Tíminn - 30.10.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 30.10.1977, Blaðsíða 8
8 Sunnudagur 30. október 1977 Ingólfur Davíðsson: 195. og búið í gamla daga Ibúðarhúsið sést fyrir miðju, byggt af Otto Wathne árið 1880. Sfðar aðsetur„Stóra norræfna” og Landssima Islands .Til vinstri • er hús Peters Fredriksen verk- stjóra, sem var móðurbróðir þeirra bræðra. Upp af þvi var „Sólbakki”, hús Carls Wathne sem brann. Til hægri sér á ibúð- arhús Ottos Wathne er hann byggði árið 1879. (En gros, dag- lega kallað Angró). Fólkiö er margt, enda mikiö atvinnulif á þeim tfma á Seyöisfiröi. Þarna eru auðsjáanlega allmargir Færeyingar i hópnum. I Arbók Feröafélags Islands 1957 eftir próf. Stefán Einarsson segir svo m.a.: „A árunum 1860- 1870 kom Otto Wathne norskur timburspekúlant, fyrstur Norð- manna á Seyðisfiröi og byggöi þar. Hann verzlaði hafði skip i förum milli landa (Egil, Waag- en) og rak stórkostlega sildar- og þorskútgerð. Sildveiðar Norömanna voru mestar á ár- unum 1880-1890. A þeim árum byggðist fjik-ðurinn óöum fal- legum timburhúsum og fékk á sig hinn frisklega, norska f jarð- arbæjarsvip, sem einkennir hann enn i' dag. Þorskveiðar og salt.fiskverk- un höföu hafizt 1874 1890-1900 stóðu þær meö mestum blóma. Fiskimenn voru flestir aðkomn- ir.sunnlenzkir sjómenn og Fær- eyingar. Voru þetta litið minni uppgangsár fyrir Seyöisfjörð en sildarárin. Otto Wathne setti upp nýja prentsmiðju er prentaöi Austra (yngri 1897-1914). 1 prentsmiöju Austra lærði Guðmundur Magn- ússon (slðar Jón Trausti) iðn sina.” Um skeið voru tvö blöð gefin út á Seyöisfiröi, Bjarki, talinn settur til höfuðs Austra, varö þó skammlifur, en frægur af rit- stjóra sinum, Þorsteini skáldi Erlingssyni. Vöxtuleg tré og blóm i görðum hafa lengi sett svip á Seyöisfjörö. Gætti eflaust áhrifa Norðmanna. En um alda- mótin segir Þorsteinn Erlings- son aö ekki hafi veriö trjágaröur nema viö eitt hús i bænum. Starfsfólk Friðriks og Elísabetar Wathne og börn þeirra. Seyðisfirði 1899. Fyrra heimili Fr. Wathne á Seyðisfirði. Byggt 1880 A Seyðisfirði 1906. Litum á Austfjarðamyndir frá þvi um og fyrir aldamót. Mynd- irnar hefur Jón Wathne léð i þáttinn og gefið upplýsingar. Wathne-ættin var frá þorpinu Wathne rétt við Mandal i Suður- Noregi. Byrjum á því að virða fyrir okkur myndarlegt ibúðarhús Tönnes Wathne i Mandal. Myndin mun tekin um aldamót- in. Tönnes Wathne situr við dyrnar, en kona hans Gunda t.h. Börn og annað fjölskyldufólk i forgrunni. Húsið Sólbakki á Seyðisfirði var byggt eftir sömu teikningu, nema dyrnar voru á gafli. Það brann en var endur- byggt — flutt inn tilhöggvið frá Noregi. önnur mynd sýnir fyrra heimili Fr. Wathnes á Seyðis- firöi. Það var byggt af Otto Wathne árið 1880. Svipmynd af Seyðisfiröi 1906 — aö vetrarlagi, gefur hugmynd um bæinn á þeim tíma. Mikið fjör og atvinnulif var þarna um og fyrir aldamótin eins og hóp- myndin frá 1899 leiðir i ljós, en hún sýnir fjölskylduna Friörik og Elisabetu Wathne og starfs- fólk þeirra hjóna á Seyðisfirði. Ibúðarhús Tönnes Wathne Mandal I Noregi um aldamótin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.