Tíminn - 13.10.1977, Page 11

Tíminn - 13.10.1977, Page 11
Miövikudagur 12. október 1977. 11 Hvað um mannlif við yzta haf? — Ýmsum finnst þessi kaup- félagssaga fara út fyrir ramma sinn. Þeir hafa nokkuö til síns máls. Þaö var mannlifiö, sem i fyrstu mótaöi félagiö, en brdtt snerist þetta viö meö vissum hætti, kaupfélagið tók að móta mannlifiö. Ungir og gamlir gengu i félagiö. Það varð hlé- garður almennings og umræðu- vettvangur, kjörinn gróöurreit- ur aldamóta hugsjóna og ætt- jarðarástar. KNÞ varð félag allraaldursflokka, allra stétta á félagssvæðinu. Þaö tók frum- kvæöi ieða lagði lið flestum eða öllum framfara og hugðarmál- um byggðarlagsins og gerði þau að sinum. Byggðarlagið varð með vissum hætti að einu alls- herjar samvinnub-i og bók þessi er saga þess. Hver hafa verið skipti KNÞ og SiS? — Kaupfél. N-Þingeyinga var eitt þeirra þriggja félaga, sem stóðu að stofnun Sambandsins hinn 20. febr. 1902. Þáverandi formaður Jón Jónsson Gauti vann að lagafrumvarpi' handa Sambandinu að Grenjaðarstað nokkru fyrirstofnfundinnásamt fleirum, en Arni Kristjánsson i Lóni, einn af stofnendum KÞ m.m. mætti á Yztafells-fundin- um. Ekkert sambandskaupfé- laganna mun hafa staöið fastar að StS en KNÞ. Veit ég ekki til, að þar á milli hafi nokkru sinni skort á gagnkvæmt traust eða velvild. Orð bókarinnar um Sambandið eru ekki mörg, en i fullri meiningu sögð. Hvernig gengur að selja bókina? — Hún selst ágætlega miðað viö það, aö enn hefur hún ekki veriö sett i bókaverzlanir, en það verður gert innan tiöar og upplagiö er ekki stórt. Hvað viltu segja að lokum? — Samvinnustefnan er eina færa leiðinúrúr þeim vitahring, sem reyrthefurmannkynið nú á dögum, eina björgunarvonin. Stéttir eða flokkar fá ekki leyst þann vanda, styrjaldir ekki heldur,hverrar gerðar sem eru. Styrjaldir haf eyöingarmátt en ekki lækningar. Samvinna efld og endurfædd, studd mætti þekkingar.er eina færa leiðin til lifshamingjuFrelsi, jafnrétti, bræðralag, einkunnarorö sam- vinnufélaganna uröu lausnarorð fátækrar þjóðar fyrir atbeina samvinnufélaganna, sællar minningar. Þau stefnumiö sigr- uðu fátæktina, innleiddu jöfnuð og samhjálp, lyftu frjálsri þjóð á sviö menningar og bjargálna. Þessa sögu geyma spjöld sög- unnar. En skjóttskipast veður i lofti. Við vöknum upp við vondan draum og spyrjum: Hvar er frelsið okkar, hvar er jafnréttið okkar og bræðralagiö? Erum við aö glata þeim? Þetta er að minnsta kosti ekki á hreinu. Annarleg máttarvöld togast á um fjöreggið okkar. Það er i mikilli hættu. Samvinnan ein getur bjargað þvi. Þetta er sá boðskapur.sem bókinnier ætlað að flytja. Farið sparlega með rándýrt benzín: Sparaksturskeppni BIKR á sunnudaginn Bifreiðaiþróttaklúbbur Reykja- vikur hefur ákveðið að efna til Sparaksturskeppni næstkomandi sunnudag kl. tvö. Keppnin hefst við SHELL-stöðina við Þórodds- staði. Bensinið er orðið dýrt, það fer vist ekki fram hjá neinum bileig- anda þvi verður það sifellt stærra og stærra atriði þegar kostir ein- stakra bilategunda eru metnir, hvort þeir séu hagkvæmir i rekstri. Bifreiðaiþróttaklúbbur Reykja- vikur hefur meöal annars á stefnuskrá sinni að sýna almenn- ingi hvaða árangri er hægt að ná i sparnaði. Að þessu sinni hafa fjölmargir bilar af flestum gerðum verið skráðir til keppni og vist er að þeir eiga eftir að aka lygilega langt á 5 litrum. Keppnin fer þannig fram að keppendur fá fimm (5) litra skammt nákvæmlega mældan og siðan eiga þeir að reyna að kom- ast sem lengst. A eftir keppnis- bilunum fer mælingabill sem skráir niður þá vegalengd sem ekin hefur verið. Keppt verður i 7. flokkum eftir slagrúmtaki véla. 1. 0-1000 cc 2. 1001-1300 cc 3. 1301-1600 cc 4. 1601-1900 cc 5. 1901-2200 cc 6. 2201-3000 cc 7. 3001-og þar yfir. Þess má geta i sambandi við þessa keppni að sá árangur sem næst er i flestum tilfellum betri en sá sem hinn almenni ökumaður getur vænzt en hlutfalliö milli keppenda ætti samt sem áöur aö verða sambærilegt viö það sem gerist i almennum akstri. Eins og áður er getið verður lagt af stað frá bensinstöð Shell við Reykjanesbraut, siðan verður ekið inn á Hafnarfjarðarveg við Nesti, KeflavilPlirveg, Krisu- vikurveg til Hveragerðis, Suöur- landsveg i átt til Reykjavikur. Þeir sem áhuga hafa á aö taka þátt i' keppninni, umboð eöa ein- staklingarog hafa ekki enn fengiö umsóknareyðublað geta snúið sér til skrifstofu FIB. JAFNGILDIR FJARFESTINGU í FASTEIGN EINFALDASTA OG HAGKVÆMASTA FJÁRFESTINGIN UNDANÞEGIN FRAMTALSSKYLDU OG SKATTLAGNINGU Á SAMA HÁTT OG SPARIFÉ SPARISKÍRTEININ ERU ENN FÁANLEG HJÁ SÖLUAÐILUM AÐ KAUPA VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.