Tíminn - 28.10.1977, Side 3
Föstudagur 28. október 1977
3
Börn og
barna-
menning
áþ-Rvik. 1 samvinnu viö Norræna
húsið hyggjast Bókavarðarfélag
islands, Félag bókasafnsfræð-
inga, félag skólavarða ásamt
nokkrum kennara- og fósturnem-
um standa fyrir dagskrá i nor-
ræna húsinu um helgina. Fjallar
BORNOgKVIKMÍNDIR
hún um ,,börn og kvikmyndir”.
Þetta er i þriðja skiptið sem fé-
lögin beita sér fyrir umræðum um
börn og barnamenningu.
Tveir erlendir fyrirlesarar
munu hafa framsögu um efnið,
þær Lise Roos kvikmyndagerðar-
maður og gagnrýnandi við
danska blaðið Information, og
Anja Paulin kvikmyndaráðgjafi
viðSvenska filminstitutet i Stokk-
hólmi. Einnig munu félagsfræöi-
nemar við Háskóla tslands segja
frá könnun, sem gerð var siðast-
liöinn vetur á kvikmyndasýning-
um fyrir börn i Reykjavik. I
tengslum við dagskrána verða
sýndar kvikmyndir fyrir börn og
unglinga i Tjarnarbió.
A morgun, kl. 14 og 15.45 verður
Lisa i undralandi og Atta á eyði-
ey. A sunnudaginn, á sama tima,
verður myndin Uppreisnin og
fimmtudaginn 3. nóvember kl. 17
verður sýnd myndin Vertu hress.
Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestrarnir i Norræna hús-
inu hefjast kl. 16 báða dagana. A
morgun flytur Anja Paulin fyrir-
lestur og félagsfræðinemarnir
segja frá könnuninni. Daginn eft-
ir flytur Lise Roos sitt erindi.
Námskeið 1
notkun átta-
vita og
landabréfa
SKJ-Reykjavik — Eins og undan-
farin ár gengst Hjálparsveit
skáta IReykjavik fyrir námskeiði
I meðferö áttavita og landabréfa
fyrir rjúpnaskyttur og aðra
ferðamenn. A námskeiöinu verða
einnig veittar upplýsingar um
ferðafatnað og annan feröabúnað.
Ætlunin er að halda tvö nám-
skeið, 2.-3. nóv. og 9.-10. nóv.
Hvort námskeið er tvö kvöld.
Fyrra kvöldiö er meðferö áttavita
og landabréfa kennd og æfð, en
siöara kvöldið er veitt tilsögn i
feröabúnaði og farin stutt ferð út
fyrir bæinn til verklegra æfinga.
Námskeiðin verða haldin i
Armiila 10-12 og hefjast kl. 20.00
bæði kvöldin. Þátttökugjald er kr.
1.000 Nánari upplýsingar eru
veittar i Skátabúðinni, simi 12045.
Námskeiöin eru einkum ætluð
rjúpnaskyttum, en allir, sem á-
huga hafa á að læra meðferö átta-
vita og landabréfa, eru velkomn-
ir.
Frá blaðamannafundi á Kleþpsspftalanum i gær. Prófessor Tómas
Helgason, yfirlæknir (t.v.) og Eyjólfur Sigurðsson, sem stjórnaöi
fundinum f.h. Kiwanishreyfingarinnar á tslandi. Myndin er tekin í
starfsendurhæfingarhúsi á Kleppi. Timamynd Gunnar.
V
Götukort af Hafnarfirði. A kortið eru merktar leiðir og viðkomustaðir vagnanna.
Nýtt leiðakerfi:
Bætt strætis-
vagnaþj ónusta
í Hafnarfirði
A morgun laugardag véröur
tekið upp nýtt leiðakerfi strætis-
vagna I Hafnarfiröi. Nýja kerfið
er I höfuðatriöum i þvi fólgið, að
frá um kl. 13.00 mánudaga til og
meö laugardaga og allan daginn á
sunnudögum og hátiðisdögum,
munu tveir vagnar á klukkustund
aka hvor á móti öörum um eftir
taldar götur:
Reykjavikurveg, Fjarðargötu,
Strandgötu, Suöurgötu um Hval-
eyrarveg, Hringbraut, Alfaskeiö,
og Flatahraun..
Höfuökostir þessa nýja kerfis
eruþeir, að samhliöa þviað byggt
er upp heildarstrætisvagnakerfi
innanbæjar i Hafnarfirði batnar
mjög þjónusta fyrir þá, sem nota
vagnana til að ferðast milli Hafn-
arf jarðar og annarra bæja.
Vagnarnir fara nú um flest
hverfi Hafnarfjaröar og tengja
þau innbyrðis með 25-26 ferðum á
dag. Jafnframt verður stutt aö
fara i vagnana fyrir þá, sem nota
þá til ferða til Reykjavikur eða
annarra bæja.
Hægt er aö tengja kerfið við
Vesturbæ og Norðurbæ, með litl-
um breytingum strax og aðstæöur
leyfa.
Kiwanis:
F.I. Reykjavik. — „Gleymum
ekki geðsjúkum” eru kjörorð K-
dags Kiwanishreyfingarinnar á
íslandi, sem haldinn veröur n.k.
laugardag 29. október. Verkefni
dagsins verður fyrst og fremst að
afla peninga til notkunar i þágu
geðsjúkra og almenn kynning á
vandamálum þeirra.
Þetta er i annað sinn, sem
Kiwanisfélagar efna til söfnunar-
dags til bættrar aðstöðu fyrir geð-
sjúka i lifi og starfi. Fyrst söfnuðu
þeir árið 1974 og seldust þá 40 þús-
und lyklar fyrir 3,2 milljónir
Vagnar i fyrsta skipt' of-
an Hamars
IbUar ofan Hamars fá nú I
fyrsta skipti sinn vagn um sitt
hverfi. Mikil fjölgun ferða er um
Alfaskeið- Allir vagnar hafa viö-
komu i Hvaleyrarholti.
Ferðum um miðbæ fækkar
ekki, en fólki er sérstaklega bent
á, að til þess aö notist aö öllu val-
kostir um ferðir getur fólk þurft
að taka vagninn á leiö suður, ör-
fáum minútum fyrr en venjulega,
þó svo aö farþegar ætli til
Reykjavikur.
Landleiðir
Landleiöirhafastarfaði rösk 27
ár, eða siðan 12. júli 1950, en þá
tók félagið við rekstri Hafnar-
fjarðarvagnanna, sem höfðu ver-
ið reknir af rikinu um nokkurra
ára skeið.
Höfuðverkefni fyrirtækisins er
enn i dag rekstur strætisvagna til
Hafnarfjarðar og Garðabæjar
eða um 80% af starfseminni, en
jafnframt starfrækir félagiö sér-
leyfisakstur austur i Arnessýslu,
svo og hópferðir og skipulagöar
feröir meö innlenda og erlenda
ferðamenn einkum á sumrin.
króna. Er von hreyfingarinnar að
ná til enn fleiri nú, þvi að skiln-
ingur almennings fer vaxandi á
þessumikla vandamáli, sem hluti
þjóðarinnar á við að striða og for-
dómar eru úr sögunni. En það
vantar mikið á að sú aðstaða sé
fyrir hendi i landinu, að geðsjúkir
fái læknisþjónustu og aðra aðstoð
sem þeim ber.
K-dagurinn 29. október á að
hvetja íslendinga til þátttöku i
lausn þessara vandamála.
Nánar veröur sagt frá starfs-
endurhæfingu á Kleppsspitala i
blaðinu á morgun.
Nýtt húsnæði Landleiða
Stærsti áfangi sem þegar hefir
náöst er að fyrirtækið hefir flutt
verkstæöisreksturinn i nýtt hús-
næöi I sameign með systurfyrir-
tækinu tsarn. Verkstæðið er mjög
vandað og vistlegt fyrir starfs-
menn. Nýr vagn hefur verið
keyptur og lokið er einnig um-
fangsmikilli endurbyggingu eldri
vagnanna. Rekstrarskipulag er
stöðugt i skoöun, stærsta skref 1
þeim málum er leiðarbreytingin,
sem nú er hrundiö i framkvæmd.
Náin og góð samvinna hefir
verið um þessi mál á milli stjórn-
enda Landleiða og bæjarráðs,
bæjarstjóra og bæjarverkfræð-
ings Hafnarfjaröar. Báðir aðilar
eru sammála um æskilega fram-
tlöarlausn og er sú breyting, sem
nú er gerð stór áfangi I þá átt.
Þegar hafa nokkrar breytingar
verið geröar á gatnakerfi til
hagsbóta fyrir strætisvagnana,
og vonir standa til að malbika á
næsta vori ýmsar götur, sem ekiö
veröur um og enn eru malargöt-
ur. Ennfremur hefir þvi verið
heitið, að haga viðhaldi og vörn-
um á nálku svo, aö strætisvagn-
arnir geti gengið eðlilega, svo
sem frekast er kostur.
Jafnframt sem unniö er aö þvi
að stíga lokaskref til fullkominn-
ar strætisvagnaþjónustu um öll
hverfi Hafnarfjarðar, eru aðilar
sammála um að reynsla þurfi að
fást á þeim áfanga sem nú er
hrundiö I framkvæmd. 1 þvi sam-
bandi er mikilvægt að vita við-
brögö farþega, hvernig þeim lik-
ar hið nýja kerfi. Sömuleiðis er
nauösynlegt að fá reynslu á þvi
hvernig gengur að starfrækja
ferðirnar snurðulaust, en leiöin
lengist um röskan kilómetra við
breytinguna samtimis og vagn-
arnir aka brattari og erfiöari göt-
ur á köflum.
Brautskráning kandi-
data frá Háskóla is-
lands.
Afhending prófsklrteina til
kandidata fer fram við athöfn i
hatfðasal Háskólans laugardag-
inn 29. október 1977 kl. 14. Rektor
Háskólans, prófessor Guðlaugur
Þorvaldsson ávarpar kandldata,
og deildarforsetar afhenda próf-
skirteini. Háskólakórinn syngur
nokkur lög stjórnandi frú Ruth
Magnússon.
Hlynnir að
geðsjúkum