Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 45

Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 45
tækifæri 100 ný og vel launuð störf ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - A LC 3 29 61 06 /2 00 6 Búðareyri 3 730 Reyðarfjörður Sími 470 7700 www.alcoa.is Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu IMG Mannafls-Liðsauka, www.mannafl.is og láta ferilskrá fylgja með. Frekari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur (sigurlaug@img.is) og Helgu S. Guðmundsdóttur (helgas@img.is) hjá IMG Mannafli-Liðsauka. Störfin henta jafnt konum sem körlum Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli. Starfsumhverfi er hannað þannig að öll störf henta jafnt báðum kynjum og stefnt er að góðri aldursdreifingu starfsmanna. Almennar kröfur sem gerðar eru til allra starfsmanna: •Færni í mannlegum samskiptum •Vilji til að starfa í teymum með jafningjum •Jákvæðni og virðing fyrir öðrum •Vilji til að leita stöðugra endurbóta •Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum •Vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni Guðný Björg Hauksdóttir sér um ráðningar hjá Alcoa Fjarðaáli. Þitt Við leitum að góðu fólki í fjölbreytt framleiðslustörf sem felast meðal annars í stjórnun framleiðslutækja, framleiðslukerfa og farartækja. Unnið er samkvæmt verkferlum í teymum á mismunandi vinnustöðvum. Framleiðslustarfsmenn munu jafnframt vinna við ýmis konar stoðferli. Unnið verður á vöktum þegar álframleiðsla hefst. Þegar framleiðslustarfsmaður hefur fengið þjálfun og vottun til að vinna sjálfstætt á tilskildum fjölda starfsstöðva eru viðmiðunarlaun yfir árið um 3.732.000 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu. Við leitum að fagmenntuðum rafvirkjum og vélvirkjum til að sinna fyrirbyggjandi viðhaldi sem á að tryggja áreiðanleika framleiðslunnar og hámarka um leið nýtingu og endingu tækjabúnaðar. Unnið er í teymum með öðrum starfsmönnum fyrirtækisins. Viðmiðunarárslaun iðnaðarmanns með sveinspróf og þriggja ára starfsreynslu í faginu, sem vinnur við viðhaldsstörf hjá Alcoa Fjarðaáli og hefur lokið innri vottun, geta orðið um 4.915.000 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf í október 2006 eða síðar. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní. 3.732.000 kr. í árslaun Framleiðslustarfsmenn 4.915.000 kr. í árslaun Rafvirkjar og vélvirkjar Nánari upplýsingar um launakjör á heimasíðu Alcoa Fjarðaáls, www.alcoa.is - undir starfsmannamál. ATVINNA LAUGARDAGUR 3. júní 2006 5

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.