Tíminn - 09.10.1977, Síða 2

Tíminn - 09.10.1977, Síða 2
2 Sunnudagur 9. október 1977 Hitavcituframkvæmdir ó horni Glerárgötu og Þórunnarstrætis. Samkvæmt upplýsingum hjá Hitaveitu Akureyrar, ættu fyrstu húsin aö fá heitt vatn f næsta mánuði. SVIPMYNDIR FRÁ ' Ilafnarframkvæmdirnar á Oddeyrartanga hafa staðiö yfir I mörg ár, með hléum og valdið mörg- um ráöamanninum sárum höfuðverk. AKUR EYRI áþ-Reykjavik. Þessa dagana er unnið af kappi við lagningu hitaveitunnar á Akureyri. En þrátt fyrir miklar framkvæmdir hafa forráða- menn bæjarins lagt mikið kapp á að halda bæn- um snyrtilegum, og samkvæmt þeim myndum sem birtast hér á siðunni, virðist það hafa tek- izt. Einnig má sjá myndir frá Torfunesbryggj- unni, og af framkvæmdum Eimskipafélags ís- lands á Oddeyrartanga. Þrengslin eru orðin gifurleg á Torfunesbryggjunni og engin van- þörf á að bætt yrði úr hafnarmálum höfuðstað- ar Norðurlands. Lengi vel kölluðu gárungarnir nýju bryggj- una á Oddeyri ,,Sigöldu”, en jarðvegurinn und- ir vöruskemmunni seig og grunnur hússins s’kekktist. En nú er unnið við að koma skemm- unni upp sem fyrst, og gera má ráð fyrir að hún verði tekin i notkun á næsta ári. Samtals er gólfflötur vöruskemmunnar 3200 fermetrar, og verða skrifstofur Eimskipafélagsins i öðrum endanum. A þessari mynd má sjá niður Þórunnarstræti. A götunii liggur aðalæð, en Ihaust verður hún lögð að Glerárbrú. Næsta sumar verður hún svo lögð I Glerárþorpið. Vöruskemma Eimskipafélags tslands I byggingu. Allt kapp veröur lagt á aö koma henni undir þak sem fyrst. Nokkru noröar hefur fengiö Kaupfélag Eyfirðinga sem er umboðsaðili fyrir Rikisskip, húsnæöi fyrir sina starfsemi, þar sem áður var Skipasmlðastöö KEA (Tlmamyndir KS) Mikil þrengsli eru einkennandi fyrir Torfunesbryggjuna. Raunar má það furðulegt heita. að vöruafgreiðslan skuli hafa gengiö jafn snuörulaust fyrir og og raun ber vitni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.