Tíminn - 09.10.1977, Qupperneq 27

Tíminn - 09.10.1977, Qupperneq 27
— sem er með tvöfalt nýra öðrum megin — eins og raunar gerist um tíunda hvern mann Svo eru það aftur nýrun. Gerð nýrn- anna i Guðlaugu Þóru er ef til vill ekki eins sérkennileg og sumir kunna að halda. Um 10% allra manna eru með tvöfalt nýra öðrum megin, segja lækn- arnir og þetta fyrirbæri telst þess vegna ekki óeðlilegt, frekar en til dæmis að vera örvhentur, heldur er það eins konar afbrigði af þvi sem eðlilegast er og venjulegast. Tvöfalt nýra lýsir sér þannig, að nýrnaskálarnar eru aðgreindar og leið- arar tveir, i staðinn fyrir einn, liggja upp i nýrað. Helzti ágallinn við þessa gerð nýrna er sá, að þess konar hefur meiri tilhneigingu tit þess að bólgna, ef eitthvað ber út af, heldur en nýra venju- legustu gerðar. En að svo komnu hefur Guðlaug Þóra ekki miklar áhyggjur af sliku. Hennar hugmyndaheimur er allur annar, og gleði hennar og sorg af öðru sprottin. Það er hin sæla veröld barnsins, sem Það eru litil sem engin óþægindi, sem hún hefur af þessu, sagði móðir telp- unnar enn fremur, en það er fylgzt með henni, og það á að athuga þvagsýni á misseris fresti. Verði þetta henni til ein- hverra óþæginda, þegar fram i sækir, getur ef til vill reynzt nauðsynlegt að fjarlægja þetta aukanýra, ef nota má það heiti. En það verður að minnsta kosti ekki gert fyrr en hún er orðin eldri, hefur okkur verið sagt. Það hefur ekki heldur neitt komið fram, sem rekur á eftir með það. Sjálf vildi Guðlaug Þóra fátt við okk- ur tala, þegar við heimsóttum hana. Hún hafði lika nóg að gera við að hugsa um brúðuna sina, sem búin var að fá hlý prjónaföt, svo að henni verður ekki kalt, þótt nú fari að hausta að, og á auk þess sérstaka kerru, rétt eins og alvörubörn- in. En þegar ekki var brúðan, þá var lika alls konar dót að risla við, forvitni- leg leikföng af ýmsu tagi, svo að ung- frúnni var hreint ekki láandi, þó að hún gæti ekki verið að standa i að skrafa við blaðamenn, sem svo oft eru óþarflega hnýsnir og spurulir. Ég held maður þekki það. Samt brosti hún framan í gestina, þegar hún fór að venjast þeim, meira að segja skellihló. Henni hefur liklega fundizt þeir skritnir, þegar betur var að gáð. hún lifir og hrærist i. Og vonandi sneiða óæskilegar bólgur hjá tvöfalda nýranu i henni á komandi tið, þó að allur varinn sé góður.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.