Tíminn - 30.10.1977, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.10.1977, Blaðsíða 3
Sunnudagur 30. október 1977 3 Tölvuleit að upplýsingum í tækni- og raun- greinum kynnt í Norræna húsinu ásamt annarri upplýsinga- þjónustu, sem fyrir hendi er SJ-Reykjavik — Nú stendur yfir i Norræna húsinu kynning á upplýsingaþjónustu I tækni- og raungreinum og stendur hún i dag og á morgun. Kynningin og sýning á bókum og upplýsinga- ritum ítengslum viö hana miöar aö þvi aö auka þekkingu fólks á þeirri upplýsingaþjónustu, sem þegar er fyrir i landinu, auk þess sem sýndar veröa nýjustu aöferöir viö upplýsingamiölun, sem nú tiökast hjá nágranna- þjoöum, svo sem tölvuvædd upplýsingaleit og fleira. Meðal annars verður starf- raáct i Norræna húsinu sérstök tölva eöa útstöð, sem aflað get- ur upplýsinga viðs vegar aö úr heiminum, og gefst mönnum þar kostur á að afla sér upplýs- inga á þennan hátt. Ætlunin er að menn ihinum ýmsu greinum komi sér saman og fái tölvuna til af nota I 20 mlnútur hver hóp- ur og verður Suli Laitinen, finnskur sérfræöingur og for- stöðumaður upplýsingaþjönustu finnska tæknirannsdknaráösins, þar sem starfa um 60 manns þeim til aöstoöar. Að 20 minútna upplýsingaleit lokinni veröa umraeður um þau vandamál sem upp koma I sambandi við hana. Siðasti dagur þessarar tölvuleitar verður á mánudag. Rannsdknaráð rikisins stdð að kynningunni i Norræna húsinu og hana styrktu Félag Islenzkra iönrekenda, Hafrannsókna- stofnun, Rannsóknastofnun byggingariönaöarins, Iðnþróun- arstofnun Islands, Fram- kvæmdastofnun rikisins og Rannsdknastofnun fiskiðnaöar- ins. Ýmis bókasöfn lánuöu bæk- ur til sýningarinnar. Kynningin i Norræna húsinu er liður I viðleitni til að koma i fót upplýsingaþjónustu hér á landi. 1 fyrra skilaöi nefnd á vegum Rannsóknaráðs áliti um skipulag upplýsingamála og lerði tillögu uh skipulal væntan- legrar upplýsingaþjónustu hér i vlsindum og tækni og voru þær þá birtar. Hvað er upplýsinga- þjónusta? Hin ört vaxandi tækniþrdun sem átt hefur sér staö i heimin- um á slðustu áratugum, hefur leitt til þess að tæknimenntun og vlsindaþekking úreldist ört. Talið er að sú þekking sem nú aflast í námi, fyrnist um 10% á ári. Hver einstaklingur tæmist þvi fljdtt, nema þekkingunni sé stöðugt haldiö viö. Tækniþróun- inhefur einnig gert það að verk- um að sffellt eykst það magn ritmáls sem hefur upplýsinga- gildi á hverju sviði tækni- og raungreina. Svo dæmi séu nefnd, þá hefur ritmál á sviöi byggingatækni eingöngu tvö- faldaztá siðastliðnum 10 árum, og á sviöi efnafræðinnar hefur ritmáliö tvöfaldazt á aöeins 3-4 siðustu árum. Fyrir flesta sem starfa að vis- indum er það timafrekt, erfitt og dýrt að afla uppá eigin spýt- ur þeirra upplýsinga sem tryggt gætu nægilega ferska og yfirgripsmikla þekkingu á til- teknu sérsviði. Skipulögð upplýsingaþjónusta felst I því að auövelda einstakl- ingum, fyrirtækjum og stofnun- um að fylgjast með þrdun mála, nýjungum, rannsóknum, upp- götvunum og visindastarfi á öll- um sviðum tækninnar, flokka þær og skrá og miðla þeim siðan til þeirra sem ætla mætti aö hefðu not fyrir þær. Tölvuleit að upplýsing- um i upplýsingabönk- um erlendis með aðstoð útstöðvar. Það geristnú sifellt algengara að upplýsingaefni sé varöveitt I elektrónísku formi á segulbönd- um eða seguldiskum I tölvumið- stöðvum út um allan heim. Leit að upplýsingum í þessum upp- lýsingabönkum má yfirleitt framkvæma á þann veg að not- andinn hringir i slmanúmer upplýsingam iðstöð var innar. Þegar hann hefur fengið sam- band við tölvu upplýsingamiö- stöðvarinnar tengir notandinn sima sinn yfir á litið áhald , modem, sem þýðir skilaboð tölvunnaryfirá mál sem útstöð- in (terminal) skrifari eða skermur skilur. Notandinn gef- ur upp einkennisnúmer sitt viö tölvuna og þar meö hefur hann frjálsan aðgang að upplýsing- um hennar. Unnt er nú þegarað hringja héðan frá Islandi I ýmsar upp- lýsingamiöstöðvar vlöa um heim. Frá upplýsingamiðstöðvum þessum er unnt að fá hinar margvlslegustu upplýsingar, svo sem á sviði llffræði, við- skiptafræði, upplýsingar um einkaleyfi, landbúnaöarmál, tölfræði, um málefr1' olluleitar, rafeindatækni, upplýsingar um doktorsritgerðir sem skrifaöar hafa verið, upplýsingar á sviöi efnafræði, upplýsingar um bandarlsk lög, orkumál, mennt- unarmál, matvælafræöi, jarð- fræði og jarðvisindi, flugvéla- verkfræöi, upplýsingar um rannsóknir sem eru I gangi á hinum ýmsu sviðum, upplýsing- ar fyrir fataiðnaðinn o. fl. o. fl. Að meðaltali tekur leit að upplýsingum með aöstoð út- stöðvar um 15 mfnútur. Kostn- aður við sllka leit er: Fyrir simallnu um krónur 330 á min- útu til Evrópu, en 1000 til Bandaríkjanna. Fyrir afnot af tölvunni þarf að greiða 100-300 krónur á mínútu. Útstöð kostar 1500-5000 Bandaríkjadali. Til viðbótar þessu öllu þarf að greiða stofnkostnað við modem um 1/2 milljón króna, I eitt skipti fyrir öll og auk þess leigu af þvl hjá Landssimanum. Þvl er spáð að árið 1990 muni fyrirtæki og stofnanir almennt hafa aflað sér útstööva til þess að hafa sem greiðastan aðgang að þeim upplýsingum sem þau þurfa á að halda daglega. Attræður er i dag Snæbjörn Jónsson, fyrrum bóndi á Snæringsstöðum I Vatnsdal. Snæbjörn er nú vistmaður á Elliheimilinu Asi I Hvera- gerði. Aðalfundur Vestfirðinga- félagsins Aðalfundur Vestfirðingafélagsins verður haldinn sunnudaginn 30. október, (i dag) kl. 16. Félagar fjölmennið og takið með ykkur nýja félaga. Gestur viröir fyrir sér gögn á kynningunni á upplýsingaþjónustunni f tækni- og raungreinum sem nú stenduryfir INorræna húsinu. —Tlmamynd: Róbert. Sértilboð 10 daga BUÐIN / á horni Skipholts og simi 29800, (5. iinur) VERÐ AÐEINS 49.980

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.