Tíminn - 30.10.1977, Qupperneq 15
Sunnudagur 30. október 1977
15
tóiiiiœ
Vosgen I, yfirmaður armensku kirkjunnar hefur enn f heiðri siði frá 301 er armenska kirkjan var
stofnsett.
tnilausrar sovétstjórnarinnar
og og armensku kirkjunnar rik-
ir eins og Vosgen I útskyrði á
latinu „modus vivendi”.
Gagnkvæm virðing
Vosgen I er Armeni frá
Rúmeniu og hefur starfað ötul-
lega ituttugu ár.Hann fullyrðir,
að hann hafi aldrei þurft að
kvarta undan framkomu sovét-
stjórnarinnar gagnvart kirkju
sinni.
— Auðvitað er ekkert sam-
komulag milli kristindomsins
og guðlausrar efnishyggju, seg-
ir hann. En þeir bera virðingu
fyrir okkur. Sem kristnir menn
verðum við einnig að virða trú-
lausa.
Ef til vill er léttara fyrir arm-
ensku kirkjuna en önnur trúar-
samfélög i Sovétríkjunum að
beravirðingu fyrir rikisvaldinu.
Staða kirkjunnar er sterkari
vegna þess að hún er samein-
ingartákn þjóðarinnar og hefur
sterka menningarlega stöðu i
Armenlu. A sunnudögum fyllast
allar kirkjur I Armenlu af trú-
uðu fólki, og margir eru á ungl-
ingaaldri. Mikill meirihluti
barna, eða yfir 70% samkvæmt
tölum Vosgens I, eru skírð I
kirkju og ungt fólk velur oft
hjónavigslu I kirkju fremur en
borgaralega giftingu.
Sænskir fylgjendur
armensku kirkjunnar
Hefðirnar sem fylgja starfi
Vosgens I eru allt frá tlmum
fyrsta biskupsins i Armenlu,
Gregoriusi, sem hóf starfiö árið
301. Sama ár var kristni lögtek-
in og kirkja stofnuð I Armenlu.
Vosgen I er andlegur yfirmaður
armensku kirkjunnar um allan
heim og hann einn getur vlgt
biskupa.
Það eru lika armenskir
prestaskólar I Jerúsalem og
Beirút. Við guðfræðilegu aka-
demluna I Etjmiadsins leggja
nú 28 prestarstundá ýmsa þætti
guðfræði. Flestir þeirra eru
sovéskir, en þar eru einnig
prestar frá Sýrlandi, Lýblu og
Rúmenlu.
Frá Etjmiadsin liggja þræðir
til allra armenskra safnaða I
heiminum. Jafnvel i Svlþjóð eru
nú nokkur hundruö fylgjendur
armensku kirkjunnar sem eru
innflytjendur frá Tyrklandi,
Iran ogLibanon. Vosgen I segir,
að enn hafi þeir I Svíþjóð enga
kirkju, en hún muni risa.
Engir sunnudagaskól-
ar
Eins og öðrum trúarhópum I
Sovétrlkjunum er armensku
kirkjunni þröngur stakkur skor-
inn. Kirkjan má ekki reka skóla,
ekki einu sinni sunnudagaskóla.
Enprestarnirfá að húsvitjahjá
þeim kristnu og foreldrar geta
tekið böm sin meö til guðsþjón-
ustu. Þannig er enn hægt að ala
börn upp I guðsótta og góðum
siðum segir Vosgen I.
Armenska kirkjan fjármagn-
ar starfsemisína með söfnunar-
fé. Þeirhafa llka rétttilað taka
á móti framlögum frá armenum
erlendis til rekstrar kirkjunnar.
— Armenska kirkjan hefur
komizt I betri efni hin síðari ár,
segir Vosgen I.
Menningararfleifð
Hefðir kirkjunnar gera
Armenum kleift að halda
þjóðareinkennum sinum. Staf-
róf þeirra er sérstakt. Armenar
fengu sitt eigið stafróf kringum
400, en höfundur þess var
munkurinn heilagur Nesrop.
Slðar hefur þurft að bæta tveim
bókstöfum við þá 36 uppruna-
legu, en þegar á heildina er litið
hefur stafrófið litið breytzt.
Bókmenntalegir dýrgripir
Armena eru nú geymdir I hand-
ritasafninu i' Matanadaran.
HUsið hafa sovézkir arkitektar
teiknað I klasslskum armensk-
um stll. í Matanadaran eru
u.þ.b. 15.000 armensk handrit
frá nær öllum heimshornum
saman komin á einn stað.
Handritin gefa mynd af blóm-
legri armenskri menningu fyrir
meir en þúsund árum. Meðal
handritanna eru myndskreyttar
bibllur, heimspekileg rit um
það, hversu forgengilegir hlut-
imir eru og óstöðugir, stærð-
fræðibækur og söguleg rit.
• Einn helzti dýrgripur safnsins
er rit sögulegs efnis, sem skrif-
að er á kálfsskinn og mun vera
frá 13. öld. Brotum var safnað
saman frá óliklegustu stöðum.
Einu blaði var bjargað af Pól-
verja I seinni heimsstyrj öldinni
og annað blað höfðu tvær
amerískar konur flutt leynilega
til Englands. Bæði þessi blöð
eru nú i Matanadaran. Aðrir
hlutar bókarinnar fundust i
klaustrum og enn aörir voru
keyptir á uppboðum. örlög
bókarinnar eru eins og spegil-
myndaf sögu armensku þjóöar-
innar, að brotna I mola sundrast
og dreifast og sameinast að
nýju. (þýttSKJ)
BlatátatalstaíalsBlátatátslatatatatalgQ
oc ALFA-LAVAL
MJÓLKUR-
framleiðendur!
Tækið sem beðið hefur verið
eftir er nú komið
Duovac 300
vinnur á þrefaldan hátt:
1. örvar kúna til að selja.
2. Mjólkar hana.
3. Hreytir hana.
Tryggir að kýrin sé alltaf eins mjólkuð
—og siðast en ekki sizt — að einn maður
getur annað fleiri tækjum.
DUOVAC 300 fyrirbyggir júgurskemmd
af völdum mjalta
Takmarkað magn —
Hafið samband sem fyrst
S.imb.md islenzkra samvinnutelag.i
VÉLADEILD
Armul.tJ Rt*yk|.tvik sirm Jb *
|Eiréi|ei|EirEilnrEilnlril5l5l5l5l5l5iai5l5l5l5l5
Hestaeigendur
Tamningastöðin á Þjótanda við Þjórsár-
brú tekur til starfa 6. nóvember.
Upplýsingar i sima (99)6555, milli kl. 19 og
22 á kvöldin