Tíminn - 28.09.1977, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 28. september 1977
17
|íþróttir|
Ömurlegur
Evrópu-
leikur í
Laugardal
— þegar Fram tapaöi þar
(0:2) fyrir norska liöinu Start
í UEFA-bikarkeppninni í gær
*
■
U-AC"^''V
Einhver ömurlegasti
Evrópuleikurog jafnframt
knattspyrnuleikur# sem
fariö hefur fram á
Laugardalsvellinum, var
leikinn þar í gær, en þá
mættust Fram og Start frá
Kristiansand í UEFA-bik-
arkeppninni. Start-liöið
vann þar auöveldan sigur
(2:0> gegn mjög slöku
Fram-liði.
Leikurinn var i alla staöi mjög
lélegur og leiðinlegur á að horfa
fyrir þá 400 áhorfendur sem lögðu
leið sina i Laugardalinn. Það eina
sem gladdi augað var góð dóm-
gæzla írans M. Moffatt, sem var
Margir
vilja
lána
United
— leikvöll fyrir
Evrópuleik
liðsins gegn
St. Etienne
Forráðamenn Manchester
United eru enn ekki búnir að
ákveða, hvar leikur liðsins
gegn St. Etienne i Evrópu-
keppni bikarhafa fer fram.
Skotar og Irar hafa nú boðið
United leikvöll til að leika
leikinn á, en Manchester
United þarf að leika i minnst
200 km fjarlægð frá Manchest-
er, eins og skýrt hefur verið
frá.
Þeir staðir, sem til greina
koma eru London, Ports-
mouth, Plymouth og
Sunderland i Englandi, einnig
Dublin og Belfast á trlandi og
Aberdeen í Skotlandi. Leikur
Manchester United og St.
Etienne á að fara fram 5.
október.
tvimælalaust bezti maður leiks-
ins.
Fram-liðið var afspyrnulélegt,
og eftir að hafa séð leikmenn liðs-
ins leika i gærkvöldi, þá skilur
maður vel, hvernig þeir fóru að
þvi að tapa (0:6) fyrir Norðmönn-
unum i Kristiandand. Leikmenn
Start, sem léku ekki knattspyrnu
upp á marga fiska, áttu aldrei i
erfiðleikum með Fram. Þeir
skoruðu fyrra mark sitt á 26. min.
Framhald á bls. 19.
Þessi mynd er dæmigerð fvrir leik Fram-liðsins I gær. Framarar gátu varla náð skammlaust að i
knöttinn á miili sin, þótt aðeins 2-3 m væru á milli þeirra. (Timamynd Gunnar)
Lárus hefur valið 16
— í unglingalandsliðið í knattspyrnu,
sem mætir Wales í Evrópukeppninni
á Laugardalsvellinum á þriðjudaginn
leikmenn
Lárus Loftsson, einvaldur og
þjálfari unglingalandsliðsins i
knattspyrnu, hefur valið 16
leikmenn til að leika gegn
VVales i undankeppni Evrópu-
keppni unglingalandsliða.
Fyrri leikur þjóðanna fer
fram á Laugardalsvellinum á
þriðjudaginn kemur.
Eftirtaldir leikmenn eru i
hópnum, sem Lárus hefur val-
ið:
Markverðir:
Guðmundur Baldursson,
Fram
Bjarni Sigurðsson, Keflavik.
Aðrir leikmenn:
Benedikt Guðbjartsson, FH
Pálmi Jónsson, FH
Ágúst Hauksson, Þrótti
Benedikt Guðmundsson,
Breiðabl.
Ómar Jóhannsson, Vestm.ey
Skúli Rósantsson, Keflavik
Kristján B. Olgeirsson
Völsungi
Helgi Helgason, Völsungi
Heimir Bergsson, Selfossi
Ingólfur Ingólfsson, Stjörn-
unni
Páll óiafsson, Þrótti
Arnór Guðjohnsen, Vikingi
Sigurður V. Halldórsson,
Breiðab.
Þorvaldur Hreinsson, Aftur-
eldingu
1 unglingalandsliðinu nú,
sem er eitt það yngsta er við
höfum teflt fram, eru piltar
sem margirhverjir hafa vakið
á sér athygli á liðnu keppnis-
timabili. Má þar nefna
markakóng 2. deildar, Pál
Ólafsson úr Þrótti, marka-
kóng Vikings i 3. fl„ Arnór
Guðjohnsen, Pálma Jónsson.
sem er fastur leikmaður i 1.
deildar liði FH, Guðmund
Baldursson, markvörð úr
Fram. Þá má nefna Húsvik-
ingana Helga Helgason og
Kristján B. Olgeirsson, en sá
siðarnefndi er fyrirliði
unglingaiandsliðsins að þessu
sinni.
Það er vitað, að Wales hefur
á að skipa mjög sterku liði,
þannig að hér getur orðið um
jafnan og spennandi leik að
ræða.
KR-ingar fá mikinn liðsstyrk:
Jón gengnr í
raðir KR-inga
— þriðji körfuknattleiksmaðurinn, sem
yfirgefur Ármannsliðið á stuttum tíma
Körfuknattleiksmaðurinn
snjalli Jón Sigurösson,
landsliösmaöur úr Ár-
manni, hefur nú skipt um
félag og gengiö i raöir KR-
Badminton-spaðar
Badminton-skór
Badminton-boltar
Badminton-töskur
Badminton-hulstur
Póstsendum
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klopporstíg 44 • Sími 1-17-83
ihga. Jón, sem hefur verið
okkar bezti körfuknatt-
leiksmaður undanfarin ár,
mun styrkja KR-liðið mik-
ið.
Jón ákvað að skipta um félag
vegna áhugaleysis hjá Ármenn-
ingum. Jón er þriðji Armenning-
urinn sem yfirgefur Armanns-lið-
ið á stuttum tima — hinir eru
Simon Ólafsson og Björn
Magnússon, sem hafa gengið i
Fram.
KR-liðið sterkt
Það er greinilegt að KR-Iiðið
verður mjög sterkt I vetur undir
stjórn Bandarikjamannsins
Andrew Piazza, sem mun einnig
leika með liðinu. Með KR-liðinu
leika margreyndir landsliðsmenn,
eins og Jón Sigurðsson, Kolbeinn
Pálsson, Einar Bollason, Bjarni
Jóhannesson og Birgir Guð-
Guösteinn
leggur skóna
aftur á hilluna
björnsson, en auk þessara leik-
manna, leika margir ungir og
efnilegir leikmenn með Vestur-
bæjarliðinu.
Guösteinn hættur?
Guðsteinn Ingimarsson, fyrr-
um leikmaður Armanns, sem lék
með Njarðvikurliðinu sl. vetur,
mun hafa ákveðið að leggja skóna
aftur á hilluna, vegna starfs sins i
Filadelfiusöfnuðinum i Keflavik.
Guðsteinn hætti að leika með Ar-
mannsliðinu á sinum tima, þar
sem hann helgaði þá söfnuðinum
lif sitt.
—SOS JÓN SIGURÐSSON