Tíminn - 09.10.1977, Qupperneq 33

Tíminn - 09.10.1977, Qupperneq 33
Sunnudagur 9. október 1977 33 í augum sumra eru umf erðar 1 j ósin blá og Þeir, sem eru blindir á bláan og gulan lit eru mjög fáir. Þeir sjá umhverfið i rauðum og grænum litbrigðum. Þeirsem eru litblindir á vissa liti, spjara sig ágætlega i dag- legu lifi en það getur skapað vandamál á sérstökum sviðum. I dag er þetta fólk útilokað frá störfum i lofti og á sjó, og frá öðru sem hefur með öryggis- þjónustu að gera. Astæðan til þessara öryggisráðstafana er t.d. að járnbrautastjóri með galla á litskynjun rauðs og græns, á ekki eingöngu i vand- ræðum með að skynja stanz- merkin, hann skynjar stundum hvitt ljós við hliðina á rauðu sem grænt. En ekki er hægt að ákveða án undantekninga að þá sem eru með þessa sjóngalla eigi að úti- loka frá starfsgreinum þar sem litir hafa einhverja sérstaka þýðingu. Það þarf ekki að há rafvirkja sem vinnur með kapla með rafmagnsþráðum i ýmsum litum, að hann sé litblindur, ef hann lærir að sundurgreina hin ýmsu blæbrigði litanna. Ótrúlega margt fólk er meira eða minna litblint eingöngu á rautt og grænt, og er þvi ekki alveg rétt að kalla það litblint. Al- gjör litblinda, þ.e.a.s. að greina alls ekki i sundur liti er mjög sjaldgæf og yfirleitt er átt við þá sem ekki greina vissa liti þegar talað er um litblindu. Litblinda er út- breiddari meðal karlmanna en kven- manna. Meðfæddir litskynjunargallar Rauð-græn litskynjarvilla: fimm af hundraði karlmanna (mjög fáar konur) Rauð-græn blinda: u.þ.b. þrir karlmenn af hundraði (mjög fáar konur) Algjör litblinda: einn af hundrað þúsund Blá-gul litskynjunarvilla og blá-gul blinda: Mjög sjaldgæf. SÉRTILBOD ALLT í EINU TÆKI 170.000 kr. sambyggt stereosett á 116.445 kr. Arfgengi litblindu Litblinda á rauðan og grænan lit gengur i arf. Það liggur ljóst fyrir að litblindan er bundin við kynlitninginn, þar eð átta pró- sent karla og hálft prósent kvenna i Noregi eru haldin þess- um skynjunargalla og erfist það vanalegast frá karli til dóttur- sonar. Algjör litblinda gengur einnig i arf, en á annan hátt. 1 þessu til- felli verður litblindan að fyrir- finnast hjá báðum foreldrunum. Litblinda á gulan og bláan lit eru fylgikvillar annarra augn- sjúkdóma. Grænir negrar Litblinda háir ekki svo mjög börnum i skóla. En skólabóka- útgefendur ættu að vara sig á að nota mikið af rauðum og græn- um merkjum i skólabókum barnanna. Til að komast hjá óöryggi og misskilningi milli nemenda og kennara væri mikið hagræði að þvi að börn færu I litapróf þegar á fyrsta skólaári. Nemandi einn i norskum mynd- og handiðaskóla varð að hætta námi þvi hann hafði þá fyrst er þangað var komið fengið að vita að hann var lit- blindur á rautt og grænt. Þar með fékk hann skýringu á ýms- um atvikum úr bernsku sinni. Meðal annars fékk hann nú skýringu á þvi hvers vegna hann var einn um það i teikni- timum i barnaskóla að lita negra græna. Hann féllst á að til væru brúnir negrar en var viss um að hann sá þá einn i sinum rétta lit. Dyr listarinnar þurfa ekki að vera lokaðar þeim sem eru lit- blindir og þvi hefur verið fleygt að margir listmálarar séu lit- blindir og dauðhræddir um að verða „afhjúpaðir.” Litblindur fann skot- mark Þó svo að hinir litblindu séu i dag útilokaðir frá störfum I öryggisþjónustu, var mikið lið i nokkrum þeirra i striðinu. Þar sem mikið litaflóð villir okkur sýn sjá litblindir miklu betur allar útlinur heldur en þeir sem skynja liti eðlilega. Þvi var oft mikil hjálp i þeim fyrir enska flugherinn. þegar greina átti þýzk skotvopn sem voru máluð I litum umhverfisins til að villa mönnum sýn. MOGULEGT VIÐ HÖFUM NÁÐ VERÐINU SVONA NIÐUR MEÐ ÞVÍ AD: 0Gera sérsamning við verksmiðjuna. 0 Forðast alla milliliði. 0 Panta verulegt magn með órs fyrirvara. 0 Flytja vöruna beint frá Japan með Síberíu-lestinni frægu til Þýzkalands og síðan sjóleiðina til íslands. Lang hagkvæmasta flutningaleiðin. AFLEIÐINGIN ER SÚ AÐ: # Þetta tæki jafnast á við 170.000.- kr. tæki annars staðar. ALLT í EINU TÆKI: Tækið á sér engan keppinaut Draumur yðar getur orðið að veruleika. Segulband Hægt er aó taka upp á segulbandiö af plötu- spilaranum, útvarpinu og gegnum hljóðnema beint,milliliðalaust og sjálfvirkt. Segulbandið ergcrt fyrir allar geröir af cassettum, venju- legar og CROMDIOXIÐ (Dro2). Útvarp Stereo útvarp með FM, LVV og MW bylgju. Akaflega næmt og skemmtilegt tæki. Hátalarar Tvö stykki fylgja með. Bassahátalari 20 cm af koniskri gerö,mið- og hátiönihátalari 7.7 cnt af konfskri gerö. Tiðnisvið 40-20.000 rið. Crown SHC 3150 Verð kr. 116.445 /, onti8 z^strax í dag TILBOÐIÐ STENDUR AAEÐAN BIRGÐIR ENDAST BUÐIN á horni Skipholts og Nóatúns Sími 29800 (5 linur) Magnari Fjögurra vidda stereo magnari l2,5w + 12,5w, gerir yöur kleift að njóta bestu hljómgæða meö fjögurravidda kerfinu. Plötuspilari Fullkominn plötuspilari, allir hraöar. vökva- lyfta, handstýranlegur eða sjálfvirkur. Þetta tryggir góöa upptöku af plötu. Svar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.