Tíminn - 13.10.1977, Page 5
Fimmtudagur 13. október 1977.
5
á víðavanqi
Könnun
Hagstofu
*
Islands
Mbl. skýrir frá þvi i forustu-
grein sinni i gaer, aö opinberir
starfsmenn heföu gert kröfu
til þess aö fá nokkru meiri
launahækkun en félagsmenn
verkalýössamtakanna, þar
sem þeir heföi dregizt aftur úr
á síðari árum. Mbl. segir
siöan:
Fjármálaráöherra Matt-
hias A. Mathiesen beitti
sér fyrir þvi aö Hagstofa
íslands framkvæmdi könnun á
launakjörum opinberra
starfsmanna og almennra
launþega. Aö mati rfkis-
stjdrnarinnar leiddi þessi
könnun i Ijós aö opinberir
starfsmenn heföu rök fyrir
sinu máli og sanngjarnt væri
og eðlilegt aö þeir fengju
nokkra leiðréttingu í yfir-
standandikjarasamningum til
þess að þeir stæöu jafnfætis
öörum launþegum i kjörum.
Þessu mati og þessari niöur-
stööu hefur ekki verið mót-
mælt af talsmönnum laun-
þegasamtaka i landinu og
verður þvi aö líta svo á aö
verkalýðshreyfingin telji
þessa leiðréttingu eölilega og
muni ekki vísa til hennar i
kröfugerð sinni i framtíöinni.”
Veruleg
leiðrétting
Þá segir i forustugrein
Mbl.:
„í samræmi viö þetta mat á
nauðsyn nokkurrar leiðrétt-
ingar er ljóst aö sáttatillaga
sáttanefndar geröi ráö fyrir
launahækkunum til opinberra
starfsmanna umfram þær al-
mennu launahækkanir sem
samið var um sl. sumar á hin-
um frjálsa vinnumarkaði. Til-
boö þau, sem rlkið hefur gert i
Matthias A. Mathiesen
samningaviöræöum aö undan-
förnu ganga einnig lengra en
almennu samningarnir i
sumar og sáttatillagan sem
felld var. Þessar umfram
hækkanir koma fyrst og
fremst fram á miðbiki launa-
stigans en það var einmitt i
þeim launaflokkum sem
BSRB taldi mesta þörf á leiö-
réttingu . Sem dæmi um þess-
ar umframhækkanir skv. til-
boðum rikisstjórnar má nefna
að ASl-sam ningar voru i
sumar taldir jafngilda 26-27%
launahækkun. i tilboði þvi sem
rikisstjórnin hefur gert BSRB
er gert ráö fyrir aö hækkun
júlilauna opinberra starfs-
manna frá mai-launum veröi
alltupp i 34%. Ef tekin eru t.d.
laun i 15. launaflokki BSRB og
metiö hvaöhækkun þeirra frá
mai yröi mikil hinn 1. desem-
ber n.k, kemur i ljós ef
Kristján Thoriacíus
áætluö 9.3% hækkun visitölu
er reiknuð meö aö hækkun til
BSRB nemur 56,2%. Ef þessi
15. launaflokkur BSRB heföi
hins vegar á þessu timabiii
fengið þá hækkun sem ASt
samdi um heföi hækkunin
numiö 40.3%. Ljóst er aö hér
er mjög verulegur munur á. 1
krónutölu námu þessi laun i
mai sl. 124.765 krónum en
mundu nema 1. desember af
samþykkt yröu 194.882 krónur.
Hækkunin nenur i krónutölu
rúmlega 70 þúsund krónum.
Ef aðrir launaflokkar BSRB
eru metnirá sama háttkemur
i Ijós aö mismunur á 5. launa-
flokki yrði BSRB i vil um 3.9
prósentustig miðað viö ASÍ, i
8. launaflokki yröi mismunur-
inn 8.4 prósentustig BSRB i vil
i 10. launaflokki 11.6 pró-
sentustig BSRB i vil i 12.
iaunaflokki 14.4 prósentustig
BSRB i vil, i 18. launaflokki
14.5 prósentustig BSRB i vil og
I 20. launaflokki 12.6 prósentu-
stig BSRB i vil.”
Farið yfir
strikið
Aö lokum segir Mbl.:
„Þaö veröur þvi ekki um
villzt aö launþegar sem taka
laun skv. miöbiki launastiga
BSRB, fá skv. tilboði rikisins
mjög verulegar launa-
hækkanir umfram þaö sem
aörir launþegar fengu i sumar
og er þaö gert til þess aö leiö-
rétta misræmi sem menn hafa
orðið sammála um aö hafi
skapazt. Þegar þetta er haft I
huga er eölilegt aö spurt sé i
framhaldi af þvi aö BSRB hef-
ur hafnað tilboði sem heföi
tryggt opinberum starfs-
mönnum svo verulegar kjara-
bætur.hvaö er þaö, sem BSRB
vill? Þeim hafa nú veriö boön-
ir þeir kjarasamningar sem
aörir launþegar I landinu
samþykktu fyrir nokkrum
mánuöum og til viöbótar hafa
verið boönar kjarabætur til
þeirra sem taldir voru eiga
rétt á leiðréttingu.c Hver er
launastefna BSRB úr þvi aö
sliku tilboði hefur veriö
hafnaö? Aö hverju er stefnt?
Eölilegt er aö slikar
spurningar vakni i Ijósi þess,
aö menn eru væntanlega sam-
mála um, aö meö ASÍ-
samningum var teflt á tæp-
asta vaö. Raunar eru margir
þeirrar skoöunar aö þeir hafi
farið yfir strikiö. Undirstööu-
atvinnuvegir þjóöarinnar eru
reknir með tapi.”
Þ.Þ.
— selur eingöngu ítalskan klæðnað
GV RVK I dag opna bræöurn-
ir Þorsteinn og Marteinn Vigg-
óssynir nýja tizkufataverzlun i
Þingholtsstræti 1. Af þessu til-
efni var haldin á mánudaginn
tizkusýning á Þingholti, sal Hót-
els Holts, og var þar sýndur sá
fatnaður sem búðin mun selja I
vetur og næsta vor.60% af fatn-
aðinum, sem búðin hefur á boð-
stólum er prjónafatnaður teikn-
aður af Italska tizkuteiknaran-
um Judit Ulman, en hún teiknar
fyrir fyrirtækið Moons. Moons-
búðirnarerunú viða um Vestur-
Evrópu og á Þorsteinn hlut i
slikum búðum i Noregi og i Svi-
þjóð. 1 búðinni verður einnig völ
á öðrum itölskum fatnaði svo og
stigvélum og skóm, sem verða i
stil við fötin.
Þorsteinn sagði í viötali við
blaðamann, að þeir ætluðu að
halda sig við vandaöa vöru og
Einn af prjónakjólunum sem
verða til sölu i vérzluninni
Moons. Myndin er tekin á tizku-
sýningunni.
hafa á boðstólum margs konar
fatnað s.s. kuldafatnaö, yfir-
hafnir og samkvæmisfatnað.
Þetta eru föt sem taka við af
táningafatnaðinum, en I raun
getur fatnaðurinn átt viö hvaða
aldursflokk sem er. — Það mun
þó taka nokkurn tima, allt upp i
fjóra mánuði aö finna markað-
inn hér heima.sagði Þorsteinn.
Keppa við konur sem
kaupa föt erlendis
Þær vörur sem við höfum á
boðstólum eru ódýrari en i Dan-
mörku. Þaö er af þvi að við
kaupum þetta ifrönskum frönk-
um, ogokkur er ekki leyfilegt að
leggja eins mikið á og þeir i
Danmörku. Stigvél, sem kosta
um 1200 D.kr. i Danmörku kosta
undir 1000 D. kr. hér. Við erum
þvi að keppa við konur sem
kaupa föt erlendis, sagði Þor-
steinn.
Marteinn Viggósson mun sjá
um rekstur búðarinnar hér, á-
samt konu sinni Perlu Guð-
mundsdóttur. Maria Heiödal
mun sjá um afgreiðslu og yfir-
umsjón I búðinni sjálfri, en hún
hefur unnið hjá Þorsteini i
Kaupmannahöfn á þriðja ár, en
hann er með veitingarekstur i
Kaupmannahöfn.
Þessi prjónafatnaður er bleikur að lit, en það ku vera tfzkuliturinn I
ár
Ný tízkufataverzlun
opnað í Reykjavík
S amkomulag hefur
náðst á Seltjarnarnesi
í kjaradeilunni
ÁÞ Rvík — I gærkveldi
náðist samkomulag í
kjaradeilu bæjarstarfs-
manna á Seltjarnarnesi og
bæjarstjórnarinnar. At-
kvæði voru greidd í gær-
kvöldi og var samningur-
inn samþykktur með 26 at-
kvæðum gegn 7. Sam-
komulagið er að mestu
leyti byggt á Reykjanes-
samkomulaginu.
1 samningunum er m.a. gert
ráð fyrir að starfsmaður, sem
hefur verið i föstu starfi i meira
en 10 ár, fái 40 þúsund króna
launauppbót i desember. En i
Reykjanessamkomulaginu er
gert ráð fyrir 12 ára starfsaldri.
Þá er miðað viö að bæjarstarfs-
mennirnir fái samskonar vaktaá-
lag og Reykjavikurborg bauð sin-
um starfsmönnum, en eins og
kunnugt er þá felldu starfsmenn
borgarinnar samningsuppkast
það er stjórn félagsins haföi staö-
ið einhuga um. Seltjarnarnes-
samningurinn telur laugardaga
meö aö hálfu i sambandi við or-
lofsdaga.
— Reykjanessamkomulagið
gerði ráð fyrir að væri orlof tekið
að vetri til, og að beiöni yfir-
manns, þá skyldi það lengjast um
ákveðinn tima.í okkar samkomu-
lagi féll niöur ,,að beiðni yfir-
manns” og ákveðið að orlofið
lengist um 1/4, sagði Einar Nor-
fjörð, formaður starfsmannafé-
lagsins i samtali við Timann i
gærkvöldi. — Menn hrópa ekkert
húrra fyrir samkomulaginu, en
eftir atvikum er það talið viðun-
andi.
Eftir samninginn þá fær starfs-
maður, i þriðja þrepi, fimmta
flokk, 112.901 krónur á mánuöi.
Laun i B2 eru 100.039, en lægstu
laun samkvæmt samkomulaginu
eru 97.912 krónur. Hins vegar
mun enginn bæjarstarfsmaður
vera i þeim flokki. Eftir er að
raða niöor i launaflokka.en ekki er
ákveðiö hvenær af þvi veröur.
Motorola Alternatorar
i bila og báta.
6/12/24/32 volta.
Platinulausar transistor-
kveikjur I flesta bíla.
HOBART rafsuöuvélar.
Haukur og ólafur hf. Armúla
32, Simi 37700.
Starfsmenn
ríkisstofnana
Starfsmannafélag rikisstofnana auglýsir
daglega félagsfundi kl. 14-16 að Hótel
Esju, meðan á verkfalli rikisstarfsmanna
stendur. Allir félagsmenn SFR eru hvattir
til að mæta á fundunum, til að fræðast og
fræða aðra um framkvæmd verkfallsins,
— og gang samningaviðræðna.
í dag fimmtudag mætir Kristján Thor-
lacius formaður BSRB.
Stjórn S.F.R.