Tíminn - 27.09.1977, Side 17
Þriðjudagur 27. september 1977
17
Tíminn heimsækir Selfoss:
Lesning og myndir: Haraldur Blöndal
Ný útilaug og
stórglæsileg
aðstaða
Rætt við
Hörð S. Oskarsson,
sundlaugarstj óra
Sundlaug Selfoss var vigð 17.
júli árið 1960, en bygging hennar
hófst árið 1953. Sú bygging er 480
ferm.,og 3300 rúmmetrar með
búningsaðstöðu fyrir rúmlega 70
manns og mjög góðu gufubaði og
rúmgóðum kjallara, sem nýlega
var innréttaður sem þreksalur
með ýmsum tækjum. Blaða-
maður ræddi við Hörð S.
Óskarsson sundlaugarstjóra um
þá aðstöðu sem nú hefur skapast
eftirað nýjasundlaugin var tekin
i notkun.
vinnustað, Selós hf. Eigendur
þess, Hilmar Björnsson, Stefán
Jónsson og Skarphéðinn Sveins-
son voru verktakar fyrir hönd
Selfosshrepps. Frágangur um-
hverfis var unninn af unglingum
á Selfossi. Þeir voru hér um 30
talsins i tæpa tvo mánuði, en alls
voru um 50 unglingar á aldrinum
12—14 ára, sem unnu svokallaða
unglingavinnu á vegum hrepps-
ins, að gróðursetningu plantna,
þökulagningu og ýmsu öðru.
Með þvi bezta sem
gerist á landinu
— Hvað vilt þú segja um þa
iþróttaaðstöðu sem hér er, og þá
möguleika sem svæðið býður upp
á?
— Með tilkomu útilaugarinnar
er aðstaða hér með þvi sem bezt
gerist á landinu. Laugin var
keypt frá Akranesi i fyrra og
kostaði um 900 þúsund. Þetta er i
raun fimm millimetra plast-
dúkur, sem lagður var f mátulega
stóra einangraða gryfju og þá var
laugin tilbúin. Hér er hægt að
stunda sund, fara i heita potta,
alls konar heilsurækt og ýms-
ar iþróttir á svæðinu kringum
laugarnar, svo sem blak, körfu-
bolta, badminton, tennis og
hornabolta. Þá er ætlunin að hafa
hér svokallað minigolf. Við
teljum að á svæðinu geti verið
1000-1500 manns.
Fjárveiting til framkvæmda á
svæðinu kringum laugina var 8
milljónir. En þegar menn sáu
hversu skammt það hrökk, var
ákveðið að veita auknu fé til
framkvæmdanna og ljúka þeim i
eitt skitpi fyrir öll. Kostnaður er
liklega orðinn rúmar 10 milljónir.
Umsjón með þessu verki hafði
fyrirtæki hér á Selfossi, sem hlot-
ið hefur viðurkenningu fyrir
snyrtilega umgengi á sinum
Aðdáunarverð framsýni
forráðamanna
— 011 aðstaðan hér er til fyrir-
myndar. Ég flutti hingað 1960,
þegar gamla laugin var opnuð.
Þá var þetta stóra svæði með öllu
óbyggt. Ég spurði strax til hvers
það væri ætlað og var hræddastur
um að þarna yrðu byggingarlóðir.
Forráðamenn sögðu mér þá að
svæðið væri ætlað undir starfsemi
sundlaugarinnar. Þá eygði ég þá
aðstöðu sem nú er orðin að veru-
leika útilaug, heitker og aðstöðu
til sólbaða og iþróttaiðkunar.
Þetta viðbótarsvæði er um 800
fermetrar. En ef við litum til
Akraness, Keflavikur og Hafnar-
fjarðar eða jafnvel Isafjarðar, þá
séstað sundlaugarnareru byggðar
innan um ibúðarhús, en aðstaðan
engan veginn sambærileg við það
sem hér má sjá. ölll iþróttaað-
staða á Selfossi er miðsvæðis i
bænum og frábærlega skipulögð.
1 kjallara sundlaugarhússins
gamla hefur Hörður útbúið að-
stöðu til likamsræktar. Þar er
fimleikasalur, ýmis iþróttatæki,
ljósböð, nuddbelti, nuddaðstaða,
lyftingartæki, þrekhjól og ótal-
margt annað, sem of langt yrði
upp að telja. Hörður telur að þeg-
ar búið er að ganga endanlega frá
nýja svæðinu og búningsklefar
tilbúnir, megi auðveldlega taka á
móti rúmlega 3000 manns.
Unnið er við að setja niður laugina. A myndinnisjást tveir verktaka-
nna, Stefán Jónsson og Skarphéöinn Sveinsson.
Hörður S. Óskarsson sundlaugarstjóri. i baksýn er nýja sundlaugin.
ÞEIR ERU KOMNIR
Hafið samband við sölumenn okkar og
180B
FÁIÐ NÁNARI
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 8-45-10 & 8-45-1 1
SPARID BENZÍN OG KAUPID
UPPLÝSlNGAR