Tíminn - 27.09.1977, Síða 21

Tíminn - 27.09.1977, Síða 21
Þriðjudagur 27. september 1977 21 íþróttir FH-ingar fara til Finnlands! Nýliði færði Celtic sigur á Parkhead — aftur á móti gengur Royale Union illa í 2. deild Asgeir Sigurvinsson átti mjög góðan leik með Stand- ard Liege, þegar liðið gerði jafntefli (2:2) gegn Beers- chot i Liege. Asgeir lagði upp fyrra markið, með mjög góðri sendingu á V-Þjóðverj- ann Nickel, en siðan skoraði Gores annað mark Standard Liege, sem er nú i þriðja sæti i belgisku 1. deildar keppninni i knattspyrnu. Standard og Anderlecht hafa hlotið 10 stig, en FC Brugge hefur forystu, með 13 stig. Winterslag er i öðru sæti með 11 stig. Royale Union gengur illa i 2. deildar keppninni — tapaði 0:2 um helgina. Marteinn Geirsson lék allan leikinn, en Stefán Halldórsson kom inn á sem varamaður i siðari hálfleiknum. Union-liðið er nú á botninum i 2. deild. Standard Liege er nú kom- ið til Tékkóslóvakiu, en liðið leikur þar i UEFA-bikar- keppninni annað kvöld. — skoraði 4 mörk gegn Hannover Gunnar Einarsson er nú búinn að nó sér eftir meiðslin, sem hann hlaut í olnboga í f yrsta leik Göpp- ingen í v-þýzku „Bundesligunni" i hand- knattleik. Gunnar lék um helgina með Göppingenliðinu gegn Hannover — liði Einars Magnússonar og skoraði hann þá 4 mörk. Göpping- en vann góðan sigur (15:13) gegn Hannover. Einar Magnússonlék ekki með Hannover-liðinu, en hann má byrja aö leika með liðinu um næstu helgi. Þá eru 6 mánuðir liðnir siðan hann skipti um félag — fór írá Hamburger SV yfir til Hannover. Dankersen tapaði naumt (21:22) fvrir Grosswallstadt um helgina. Og félagar í topp- baráttu Finnska liðið Kronohagen IF — mótherjar FH-inga i Evrópu- keppni bikarhafa i handknattleik — sem búið var að gefa báða leik- ina gegn Hafnarfjarðarliðinu, hafa nú endurskoðað afstöðu sfna, og mun liðið leika gegn FH. Eftir að Finnarnir voru búnir að senda FH-ingum skeyti þess efnis, að þeir gætu ekki leikið gegn FH- ingum vegna fjárskorts, höfðu FH-ingar samband við Alþjóða handknattleikssambandið, sem fór á stúfana til að kanna afstöðu Kronohagen. Alþjóða handknattleikssam- bandið gerði Finnunum úrslita- kosti — þ.e.a.s. ef þeir mættu ekki til leiks i Hafnarfirði 8. október, (GEIR HALLSTEINSSON og félagar hans úr FH fara til Finnlands. þá yrðu þeir að greiða háar fjársektir, og þar að auki yrðu finnsk lið dæmd frá Evrópu- keppni bikarhafa i 5 ár. Finnska handknattleikssambandið hafði einnig afskipti af málinu og varð úr, aö finnska liðið verður með i Evrópukeppni bikarhafa. FH-ingar leika fyrri leikinn i Hafnarfirði 8. október en siðari leikurinn fer fram i Finnlandi 16. október. í dag klukkan 17 hefst á Laugardalsvelli síðari leikur FRAM og norska liðsins START í UEFA-keppninni í knattspyrnu. Eins og menn rekur vafalaust minni til, þá tapaði Fram fyrri leiknum í Noregi illilega, eða 6-0, og, hafa Framarar án efa i hyggju að hefna fyrir það tap, með því að sigra í dag. Markamunurinn er það mikill, að enga von er hægt að gera sér um að Fram vinni hann upp. en með því að sigra i dag, má segja að Framarar bjargi andlitinu. Start hefur keppt siðustu fimm ár i norsku l.deildinni og yfirleitt vegnað vel, og er þetta i þriðja skiptið, sem Start tekur þátt i UEFA-keppninni. 1974 tapaði lið- ið fyrir sænska liðinu Djurgarden, og i fyrra fyrir austurriska liðinu Wacker frá Innsbruck. Leikmenn liðsins eru flestir reyndir knattspyrnumenn, og hafa fimm þeirra leikið með landsliði Noregs. Þeir eru bak- vörðurinn Trond Petersen, sem talinn var bezti maður Noregs i sigurleik þeirra yfir Svium nýlega, miðvaliarleikmennirnir Stein Thunberg og Sven Otto Birkeland, og sóknarmennirnir Svein Mathisen og Helge Skuseth. Alþjóda handknattleikssambandið skarst í leikinn og setti Kronohagen IF úrslitakosti Leikmenn Celtic náðu loks að sigra i Skotlandi, þegar þeir iéku gegn botnliðinu Clydebank á Parkhead I Glasgow. Sigur Celtic var þó ekki stór (1:0) — og var það nýliði sem skoraði markið. Það var Tom McAdam sem Celtic keypti frá Dundee United i sfð- ustu viku. Aberdeen heldur forystunni i Skotlandi —sigraði (2:1) Partick. Það var Joe Harper sem skoraði bæði mörk Aberdeen. Onnur úrslit i Skotiandi urðu þessi: Dundee Utd,—-Motherwell ...3:2 Hibs — St. Mirren ..........2:0 Rangers — Ayr...............2:0 Staðan er nú þessi i Skotlandi: Aberdeen.......6 5 1 0 11:4 11 Dundee Utd. 6 4 2 0 10:2 10 Motherwell 6 3 12 11:6 7 Rangers ... 6 3 12 13:10 7 Hibernian . 6 3 1 2 6 7 St. Mirren.. 6 2 2 2 10:8 6 Partick Th. 6 2 13 8:11 5 Celtic; 6 1 1 4 5:8 3 Ayr 6 114 4:13 3 Clydebank . 6 0 1 5 2:14 1 Leikreyndasti maður liðsins er Reidar Flaa, en hann hefur leikið rúmlega 460 leiki með liðinu. Það er ljóst, að Framarar eru ákveðnir i að láta ekki ófarirnar i Noregi endurtaka sig, og má þvi búast við spennandi leik á Laugardalsvelli i dag. Knatt- spyrnuunnendur eru hvattir til að mæta og hvetja Framara. * Islendinga- slagur” í Belgíu.... Standard Liege og Royale Uni- on drógust saman í 2. umferð beigfsku bikarkeppninnar. Það verða þvi þrir íslendingar i sviðs- ljósinu, þegar lcikurinn fer fram i Liege. Asgeir Sigurvinsson — með Standard, — og þeir Mart- einn Geirsson og Stefán Haildórs- son með Union. Mikill áhugi á Skaganum — á Evrópuleik Skagamann og Brann frá Noreg'i Akurnesingar mæta norska liðinu Brann i Evrópukeppni bikarhafa á morgun uppi á Skaga — og verður leikurinn fyrsti Evropuleíkurinn f knatt- spyrnu, sem fer fram á Akranesi, og annar Evrópu- ieikurinn sem fer fram utan Reykjavfkur. Keflvfkingar léku gegn Dundee United i Keflavfk 1975. Mikill áhugi er á leiknum á Skaganum, og gengu ungir strákar um i gærkvöldi, knúðu dyra hjá bæjarbúum og buðu þeim miða. Strákarnir fengu mjög góbar móttökur. Mögu- leikar Skagamanna á að kom- ast áfram í Evropukeppninni eru miklir, og með gtíðum stuðningi áhorfenda ætti þeim að takast að ieggja Brann að velli á Skaganum kl. 5 á morg- un. Rauða spjaldið á lofti — þegar Austur- riki og A-Pýzkaland mættust í HM Enski dómarinn Tom Reyn- olds þurfti að sýna einum Aust- urrfkismanni rauða spjaldið þegar Austurríki og A-Þýzka- land mættust I IlM-keppninni I knattspyrnu i Vfn urn helgina. Þjóðirnar skildu jafnar — 1:1. Reynolds þurfti að sýna spjaldið, eftir að hann hafði dæmt mark af Austurrikis- mönnum rétt fyrir leikslok, vegna þess að einn leikmaður hafði verið rangstæður. Staðan er nú þessi í riölinum: Austurriki.4 3 1 0 12:1 7 A-Þýzkal...3 1 2 0 3:2 4 Tyrkland...3 111 5:3 3 Malta......4 0 0 4 0:15 0 l J Framarar ætla að hefna fyrir tapið — þegar þeir mæta Start á Laug- ardalsvellinum i dag kl. 17

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.