Tíminn - 09.10.1977, Blaðsíða 37
Sunnudagur 9. október 1977
37
Wmwrn
— Já, og ég var og er alveg undrandi á
því, hve vel myndirnar seldust. Mér datt
ekki í hug, að fólk tæki þessu svona vel. Það
voru ekki nema fáar myndir, sem ég fór
með heim af þessum sýningum, og þær
seldust strax hér heima.
— En ef við víkjum aftur að efninu: Er
sama, hvers konar grjót þú notar?
— Nei, alls ekki. Einu sinni fór ég upp í
Landmannalaugar í ef nisleit, því ég hélt að
þar væri svo gott til fanga. En reyndin varð
önnur. Sumt af grjótinu þar er einhvern
veginn krítarkennt, og þegar til kom, festist
það alls ekki í líminu.
— Hvaða steinategundir eru beztar?
— Gulir og grænir jaspis-steinar eru
ákaf lega góðir, en annars er hugsanlegt að
nota flestar tegundir grjóts, grágrýti,
fjörugrjót, skeljasand og skeljamulning —
allt þetta er mjög gott til myndgerðar.
Rauðamöl er líka ágæt, og hraungrýti úr
Vestmannaeyjagosinu sömuleiðis. Ég gerði
mynd úr efni, sem kom alla leið hingað og
féll hér á túnið einn þeirra mörgu daga sem
gosiðstóð. Þessi mynd er sérstök, ég á hana
sjálf, og ætla ekki að láta hana. Annars
gerðist þetta oftar, að ég tæki ef ni f rá Vest-
mannaeyjum af snjónum hérna í kringum
bæinn og notaði það í myndir. Stundum var
vikurinn ákaflega fínn, alveg mátulegur í
myndir.
— Notar þú samt ekki mismunandi gróft
efni í myndirnar?
— Jú, ég sigta þetta í þrjár mismunandi
stærðir, — i þrem mismunandi gróf um sigt-
um. En þetta er að sjálfsögðu ekki mestur
vandinn, heldur röðun litanna. Þá er ekki
sjaldan að maður spyr sjálfan sig: Hvað á
að koma næst?
— Hvers konar myndir þykir þér
skemmtilegast að gera?
— Dýramyndir, og sérstaklega myndir af
hestum. Þótt ég haf i alltaf verið gef in fyrir
allar skepnur , þá hef ég f rá barnæsku haft
langmestar mætur á hestum. Ef til vill
kemur þarna til húnvetnskur uppruni minn,
en ég er fædd og alin upp norður á Vatns-
nesi í Húnavatnssýslu.
— Hefur þú aldrei unnið í leir?
— Jú, dálítið hef ég borið það við, en mest
til þess að skipta um og hvíla mig f rá hinu.
— Þú hlýtur að haf a haft ríka myndlistar-
hæfileika frá upphafi, fyrst þú hefur náð
slíkum árangri sem raun ber vitni á svo fá-
um árum, sem hér er um að ræða.
— Mesta yndi mitt var alltaf að teikna og
mála, og mig langaði að komast i skóla til
þess að læra að teikna, en um slíkt var alls
ekki að ræða á uppvaxtarárum mínum.
Núna er ég allan daginn að hlakka til
kvöldsins, þegar skylduverkunum lýkur og
ég get farið að sinna myndum mínum, — og
það er hverjum manni nauðsyn að eiga sér
eitthvert tilhlökkunarefni.
— Veiztu, hversu margar myndir þú hef-
ur búið til, síðan þú byrjaðir á þessari iðju?
— Ég hef skrifað hjá mér flestar ,,grjót"-
myndirnar minar, en þó ekki alveg allar.
Þær eru komnar hátt á sjötta hundraðið, og
þegar þess er gætt, að ég byrjaði ekki á
þessu fyrr en 1972, er ekki fjarri lagi að
álykta að ég hafi gert um það bil hundrað
myndir á ári.
— Þú hlýtur þá að grípa í þetta flesta
daga ársins?
— Ég eyði ekki kvöldunum í að horfa á
sjónvarpið, enda hef ég ekki neina ánægju
af því. Ég sofna við sjónvarpið, en vakna,
þegar ég fer að fást við myndirnar.
— Ertu ekki með nokkrar myndir í takinu
samtímis?
— Jú, ég geri það, og gríp í þær sitt á
hvað, eftir því sem á stendur.Þetta erekki
verk, sem hægt er að vinna umhugsunar-
laust. Ég get allt í einu orðið strand með
eina mynd, af því ég er ekki ákveðin i því,
hvernig ég vil hafa f ramhaldið. Þá er nauð-
synlegt að geta gripið í aðra mynd eða
myndir, hálfunnar, á meðan lausn hins
vandamálsins er að verða til í huganum.
— Nú ert þú tiltölulega nýbyrjuð á þessari
iðju. Heidur þú ekki að þú munir leggja
aukna áherzlu á þetta í framtíðinni?
— Það fer eftir heilsufari og ýmsum öðr-
um aðstæðum. Ég hef mikinn áhuga á þessu
verki, og mér hefur fundizt hann heldur
aukast en minnka, eins og eðlilegt er. Víst
nær maður því meiri tökum á viðfangsefni
sínu sem lengur er að því unnið. Ég væri sízt
á móti því að fást við þetta f ram eftir árun-
um, ef heilsa og kraftar leyfa. Kannski
verður svona myndagerð helzta iðja mín í
ellinni. Hver veit?
— VS.
Vinátta tveggja einstaklinga. Olíumálverk
eftir gamalli mynd.— Timamynd Gunnar.
OlíumáIverk frá 1964. — Timamynd
Gunnar.
Hér er gömul mynd notuð sem fyrirmynd
oliumálverks. — Timamynd Gunnar.
„ Hve glöð er vor æska" — steinmynd, gerð
eftir gömlu krosssaumsmunstri. —
Timamynd Gunnar.
i