Tíminn - 30.10.1977, Qupperneq 12
12
Sunnudagur 30. október 1977
að engu getið. Þetta er ágætt
dæmi um viðhorfið. En ég vil
taka þaö fram, að viö erum slö-
urensvoíneinu striði viö þá hjá
Flugleiöum. öðru nær.
— Hafið þið i hyggju að færa
út kvíarnar?
— Það eru ýmsar áætlanir I
gangi, eða til yfirvegunar.
Brugghúsiö, sem viö seljum
fyrir, hefur mikinn áhuga á aö
fá okkur til samstarfs. Þeir eiga
húsnæði viða um borgina, þar
sem þeir vilja fá okkur til þess
að stofnsetja veitingastað.
A hitt er að líta, aö þetta er
ekki eins auövelt og menn
halda. Þetta er í raun og veru
aöeins spurningin um þaö að
leggjaá sig þrotlausa vinnu, 24
tima á dag, meðan verið er aö
koma lagi á hlutina.
Veitingahús verða aldrei
persónuleg nema yfir þeim sé
vakað dag og nótt.
Ahugi brugghússins byggist
einkum á þvi, að við erum nú
stærsti seljandi þeirra i
Luxemborg á öli. Þaö fylgir
matarsölunni. Viö seljum 10 —
15.000 lítra af tunnuöli á mánuði
og við ;iað bætist svo sala á
lYr' kuöli, sem lika er mikil.
Þeir hafa tvivegis veitt okkur
premiu. 1 fyrra sinnið var þaö
íyrir að vera skilvis, að við
greiddum ölið ávallt á réttum
gjalddaga, og i hitt skiptið feng-
um við premiu fyrir hreinlæti.
— Við erum lika ódeigir við að
krefja þá um aöhafa sina hluti i
lagi— og þaö fellur þeim ekki
miður.
A hinn bóginn er því ekki að
neita, aö húsnæðið sem viö höf-
um, býöur upp á ýmsa mögu-
leika. Við höfum t.d. eina hæö
sem stendur að mestu dnotuð,
nema ég hefi þar herbergi Þar i
er hugsanlegt að setja eitthvað
upp.
Lífskjör i Luxemborg.
— Hvernig eru lífskjór
manna i Luxemborg.
Þau eru mjög góð. Þeir fara
þó dálitíð aðra leið en við ger-
um, ef smáriki er borið saman
við annað smáriki.
Ýmsar kostnaðarsamar
stofnanir hér á landi eru hrein-
lega ekki til i Lusemborg. Til
dæmis er þar ekki háskoli,
nema að háskóli i Bandarikjun-
um er þarmeðútibú. Þeir senda
sina stúdenta inn i háskólana I
Þýzkalandi og i Frakklandi.
Mjög mikill friður er á vinnu-
markaðinum. Þar hefur ekki
oröið verkfall siðan áriö 1917
hefur mér verið sagt.
Lágmarkslaun eru tryggð
með lögum. Þau eru núna um
80.000 Islenzkar krónur, þaö er
að segja fyrir einhleypinga.
Þaö eru launin, þegar búiö er
að draga frá skattana.
Ef um fjölskyldumann er að
ræöa, þá eru lágmarkslaunin,
Frá Luxemburg
Veðursæld er oft mikil i Luxemborg. Hér sjást hjónin Guðrún Freysteinsdóttir og Garðar Jónsson,
ásamt gestum I garði sinum i Grevenmacher I Luxemborg. Garðar er hátt settur starfsmaður hjá
Cargolux Luxemborg.
sem hann fær heim með sér
hærri, um 140.000 Ikr. Ef máð-
urinn á mörg börn, þá byrjar
stjórnin að gefa honum peninga
i stað þess að skattleggja hann.
Þetta er flókiömálog of langt
til þess að gera þvi skil hér, en
fullyrða má þó, að lffskjör,
verölag og laun séu hagstæðari
launþegum i Lux en á Islandi.
Isiendingarnir I Luxemborg
eru hátekjumenn, flestir a.m.k.
og búa þeir við ágætar aðstæð-
ur.
JG.
Haustmót
T.K.
Haustmót Taflfélags Kópavogs
hefst miövikudaginn 2. nóvember
n.k. og verður meö svipuðu sniöi
og haustmót TR, þ.e.a.s. að þátt-
takendum er skipt I riöla eftir
styrkleika meö hliösjón af Elo
skákstiga. Þetta verða einn til
þrir 8 manna riölar og einn fjöl-
mennari riöill. Þannig verða ekki
tefldarnema 7 umferðirog er þaö
að sumu leytikostur, þar sem erf-
itt er fvrir fólk I fullri vinnu að
taka þátt i löngum og ströngum
skákmótum. Gert er ráð fyrir að
teflt verði skv. eftirfarandi tölfu:
1. umferð miövikud. 2.nóv. kl.20
2. umferð föstud. 4.nóv. kl.20
3. umferðsunnud. 6. nóv. kl.14
Biðskákirmiðvikud. 9.nóv. kl.20
4. umferð föstud. 13.nóv. kl.20
5. umferð sunnud. 13.nóv. kl.14
Biöskákir miðvikud. 16. nóv. kl. 20
6. umferðföstud. 18.nóv.kl.20
Biðskákir sunnud. 20. ndv. kl. 14
7. umferð miðvikud. 23.nóv. kl.20
Biðskákir föstud. 25.nóv.kl.20
Teflt verður aö Hamraborg 1.
Sunnudaginn 27. nóvember
verður haldið hraðskákmót og fer
þá fram verðlaunaafhending
vegna haustmótsins.
Einnig má geta þess, að nú þeg-
arhafa valinkunnir skákmenn til-
kynnt þátttöku sina I mótinu.
Mikið um
árekstra
áþ-Rvik.Þráttfyrir ágæt akstur-
skilyrði urðu 27 árekstrar á
götum Reykjavíkur. 1 tveim til-
fellum þurfti að flytja fólk á
slysavarðstofuna, en I hvorugu
tilvikinu var um alvarleg meiðsl
að ræða. Snemma
lenti ölvaður ökumaður I umferð-
aróhappi, en væntanlega má
skrifa flest hinna óhappanna á
reikning aðgæzluleysis og óvar-
kárni.
Framtíðin
styður BSRB
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á félagsfundi málfundafé-
lagsins Framtlöarinnar i
Menntaskólanum i Reykjavik
með miklum meirihluta. Yfir-
skrift fundarins var:
Verkföll forngripur eöa bar-
áttutæki.
Félagsfundir Framtiðar-
innar haldinn I kjallara Casa
Nova 24. október 1977 samþykkir
aö lýsa yfir fullum stuöningi við
kjarabaráttu BSRB. Fundurinn
mótmælirharðlega öllum tilraun-
um I þá átt að skerða þau sjálf-
sögðu réttindi sem verkfallsrétt-
ur er hver sem I hlut á.
F.h. stjórnarFramtlöarinnar
Sigurjón M agnússon
forseti
Táknrænar myndir á stærstu sýningu
Benedikt viröir fyrir sér eitt oiiumálverkiö á sýningunni, Vorkomu.
Tlmamynd Gunnar
Benedikts
SJ-ReykjavIk —1 gær kl. 16 opn-
aði Benedikt Gunnarsson sýningu
á ollumálverkum og pastelmynd-
um að Kjarvalsstöðum. Hundraö
myndir eru á sýningunni, sem er
sú stærsta, sem Benedikt hefur
haldið. Myndirnar eru geröar á
siðustu þrem árum.
— Eins og þið sjáið eru ýmsar
myndanna táknrænar, sagði
Benedikt Gunnarsson, þegar
hann sýnir okkur myndir, sem
bera nöfn eins og Land og verk-
smiðja, Maður og verksmiðja. Þá
eru á sýningunni myndir trúar-
legs eðlis, en nýlega hefur Bene-
dikt einmitt gert glermynd i
Keflavikurkirkju úr steindu gleri.
Hann sýnir nokkrar myndir frá
Vestmannaeyjagosinu, Geimfar-
ar eru hugleikið viðfangsefni og
svo mætti lengi telja. Benedikt
er lektor I myndlist við Kennara-
háskóla íslands. Hann menntaö-
ist á Islandi, i Danmörku, Frakk-
landi og á Spáni.
Benedikt hefur haldið og tekiö
þátt i fjölda sýninga hér og er-
lendis. Listaverk eftir Benedikt
eru i söfnun og sem skreytingar i
stofnunum. Nú vinnur Benedikt
aö nýrri myndskreytingu fyrir
Héraðsskólann að Skógum, sem á
að setja þar upp á næsta ári.
Sýningin stendur til 6. nóvem-
ber.
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla