Fréttablaðið - 03.06.2006, Síða 74

Fréttablaðið - 03.06.2006, Síða 74
 3. júní 2006 LAUGARDAGUR42 STÓRA SVIÐIÐ Halldór í Holly- wood eftir Ólaf Hauk Símonar- son. Leikstjóri: Ágústa Skúla- dóttir. Túski ld ings- óperan eftir Bertolt Brecht og Kurt Weill. Leikstjóri: Stef- án Jónsson. Virkjunin eftir Elfriede Jelinek. Leikgerð: María Kr ist jánsdót t i r. Leikstjóri: Þór- hildur Þorleifs- dóttir. Átta konur eftir Robert Thomas. Aðlögun og söng- textar: Sævar Sigur- geirsson. Leikstjóri: Edda Heiðrún Backman. F a g n a ð u r eftir Harold Pinter. Leik- stjóri: Stefán Jónsson. KASSINN Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen. Leik- stjóri: Baltas- ar Kormákur. Umbreyting - ljóð á hreyfingu eftir Bernd Ogrodnik. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ Frelsi eftir Hrund Ólafs- dóttur. Leik- stjóri: Jón Páll Eyjólfsson. Eldhús eftir máli - Hvers- dagslegar hryll- ingssögur eftir Völu Þórsdóttur innblásnar af verkum Svövu Jakobsdót tu r. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Leitin að jól- unum eftir Þorvald Þor- steinsson og Árna Egilsson. Leikstjóri: Þór- hallur Sigurðs- son. LITLA SVIÐIÐ Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður! byggt á íslenskum þjóðsögum. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. FRUMSÝNINGAR ÞJÓÐLEIKHÚSSINS LEIKÁRIÐ 2005 - 2006 Fyrsta verk Tinnu eftir að hún var ráðin þjóðleikhússtjóri var að stokka upp í starfs- mannamálum stofnunarinnar og tókst henni að gera það í tiltölu- lega góðri sátt við starfsfólk. Breytingarnar voru ekki bundnar við reksturinn heldur náðu líka til verkefnavalsins, sem varð djarf- ara en gengur og gerist í Þjóðleik- húsinu auk þess sem sex ný íslensk verk fóru á fjalirnar. „Þjóðleikhúsið hefur mikil- vægu hlutverki að gegna sem lykil menningarstofnun í landinu og um leið hefur það víðtækar skyldur. Verkefnavalið verður að mínu viti að ráðast af listrænum metnaði en jafnframt þarf öll úrvinnsla að vera fagleg og úrvalið það fjöl- breytt að þangað hafi sem flestir eitthvað að sækja. Það sem ég tel þó mestu varða er að stuðla að nýsköpun í leiklist, fyrst og fremst með því að veðja á nýskrifuð verk og nýtt hæfileikafólk. Ég er stolt af því að á verkefnaskrá nýliðins vetrar voru ný innlend verk í meirihluta.“ Hún minnir á að Þjóðleikhúsið er ekki safn heldur lifandi lista- stofnun. „Vitanlega fylgir því áhætta að veðja á ný innlend verk. Með sama hætti getur það verið umtalsverð áhætta að veðja á erlenda höfunda sem ekki hafa fengið mikla umfjöllun eða kynn- ingu á Íslandi. En þá áhættu verð- ur þjóðleikhús að geta tekið innan skynsamlegra marka.“ Umdeild Virkjun Tinna tekur undir að pólitískur broddur hafi sannarlega verið áberandi í mörgum verka vetrar- ins, sem sé ekki óeðlilegt því lif- andi leikhús verði að taki púlsinn á samfélaginu. „Leikhúsið er í raun, eða getur að minnsta kosti verið, ákaflega sterkur samtíma- spegill. Það segir dæmisögur og þegar þær dæmisögur eiga sér áleitnar hliðstæður í samtíman- um, getur það orðið verulega afhjúpandi og þá um leið hápólit- ískt.“ Umdeildasta sýning leikársins er án efa Virkjunin eftir austur- ríska nóbelsskáldið Elfriede Jelin- ek sem sýnt var á Stóra sviðinu. Verkið er ekki aðeins hápólitískt heldur líka óhefðbundið miðað við það leikhús sem íslenskir áhorf- endur hafa átt að venjast, enda segir Tinna að tilgangur sýningar- innar hafi annars vegar verið að kynna ákaflega merkan höfund og um leið fyrstu konuna sem hefur hlotið bókmenntaverðlaun Nóbels fyrir leikritaskrif og hins vegar að kynna leikhúsgestum nýja aðferðafræði og nýjan skilning á möguleikum leikhússins sem mið- ils. „Við vissum að Virkjunin yrði umdeild og ákváðum að taka þá áhættu. Við vissum líka að það fólst í verkefnavalinu mikil áskor- un fyrir alla þá sem komu að und- irbúningi og vinnslu sýningarinn- ar. Að mínu viti vann leikhópurinn, undir styrkri stjórn Þórhildar Þor- leifsdóttur, umtalsverðan sigur á viðfangsefninu og skilaði glæsi- legri og hárbeittri sýningu. Ég hlýt þó að viðurkenna að okkur í Þjóðleikhúsinu mistókst að nokkru að vekja áhuga gesta leikhússins á þessum merka höfundi. Ef til vill eru leikhúsgestir hefðbundnir í skilningi sínum á leikhúsi og ekki alveg eins tilbúnir til að opna fyrir nýjungum og ég hafði ætlað; ef til vill var Virkjunin hreinlega of snemma á ferðinni.“ Gagnrýni verður að vera fagleg Þjóðleikhúsið hefur að margra mati ríkari skyldum að gegna en önnur leikhús og þótt óhætt sé að fullyrða að verkefnaval Þjóðleik- hússins í ár hafi einkennst af djörf- ung voru ekki allir ánægðir með afraksturinn. Súsanna Svavars- dóttir, leiklistarrýnir Fréttablaðs- ins, var til dæmis harðorð í grein sem birtist í blaðinu á dögunum og þótti leikárið leiðinlegt og mis- heppnað. Tinna segist vita að væntingar fólks til Þjóðleikhússins geti verið margvíslegar og oft æði persónu- bundnar. „Það er aldrei hægt að gera svo öllum líki, en þegar kemur að umfjöllun um leiklist á opinberum vettvangi verða menn að kunna að skilja á milli tilfinn- ingasemi og faglegrar umfjöllun- ar. Mér finnst mjög mikilvægt að fjölmiðlar á borð við Fréttablaðið, sem fara víða og eru áberandi, geri þá kröfu til þeirra sem þeir ráða til þess að fjalla um leiklist að þeir taki starf sitt alvarlega og sinni því af eins mikilli fag- mennsku og kostur er. Annað er í raun lítilsvirðing og dónaskapur við Þjóðleikhúsið og þá sem þar starfa. Áhorfendur vilja líka geta treyst því að það sem stendur á prenti um sýningar leikhússins sé að einhverju marki vitræn úttekt, byggð á góðri yfirsýn og skilningi á möguleikum leikhússins. Aðeins þannig getur gagnrýni þjónað til- gangi sínum og um leið varpað ljósi á stöðu leiklistarinnar í land- inu.“ Minni sviðin slógu í gegn Á heildina litið var aðsóknin í Þjóðleikhúsið í vetur góð að sögn Tinnu, þótt hún hefði viljað sjá fleiri gesti á Stóra sviðinu. „Það má þó segja að minni sviðin hafi slegið í gegn á kostnað Stóra sviðs- ins. Í Kassanum og á Smíðaverk- stæðinu hafa allar sýningar fengið frábæra dóma og afburða aðsókn, en sýningar Stóra sviðsins hafa ekki allar verið að gera sig eins vel. Á því eru þó undantekningar og Túskildingsóperan gekk til að mynda fyrir fullum sal allt sýn- ingartímabilið, eins hlaut Halldór í Hollywood fína aðsókn og Fagn- aður fór vel af stað. Listrænt séð er því afrakstur leikársins með eindæmum góður og það hlýtur að vega nokkuð, þó í heildina gefi góð aðsókn á Stóra sviðið óneitanlega meira af sér í efnahagslegu tilliti, en góð aðsókn á minni sviðin.“ Að mati Tinnu er það tímanna tákn að leikhúsgestir virðast í síauknum mæli sækja í minni rými og þá innilegu og áreynslu- lausu stemningu sem þau veita. „Þar er nálægðin við listamennina á sviðinu svo mikil að augnablikið, „núið“, verður næstum því áþreif- anlegt. Slík upplifun er einstök og þakklátt mótvægi við tilfinninga- leysi og síbylju miðla á borð við sjónvarp. Það hefur oft reynst erf- iðara að skapa þessa innilegu stemningu á Stóra sviðinu, það liggur í hlutarins eðli, það er þó alls ekki einhlítt.“ Skuldum hlaðin stofnun Auk þess að hafa hrist upp í verk- efnavalinu gerði Tinna breytingar á sýningafyrirkomulagi Þjóðleik- hússins. Verkin eru nú sýnd þéttar en áður en því fylgja kostir og gallar. „Það hefur reynst vel í list- rænu tilliti. Sýningarnar keyrast upp í fágaða rútínu á skömmum tíma, en á móti höfum við orðið vör við að fólk hefur í sumum til- fellum misst af sýningum sem það ætlaði að sjá, einfaldlega vegna þess að sýningatímabilið var styttra en það hefur átt að venj- ast. Með því að þétta sýningar og beina starfinu að því að sinna einni sýningu í einu á hverju sviði höfum við líka verið að leita leiða til að skera niður kostnað, þar sem öll aðstaða er með þeim hætti í húsinu að geymslupláss fyrir leik- myndir er lítið sem ekkert. Það hefur í gegnum tíðina kostað mikla fjármuni að þurfa nánast að taka leikmyndir niður í frumparta til að koma þeim fyrir og geta geymt þær milli sýningarkvölda á mis- munandi leikritum. Við ætlum þó að leita leiða til að gefa gangsýn- ingum aukið rými næsta vetur með því að láta sýningatímabilin skarast meira. Það er þó tilfellið að það er almennt mjög erfitt að ná nokk- urri hagræðingu í rekstri Þjóð- leikhússins þar sem öll tækniað- stað baksviðs er löngu orðin úrelt að svo til öllu leyti og kallar á stöð- ugar bráðabirgðalausnir og redd- ingar. Það er löngu tímabært að taka á þeim málum af myndar- skap. Það sem þótti fullgott fyrir um áttatíu árum þegar Guðjón Samúelsson hannaði Þjóðleikhúsið Kraftaverk á hverjum degi Óhætt er að segja að Tinna Gunnlaugsdóttir hafi hrist upp í Þjóðleikhúsinu á sínu fyrsta ári sem leikhússtjóri. Verkefnavalið og efnistökin voru venju fremur djörf en að sama skapi umdeild. Bergsteinn Sigurðsson ræddi við þjóðleikhússtjóra um leikárið sem er senn á enda. Ef til vill eru leikhúsgestir hefðbundnir í skilningi sínum á leikhúsi og ekki alveg eins tilbúnir til að opna fyrir nýjungum og ég hafði ætlað; ef til vill var Virkjunin hreinlega of snemma á ferðinni. Skuldir hafa hlaðist upp með tímanum og það verður að segjast eins og er að hann var ansi þungur bagginn sem mér sem stjórnanda var gert að axla þegar ég tók við embætti. Ég er enn með þann bagga á bakinu og sé ekki hvernig mér á að takast að jafna stöðuna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.