Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 79

Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 79
LAUGARDAGUR 3. júní 2006 47 edda.is Spennandi, skemmtilegar, frumlegar ... og komnar í kilju! „Æsispennandi glæpasaga sem gefur lesandanum færi á að taka þátt í að leysa flókna morðgátu.“ Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljósið „Viktor grípur lesandann traustataki, tekur á rás og gerir sig ekki líklegan til að sleppa.“ Bergsteinn Sigurðsson, Fbl. „Frumlegasta íslenska skáldsaga síðan Tómas Jónsson metsölubók kom út.“ Sigurður Guðmundsson, myndlistarmaður „Ekta spennutryllir í anda Gamla testamentisins“ Gay Weathers WTVBC „Sagan um baróninn á Hvítárvöllum er heillandi saga.“ Halldór Guðmundsson, Fbl. „Baróninn er frábærlega vel skrifuð bók og söguleg skáldsaga eins og þær gerast bestar.“ Jón Ólafsson, Mbl. „Ástarsaga og hetjusaga ... vel skrifuð og umfram allt ágæt sagnaskemmtun.“ Skafti Þ. Halldórsson, Mbl. „Traust söguleg skáldsaga, ævintýra- leg og spennandi.“ Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljósið Tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2005 Í sumar verður starfræktur sveitamarkaður í gamla sláturhús- inu við Laxá í Leirársveit. Mark- aðurinn verður opinn alla sunnu- daga í sumar frá kl. 13-18. Fyrsti opnunardagur er um helgina en hann lendir reyndar á laugardegi. „Í fyrra var haldinn markaðsdag- ur í sláturhúsinu og þá var klikkað að gera enda stendur húsið á mjög góðum stað, alveg við þjóðveg- inn,“ segir Jóhanna Harðardóttir sem hefur umsjón með markaðn- um. Húsnæðið hefur staðið autt síðan hætt var að nýta það sem sláturhús fyrir nokkrum árum en í sumar lifnar heldur betur yfir staðnum. Boðið verður upp á ýmsar vörur á sveitamarkaðinum sem allar eiga það sameiginlegt að vera heimatilbúnar. Mikið verður um alls konar handverk og list- muni og einnig verður hægt að kaupa ýmiss konar matvæli beint frá bóndanum eins og brodd, sultu, egg, reyktan fisk, grænmeti og heimabakað brauð og kökur. Huggulegt kaffihús verður einn- ig starfrækt á staðn- um þegar markaður- inn er opinn og þar verður t.d. boðið upp á heimagerðan ís frá Holtsseli í Eyjafirði. Hús- næðið sem markaðurinn hefur til afnota er nærri 400 fermetrar svo það er nægt pláss fyrir handverksfólk og bændur sem vilja selja afurðir sínar á staðnum. Sjálf ætlar Jóhanna að selja útskorin drykkj- arhorn og egg úr landnáms- hænum og hvetur hún alla þá sem eru á ferðinni milli Reykjavíkur og Borgarness að stoppa á markaðnum, kíkja á úrvalið og fá sér kaffisopa. -snæ Sveitamarkaður í sláturhúsi JÓHANNA HARÐARDÓTTIR KJALNES- INGAGOÐI Hefur umsjón með markaðnum. Í árslok verða fjörutíu ár liðin frá því að tónlistardeild Bókasafns Hafnarfjarðar hóf að lána út plöt- ur. Deildin, sem er hin stærsta sinnar tegundar, var lengi vel sú eina á íslensku almenningsbóka- safni sem gerði slíkt. Á deildinni er að finna um það bil 35.000 safngögn; vínylplötur, geisladiska, myndbönd, DVD- mynddiska, bækur og nótur. Nán- ast allt er þetta til útláns. Aðeins Ríkisútvarpið á stærra vínylplötu- safn en það er aftur á móti ekki til útláns hjá þeim. „Þetta er allt saman að þakka Friðriki Bjarnasyni tónskáldi og fyrrverandi organista í Hafnar- firði og eiginkonu hans Guðlaugu Pétursdóttur. Þau arfleiddu Hafn- arfjarðarbæ að stórum hluta eigna sinna með því skilyrði að það yrði stofnað þetta safn,“ segir Valdi- mar Pálsson, forstöðumaður tón- listardeildarinnar. „Þau eiga heið- urinn að þjóðsöng okkar Hafnfirðinga, Þú hýri Hafnar- fjörður. Friðrik samdi líka lög á borð við Í Hlíðarendakoti og Hafið bláa hafið. Það eru ekki allir sem vita hver maðurinn var en þau hjónin gerðu bænum og okkur mikið gagn með þessari gjöf sinni,“ segir Valdimar, sem hefur starfað á bókasafninu í sex ár. Á heimasíðu Bókasafns Hafn- arfjarðar, www.hafnarfjordur.is/ bokasafn/, er uppfært mánaðar- lega allt það nýja efni sem kemur inn. Ætti hinn almenni tónlistará- hugamaður að finna eitthvað við sitt hæfi því úrvalið er mikið. Lögð er mikil áhersla á jaðartónlist hvers konar auk sígildrar tónlist- ar og alltaf er að bætast við úrval- ið í heimstónlist, djassi, klassík og indí-rokki, svo eitthvað sé nefnt. -fb Lánað tónlist í fjörutíu ár BÓKASAFN HAFNARFJARÐAR Innan Bóka- safns Hafnarfjarðar er að finna stærstu tón- listardeild landsins á almennu bókasafni. Hljómsveitin Lady & Bird,spilar á Barnum í kvöld en tónleikarnir eru loka- hnykkurinn á frönsk/ íslenskum skemmti- kvöldum. Þess má geta að fyrsta breiðskífa Lady & Bird verður gefin út í Banda- ríkjunum í júní en hún kom út hér á landi fyrir þremur árum. Lady & Bird spila í kvöld BARÐI OG KEREN Tónleikar Lady & Bird verða haldnir á Barnum í kvöld.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.