá
kr. 10.800.
Verð á startara frá
kr. 13.850.
Amerísk úrvalsvara.
Viðgerðir á alternatorum
og störturum.
Póstsendum.
BÍLARAF H.F.
Borgartúni 19
Simi 24-700