Tíminn - 09.10.1977, Blaðsíða 31

Tíminn - 09.10.1977, Blaðsíða 31
Sunnudagur 9. október 1977 31 Nú-Tíminn kynnir: Pink Floyd Rick Wrigth: hljómborð. Roger Waters: bassi Nick Mason: trommur. Dave Gilmour: gítar. Hverjum dettur ekki i' hug „The Dark Side Of The Moon”, platan sem er að verða klassik eftirbítlaáranna, þegar minnst er á Pink Floyd. En áður en þessi plata kom út hafði hljóm- sveitinstarfaðlengi, og eftir út- komu hennar hafa tvö önnur langspil litið dagsins ljós og bæði fallið i skugga „myrku hliðar mánans”. Saga Pink Floyd nær allt af tur til ársins 1965, þegar Bítlarnir voruenn upp á sitt bezta. Fjör- menningarnir sem nú skipa Pink Floyd og hinn fimmti Barrett, eru allir háskóla- menntaðir og má mikið vera ef það er ekki undantekning um hljómsveit, sem farið hefur upp allan stjörnustiga poppsins. Syd Barrett, leiðtogi hljdm- sveitarinnar framan af, er list- skólagenginn, en lærði jafn- framt málaralistinni á gitar. George Roger Waters, Nicholas Berkeley Mason og Richard Willam Wright voru allir saman i háskóla að læra arkitektúr. Þessirþrir stofnuðu hljómsveit- ina Sigma 6, þá The T-Set, síðan The Abdabs og loks The Screaming Abdabs en allt kom fyrir ekki. Um svipað leyti léku Barrettog Gilmour saman þjóð- lagatónlist „folk” tónlist, og Gilmour kenndi Barrett Stcmes- grip i pásum. Arið 1965 gerðu Mason, Wright og Waters enn eina til- raun og stofnuðu nú, ásamt Bob Close og Syd Barrett, hljóm- sveitina The Pink Floyd Sound. Bob Close yfirgaf þó fljótlega hljómsveitina, einkum vegna tónlistarlegs ágreinings við Barrett, sem nær strax varð ráðandi i hljómsveitinni og réð raunar nafni hennar i upphafi. Pink Floyd lék til að byrja með fyrir dansi en þróaði jafn- framttónlistarlegsérkennisin á sviði tækni- og rafmagnaðs hljóðfæraleiks. Innan tiðar urðu þeir viðurkenndir opinberir full- trúar „underground” tónlistar þessara ára. Sjálfsagt hefur Pink Flovd lika orðið fyrst hljómsveita til að notfæra sér ljósa„show” á svipaðan hátt og enn tiðkast. Fyrsta litla platan var „Arn- old Layne” og fjallaði umvit- firring, sem stal nærfötum kvenna af snúrum. Lagið komst i 25. sæti brezka listans, en var bannað hjá úrvarpsstöðvum. Um svipað leyti komst hljóm- sveitin á ágætan samning hjá EMI og auglýsing fylgdi i kjöl- farið. Barrett var sem fyrr leið- togi hljómsveitarinnar og samdi nær alla tónlist hennar m.a. „See Emily Play” sem komst i 5. sæti brezka listans. Á fyrsta langspilinu „The Piper At The Gates Of Dawn”, voru 11 lög, þar af 10 eftir Barrett. Hljóm- leikaför um Bandarikin var næsta skrefið, og á meðan á henni stóð fór að bera æ meira á afkárahætti og geggjun í fari Barretts. Hvort ástæðan var einkum ofneyzla eiturlyfja eða hvort geðbilun var um að kenna, var aldrei upplýst en Barrett þótti að lokum ekki hæfur i hljómsveitina. Dave Gilmour gekk til liðs við Pink Floyd i feb. 1968sem gitar- leikari, enda þá alls ekki hægt að treysta Bárrett lengur, sem gat átt það til að góna framan i áheyrendur heila kvöldstund án þess að sinna gitarleiknum af viti. Hann yfirgaf siðan Pink Floyd I april sama ár. Aður hafði hljómsveitin gefið úr tvær litlar plötur til viðbótar „Apples And Oranges” og „It would Be So Nice”, en hvorug komst á lista. Annað langspil Pink Floyd og hið fyrsta eftir að Barretts naut ekki lengur við „Saucerful Of Secrets”, hlaut mjög góðar við- tökur gagnrýnenda og nokkuð góðar meðal almennings i Eng- landi. Þetta efldi sjálfstraust hljómsveitarinnar til muna um leið og Roger Waters tók að ýmsu leyti við hlutverki Barr- ett, var leiðtogi hljómsveitar- innar og samdi mörg lög fyrir hana. Still Pink Floyd breyttist óhjákvæmilega nokkuð, og af- gerandi i tónlist þeirra varð vandað og heflað tæknirokk, sem svo hefur verð nefnt en það er fremur melódiskt en vélrænt. Hljómleikaför um Bandarikin var enn farin, en ekki tókst hljomsveitinni að ná fótfestu vestan hafsins, ekki að þessu sinni a.m.k. „More” „soundtrack” af samnefndri kvikmynd var næsta langspil Pink Floyd, og siðan kom fyrsta ,,live”plata hljómsveitarinnar, „Umma- gumma”. Um svipað leyti lagði hljómsveitin einnig ab hluta til tónlist til tveggja annarra kvik- mynda. Segja má að „Saucerful Of Secrets” hafi fyrst platna Pink Floyd vakið ótviræða hrifningu gagnrýnenda og með „Atom Heart Mother” (1970) slógu Pink Floyd alveg I gegn i Eng- landiogkomustu I l.sæti á lista. Siðan hún kom út hefur Pink Floyd verið ofarlega á blaði þar i landi og raunar viðar og næsta plata þeirra, „Meddle”, gerði ekki annað en að staðfesta þá frægð. „Obscured By Clouds”, sem er „soundtrack” af sam- nefndri kvikmynd gerði hins vegar það sem Pink Floyd hafði lengi beðið, braut þeim leið inn á bandariska markaðinn. Sama árið og þessi plata kom út, þ.e. árið 1972, var hljómsveitin sfðan þrotlaustaðverki,samtals ium 9 mánuði, við upptökur á snilld- arverkinu „Dark Side Of The Moon”. Platan kom út 1973 og hlaut að vonum frábærar við- tökur almennings og gagnrýn- enda. Einstaka raddirvoru uppi um að þetta væri „stereo- snobb”, en hitt er öllu sannara, að á plötunni er að finna full- komnun hins heflaða tækni- rokks, og hefur Pink Floyd enn a.m.k.ekki tekizt að gera betur. Tvö siðustu langspil hljóm- sveitarinnar, „Wish You Were Here” og „Animals”, hafa hvorugt fengið ámóta viðtökur og mánahliðin, og enn hljóta Pink Floyd að rembast við að skáka sinu eigin afkvæmi. Langspil: The Piper At The Gates Of Dawn (SGX 6157) A Saucerful Of Secrets (SCX 6258) More (SCX 6346) Ummagumma (SHDW 1-2) Atom Heart Mother (SHVL 781) Meddle (SHVL 795) Obscured By Clouds (SHSP 4020) ' Dark Side Of The Moon (SHVL 804) Wish You Were Here (SHVL 814) Animals (SHVL 789) Samsöfn: Relics (SRS 5071) A Nice Pair (SHDW7 403) KEJ Afsalsbréf Afsalsbref innfærð 12/9 — 16/9 — 1977: Guðbjört Cskarsd. selurEinari B. Helgasyni raðhúsiö Réttar- holtsveg 61. Breiðholt h.f. selur Herði Hjartarsyni hl. i Æsufelli 4. Borgarplast h.f. selur Einari Þór Þórssyni hl. i Stuðlaseli 29. Guðm. Viðir Vilhjálmsson selur Skátasambandi Rvikur hl. i Vesturbergi 122. Tómas Þorbjörnsson selur Sigrúnu Ósk Skúlad. hl. I Njörva- suni 25. Kristján Hálfdánarson selur Sæmundi St. Sigurjónss. og Lilju Sigfúsd. hl. i Hraunbæ 122. Soffia og Guðrún Jónsdætur og Hannes Jónss. selja Rvikurborg húseignina Ránargötu 6A. Guðjón A. Kristjánss. og Ólafur B. Bæringss. selja Kristjáni Odd- geirss.ogOddgeiri Kristjánss. v/b Sel RE. 310. Atli Eiriksson s.f. selur Alexander Þórssyni hlþ i Dalseli 34. Einar K. Kristjánss. selur Hjálmari Sverriss. og Ragnheiði Gústafsd. hl. i Mosgerði 13. Vilberg Guðmundss. selur Kristbjörgu Lúthersd. hlþ í Nokkvavogi 7. Kristbjörg Lúthersd. selur Vil- berg Guðmundss. hl. i Hlunna- vogi 11. Breiðholt h.f. selur Mariu Þór- arinsd. hl. I Krummahólum 8. Byggingarfél. Ós h.f. selur Jóni Rúnari Kristjónss. hl. i Fifuseli 9. Þórunn Brynja Sigurmundsd. selurBjarna Halldórss. hl. iKriu- hólum 2. Þráinn Þorvaldss. selur Hall- dóru Ólafsd. hl. I Laugarnesv. 108. Rúnar B. Þorsteinss. selur Samúel Smára Hreggviðss. hl. i Hraunbæ 102 B. Guðrún Eyjólfsd. selur Guð- mundi Þóroddss. hl. i Kleppsvegi 128. Róbert Reginberg óskarss. selur db. Erlings Guðmundss. hl. I Krummahólum 4. Breiðholt h.f. selur Grétari Amasyni bilskúr nr. 4A að Kriu- hólum 2-4-6. Bjarnveig Karlsd. selur Arna Stefánss. hl. I Sæviðarsundi 13. Dóra Thoroddsen selur Arnþóri Björnss. o.fl. hl. i Hraunbæ 36. Sigurður Helgason o.fl. selja Valgerði Helgadóttur o.fl. hl. i Miklubraut 50. Jens Gislason og Hrafnhildur Kristinsd. selja Sverri Björnss. hlþ i Drápuhlið 21. Gunnar Jónsson selur Erlendi Páli Grimss. og Marit Daviðsd. hl. i Flúðaseli 14. Halldór Vilhjálmss. selur Ingólfi Arasyni hl. i Vesturbergi 10. Þorsteinn Kr. Þorsteinss. selur Birki Þór Gunnarss. hl. f Vestur- bergi 30. St. Jósefssystur selja Astu Þórðard. hl. i^Bollagötu 2. Byggingarfel. Einhamar selur Jóni Þorvaldss. hl. i Austurbergi 6. Guðrún Asgeirsd. selur Helgu Kress hl. i Asvallag. 23. 'Magnús Zakariasson selur Karli Sigurðss. hl. i Bugðulæk 5. Þorsteinn J. Stefánss. selur Gróu Halldórsd. hluta i Kóngs- bakka 15. Benedikt Axelss. selur Bene- dikt Asgeirss. hl. i Snælandi 6. Asdis Arthúrsd. selur Gunn- laugi Jóhanness. hl. i Skálagerði 15. Róbert Jónsson selur Guðrúnu Guðlaugsd. hl. i Álftammýri 28. Byggingarvörur h.f. selur Jó- hanni Briem og Frjálsu Framtaki hl. i Ármúla 18. Karl B. Sigurðsson seiur Úlfari Jenssyni rabhúsið Yrsufell 14. Björk Högnadóttir selur Herði Þórssyni hl. i Lokastig 22. Gróa Eiðadóttir og Július Snorrasonselja JóniPálssynihl. i Vesturbergi 74. Magnús Magnússon selur Jó- hanni J. ólafssyni húseignina Kleifarveg 5. Oskar Þór Þráinsson selur Einari Bjarnasyni hl. i Eyja- bakka 5. KYJAR PIÖTUR The Rolling Stones — Love you live Sailor— Checkpoint Abba — Arrival Abba — The best of Abba — Waterloo Abba — Mamma Mia Abba — Fantastic Harpo — Smile Harpo — Hits Donna Summer — Allar Steve Miller Band — Book of Dreams Manhattan transfer — Coming out Albert Hammond— Great- est Hits Tina Charles — Heart'n soul Eagles — Hotel California Bob Marley and the Wail- ers — Allar Fleetwood Mac — Rumours Best of the Doobies America — Greatest hits Small Faces — Plymates Peter Frampton — l'm in you Crosby/ Stills & Nash — nýja Vikivaki — Crusing 38 Special — Nýja Bugsy Malone Hot Chocolate — Greatest hits Hollies — Live Hits Gregg Alman Band — Nýja 10 CC — Nýja Bee Gees — Here at last Denis Wilson — (Beach Boys) Carole King — Simple Things Heatwave — too hot to handie Chicago — Allar Grateful Dead — Terrapin Station SKÍFAK jCaugaueg 33 a; 11508 Shaudgöla 37 a; 53762

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.