Tíminn - 28.09.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.09.1977, Blaðsíða 1
'-----------------' GISTING MORGUNVERÐUR SIMI 2 88 66 Banaslys á Hellisheiði GV-Reykjavik — Laust fyrir kl. 7 i gærmorgun lézt kona i bilveltu, er varð á Hveradalabrekk- unni á Hellisheiði. Fljúgandi hálka hafði komið skyndilega á hæð- arbrún, og mun konan hafa hemlað snögglega, er hún varð þess vör. Billinn, sem var Land-Rover- jeppabifreiö, snerist út af vegin- um hægra megin og valt eina og hálfa veltu. Taliö er aö konan hafi látizt samstundis, er hún hentist út úr bilnum. Konan sem lézt hét Svanhvít Stefánsdóttir, til heimilis aö Heiö- mörk 2a á Selfossi. Hún fæddist 25. marz 1935. Spánverjar í verðlaunaflugi með Concorde þotunni — Sjá frásögn bls. 3 Fyrir vörubilá^^ Sturtu- grindur Sturtu dælur Sturtu- drif Ömurlegur Evrópuleikur í Laugardal — sjá íþróttir bls. 17 Prjú fyrirtæki kanna vinnslu á perlusteini SKJ-Reykjavik Ýmsar fram- kvæmdir i sambandi viö vinnslu perlusteins úr Prestahnjúki eru nú til athugunar og umræöu hjá þrem fyrirtækjum, og var leitaö frétta hjá forráöamönnum þeirra. Timinn ræddi viö Konráö Andrésson i Borgarnesi, en hann er kunnugur málum hjá félaginu Prestahnjúk. Aö félaginu standa öll sveitarfélög i Mýra- og Borgarfjaröarsýslu ofan Skarös- heiöar, nema Alftaneshreppur og Hraunhreppur, auk fyrirtækja i Borgarnesi. y missa Hitinn við suðumark -í sprungum í húsiLéttsteypunnar,áþjóðveginumogum allt Bjarnarflag SJ-Reykjavik — Þaö er aö veröa býsna heitt hér undir fótunum á okkur, sagöi Arnþór Björnsson hjá Léttsteypunni hf i Bjarnar- flagi viö Mývatn i simtali i gær. Gólf húss Léttsteypunnar sprakk allt i gosinu um daginn, og á föstudagskvöld fór aö rjúka úr sprungunum. Siðan um helgi hef- ur veriö mikiii hiti i gólfinu, og ó- vært verður i húsinu vegna gufu nema allar dyr og gluggar séu op- in. Hiti hefur mælzt um suöumark ofan á gólfinu i sprungunum, sem eru margar um þumlungur aö breidd. Sprungur eru nú um allt Bjarnarflag, á þjóðveginum sem utan hans, stanzlaust rýkur úr þeim og fara sprungusvæöin stækkandi. — Það kemur gufa hér úr einum fjórum sprungum i gólfinu, sagöi Arnþór. Við höfum ekkert getaö framleittsiðan i gosinu við Kröflu um daginn, en þá hrundi holan, sem við fengum gufu frá til að herða steininn, sem við framleið- um. Það væri heldur varla vinn- andi hér inni. Vélarnar eru renn- andi i raka, og tæpast forsvaran- legt'að láta menn vera hér að störfum. Venjulega starfa 4-6 menn hjá Léttsteypunni, en nú er aðeins verkstjórinn á launum, og annast hann eftirlit á staðnum. —- Við gætum fengið gufu frá annarri holu, en leiðslurnar sprungu i gosinu, og við höfum ekki ráðizt I að láta gera við þær enn. Jarðfræöingar hafa spáð nýju gosi um miöjan október, svo við teljum vissara að biöa átekta þangað til, áður en ráðizt er i við- gerð sem kostar hundruð þús- unda. Einnig þurfum við að fá úr- skurð sérfræðinga um hvort gólf hússins er ónýtt, en þá verðum við að flytja fyrirtækið til. — Mennirnir sem unnu hjá okk- ur hafa að visu verið uppteknir við önnur störf siðan i gosinu, en það er ekki glæsilegt fyrir þá upp á framtiðina að missa vinnuna hér. Það eru mest bændur, sem hafa unnið hjá Léttsteypunni, og hafa þeir ýmist verið i fjárstússi að undanförnu eða byggingarvinnu. Léttsteypan framleiðir útveggja- holstein og milliveggjaplötur, og er dagsframleiðslan 1500 hol- steinar eða 3000 milliveggjaplöt- ur. — Það er orðið þreytandi að búa við þetta, sagði Arnþór Björnsson að lokum, það eru að verða tvö ár siðan þessi óvissa og náttúru- hamfarir byrjuðu. Þó held ég að ekki sé hræðsla eða brottfarar- hugur i fólki almennt. Aö sögn Konráðs er hugmyndin ; sú að stofna námufélag og vinna siðan úr perlusteininum, en; einnig kæmi til greina að flytja hann út óunninn. Margir mögu-: leikar eru á vinnslu perlusteins, I t.d. hefur fyrirtækiö Loftorka, i sem steypir milliveggjaplötur úr j gjalli, reynt þaninn perlustein i stað gjalls. Plöturnar úr perlu- steininum urðu mjög áferöar-1 fallegar, og þarflaust er að j múrhúða þær. Fleiri fyrirtæki; hafa áhuga á að vinna úr perlu- steini, sem kemur einkum til greina sem einangrunarefni, en er einnig notaður sem jarðbæti- j efni erlendis. Kristján Friðriksson, fram-j kvæmdastjóri Ylfells, sagði aö' það félag heföi áhuga á perlu- j steini sem einangrunarefni, en það hefur þann mikla kost fram yfir önnur að vera ekki eldfimt. Einnig má vinna ýmsa hluti úr j blöndu af perlusteini og áli. Iðnþróunarstofnun ogj Rannsóknarstofnun iðnaðarins j hafa staðið aö rannsóknum á perlusteini, en Ylfell hefur einnig varið talsveröu fé til rannsókna ogsafnaö mikilvægum upplýsing- um. Að lokum sagði Kristján, að þótt framkvæmdir væru ekki miklar enn, rikti mikill áhugi á málinu. Reynir Kristinsson á Akranesi Framhald á bls. 19. Leir- og gufuhver- ir gætu myndazt Sprungur eru nú um allt Bjarnarflag og hitinn I þeim við suðumark. Þessi mynd var tekin 9. sept., en siðast gaus I Mývatnssveit 8. september. Sprungumyndanirnar og gufan eru afleiðing náttúruhamfar- anna þá. Kisiliðjan er t.v. á myndinni. Vcrið er að gera við sprungu á þjóðveginum. Timamynd Gunnar. SJ-Reykjavik — Þetta er sjálf- sagt eðlileg afleiðing af sprungu- mynduninni og kvikuinnstreymi undir svæðið 8. september sl., sagði Axcl Björnsson jarðfræð- ingur hjá Orkustofnun, Timanum I gær, um þann vaxandi hita, sem orðið hefur vart i sprungum i Bjarnarflagi i Mývatnssveit und- anfarna daga. — Þann 8. september kom gjall upp um eina borholuna i Bjarnar- flagi, og kvika að noröan rann til suðurs og safnaðist fyrir á lit!u svæði, sennilega stutt undir yfir- borði. Bjarnarflagssvæðið gliðn- aði þá allt um rúmlega einn metra. Siðan hefur hitinn aukizt, og einnig vatnsleiðni bergsins yegna sprungumyndananna. Þetta þarf ekki að merkja að nýtt gos sé i aðsigi. Það veit enginn hver þróunin veröur, en þarna geta myndazt leir- og gufuhverir. .. 1 ■■■"' ~ 1 213. tölublað — Miðvikudagur 28. september 1977 — 61. árgangur ________________ -_____________________________________________________

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.