Tíminn - 09.10.1977, Síða 11
Sunnudagur 9. október 1977
1T
mál sem fylgja lengingu
starfsævinnar. Þegar gerðar
eruáætlanirum ný störf er tekið
tillit til likamlegra möguleika
aldraðra.
I Sovétrikjunum eru starf-
ræktar sérstakar læknastofur
fyrir aldraða, svo og sjúkrahús
og heilsuhæli, enda þurfa aldr-
aðir sérstakrar umönnunar við.
Hin aðferðin
Baráttan gegn algengustu
sjúkdómum hefur ekki mikil
áhrif á lengd mannsævinnar.
Reiknað hefur verið út að algjör
útrjíming hjarta- og æðasjúk-
dóma lengja meðalmannsævi
um 6-7 ár, og ef krabbameini
væri algjörlega útrýmt myndu
enn bætast við eitt og hálft ár.
Þvf lengri sem mannsævin
verður þvi kostnaðarsamara
verður sérhvert skref læknavis-
indanna. Þarna þurfa lfffræð-
ingar að koma til hjálpar.
Fyrirári skipaði sovézka VIs-
indaakademian nefnd, sem
gerði áætlun um rannsöknir á
sviði möguleika á lengingu
mannsævinnar fyrir árin 1976-
1985. Aætlunin skiptist i þrjá
hluta: rannsóknir á sviöi erfða-
fræði, efnafræði og eðlisfræði.
— Að lifa og starfa i 2-300 ár,
það hljómar ævintýralega.
Margir lita svo á að þetta verði
ekki mögulegt fyrr en eftir
langan tima. En við teljum að
þetta sé raunhæfur möguleiki
okkar tíma, — segir formaður
nefndarinnar, Ljef Komarof. —
Með áframhaldandi rannsókn-
um er mögulegt að á næstu ára-
tugum verði fundnar aðferðir til
að færa elli og dauða aftur um
40-60 ár, þannig að meðallengd
mannsævinnar verði 100-200 ár.
Siðarkemsthúnuppi 150-200 ár.
Fræðilega séð eru engin tak-
mörk fyrir þessari lengingu.
Á 25 ára starfsferli hafa
hrörnunarfræðingar komið
fram með u.þ.b. 300 tilgátur til
útskýringar á ástæðum og ferli
hrörnunar. í þessu sambandi
sagði þekktur sovézkur hrörn-
unarfræðingur eittsinn i gamni,
að fjöldi kenninga væri i öfugu
hlutfalli við skilning á vanda-
málinu. 1 þessum gamanyrðum
felst sannleikskorn, þar eð-
meirihluti kenninganna, jafnvel
þær sem staðfestar hafa verið
með tilraunum, eru i mótsögn
hver við aðra og fyrir kemur að
ein kenning útilokar aðra.
Á undanförnum árum hafa að
visu komið fram tvær kenning-
ar, sem bera höfuð og herðar
yfir aðrar. Samkvæmt þeirri
fyrri erástæða hrörnunar fólgin
i þvf að endurtekin mistök eiga
sér stað i frumunum og af þeim
stafar röng samsetning eggja-
hvituefna. Hin kenningin felur i
sér, að hrörnum og dauði verði
samkvæmt ákveðnu prógrammi
sem fyrirfinnst I erfðaeiningum
(genum) mannsins jafnvel áður
en hann fæðist.
Kenning Komarofs, sem hefur
helgað þessu vandamáli 30 ár
ævi sinnar, er svohljóðandi:
hrörnun er erfðafræðilegt ferli,
sem hefst þegar þroskaferlið
hefur náð hámarki sínu. Með
öðrum orðum, ellin stafar af
þvi, að þróunin sem leiddi til
fullþroska mannsins heldur
áfram vegna tregðulögmálsins
ef svo mætti segja. Afleiðingin
er sú að óhagstætt hlutfall
myndast milli framleiðslu og
neyzlu á orku.
Lenging mannsævinnar er að
áliti Komarofs fyrst og fremst
vandamál sem snertir sam-
eindir og erfðaeiginleika og sem
leysa verðurmeð rannsóknum á
frumunni.
Rannsóknir sovézkra erfða-
fræðinga renna stoðum undir
þessa kenningu á margvislegan
hátt. Hrörnunarfræðingar telja
þó mikilvægt á þessu stigi máls-
ins að leggja áherzlu á leit að
efnafræðilegum og eðlisfræði-
legum lausnum vandans, jafn-
hliða erfðafræðinni.
Tilraunir með dýr hafa sýnt,
að unnt er að lengja ævi þeirra
til muna. Við þessar tilraunir
hafa veriö notuð ýmis efni, svo
sem brennisteinsvetni, nokkrar
gerðir vítamina og einnig hefur
veriö reynd neikvæð jónun. Þá
hafa tilraunir með segulsvið
gefið góða raun.
Svetlana Vinokurova (APN)
húsió
Jón Loftsson h.f.
Byggingavörudeild
Hringbraut 121 — sími 28600
21 árekstur
áþ-Rvik. Þrátt fyrir itrekaðar að-
varanir lögreglu og fjölmiðla,
virðist ekki ætla að verða lát á
umferðaróhöppum. Frá klukkan
sex igærmorgun til kiukkan átján
varð samtals 21 árekstur I
Reykjavik. t einu tilfellinu var
um ölvun að ræða og reyndi^sá
ökumaðurað aka á brott, en hann
var síðar handsamaður f Kópa-
vogi. Enginn mun hafa slasazt al-
varlega í óhöppum þessum, utan
þess að vegfarandi varð fyrir bil,
og fór hjól yfir fót hans.
Nær 200 lömb
dauð úr
garnaeitrun
SKJ-Reykjavik. —Á þessu hausti
hafa verið mikil brögö að garna-
eitrun f sauðfé í Þistilfirði. Veikin
er svo skæð að milli 10 og 20 lömb
hafa drepizthjá sumum bændum.
Að sögn óla Halldórssonar
bónda á Gunnarsstöðum hefur
garnaeitrun verið að stinga sér
niður við Þistilfjörð undanfarin 7-
8 ár en er nú með allra svæsnasta
móti. Allt að 5-10% lamba hefur
drepizt á sumum búum, en { heild
munu hátt i 200 lömb dauð úr
pestinni. Hér er um gifurlegt tjón
að ræða en verð til bænda fyrir
hvern dilk mun vera um 10 þús-
und krónur.
óli sagði að snöggri fóöur-
breytingu væri kennt um þetta
fár, enda herjaði pestin mest á
lömbin á haustin. Lömbin eru þá
tekin af úthaganum og beitt á
ræktað land. Um leið eru þau tek-
in frá ánum og missa mjólkina.
A Keldum er búið til tilrauna-
bóluefni sem gerir vissulega
gagn. A Gunnarsstööum voru 300
lömbsettá haga og bólusett strax
og þau komu af afrétti. Bóluefnið
verkar hins vegar svo hægt, að
sex dögum eftirað lömbin komu á
ræktað beitiland, drápust 10 lömb
og eftir 14 daga frá bólusetningu
voru lömb enn að drepast. Siðast-
liðna viku hefur þó ekkert lamb
fundizt dautt á Gunnarsstöðum,
en þau lömb sem sett verða á i
vetur þarf að bólusetja aftur.
Misjafnt er eftir bæjum hve
tjón bænda er mikið, en garna-
eitrunin er mjög útbreidd austan
til við Þistilfjörð.
Tfminn ræddi við Pál A. Páls-
son yfirdýralækni, og hann sagði
að engin sýni úr pestardauðum
lömbum úr Þistilfirði hefðu borizt
að Keldum og þvi væri ekki hægt
að fullyrða neitt með vissu um
þennan sjúkdóm. A svipuðum
sjúkdómi hefur borið viða um
land i langan tima. Mest ber á
þessum sjúkdómi við fóðurbreyt-
ingu á haustin. Lömbin koma af
fjalli, þar sem þau hafa bitið
heiðagróður, sem tekinn er að
sölna en eru sett á kjarnmikið
fóður eins og kál og já, oft eftir
sult i smalamennskum. Við
fóðurbrey tinguna fjölgar
ákveðnum sýklum sem fyrir eru i
meltingarvegi lambanna mjög og
valda eitrun sem drepur þau.
Páll sagði að bóluefni gegn
garnaeitrun hefði gefizt vel en
það væri sama um hvaða bóluefni
væri að ræða, það liði alltaf viss
timi frá bólusetningu þar til efnið
yrði virkt gegn veikinni.
AFL HREYSTI LIFSGLEÐI
♦yjNl □ HEILSURÆKT ATLAS — ælingatimi
10—15 mlnútur á dag. KerliS þarfnast
engra áhalda. Þetta er álltln bezta og
bM tljótvirkasta aBlerBin til aS tá mikinn
_ aBSB Æ vöSvastyrk, góSa heilsu og lagran
likamsvöxt. Arangurinn mun sýna sig
RL eltir vikutlma þjállun.
□ LÍKAMSRÆKT JOWETTS — leiSin til alhliSa llkamsþiállunar,
eltir heimsmeistarann I lyftingum og gllmu, George F. Jowett.
Jowett er nokkurs konar álramhald al Atlas. Bækurnar kosta
kr. 800,-hvor. Sendið greiðslu með pöntun og
bréfið f ábyrgð.
_ □ VASA-LEIKFIMITÆKI
— þjállar allan llkamann
íiWgá á stuttum tlma, sérstak-
lega þjálfar þetta tæki:
y'—y brJóstiB, bakiS og hand-
. XV leggsvöSvana (sjá meBf.
mynd). TækiS er svo fyrir-
f lerBarlltlS, aS hægt er aS
_______v TA hala þaB I va3anum. Tæk-
's ásamt leiBarvlsi og
myndum kostar kr. 180u,—
SendiB natn og helmllisfang til: „LlKAMSRÆKT", þósthólf 1115,
Reykjavlk.
NAFN .......
HEIMILISFANG
BUCHTAL
Keramik flísar
loksins
fyrirliggjandi
INNI
ÚTI —
Komið og skoðið eitt
mesta úrval landsins.
Við pöntum eftir óskum
yðar.
— Pantanir óskast sóttar.