Fréttablaðið - 03.06.2006, Síða 85
LAUGARDAGUR 3. júní 2006 53
Anna Wintour er mikill áhrifa-
valdur innan tískuheimsins enda
ritstýrir hún einu þekktasta tísku-
riti í dag, hinu ameríska Vouge.
Hún á því greiða leið að þekktustu
hönnuðunum og á ekki erfitt með
að klæða sig samkvæmt nýjustu
straumum og stefnum. Það má
segja að hún fái tískuna beint í æð
á hverjum degi.
Hún byrjaði í blaðamennsku
árið 1970 fyrir breska blaðið Harp-
ers & Queen og hefur síðan þá
unnið hjá Vogue í Bretlandi og í
Ameríku. Wintour er umdeild
kona og hefur hún meðal annars
verið kölluð djöfullinn holdi
klæddur enda ekki sparsöm á
gagnrýni sjálf. Wintour er ekkert
sérstaklega tilraunakennd í klæða-
burði og þekkt fyrir settlegan og
fínan stíl. Hún er hrifin af hátísk-
umerkjum á borð við Prada, Dior
og Chanel. Wintour er oftar en
ekki með svört sólgleraugu því
hún segir að þau skýli henni fyrir
ljósi myndavélanna.
Djöfullinn holdi klæddur
WINTOUR ÁSAMT DÓTTUR SINNI Hér hún
í fallegum grænum satín kjól með brúna
hálsfesti. Hún tekur dóttur sína oft með sér
á tískuviðburði.
BER AF Í GLÆSILEIKA Wintour er daglegur
gestur á rauða dreglinum og hér er hún
í fallegum svörtum kjól og skemmtilegri
hvítri kápu.
MEÐ BEITTAN SVIP Ritsjórinn er þekktur
fyrir harða gagnrýni og er skörp klipping
hennar eins konar vörumerki.
SETTLEG OG DULARFULL Hér er hún í dragt,
sem er eflaust úr smiðju Chanel, með
skinn um hálsinn. Hún hefur verið gagn-
rýnd harðlega af dýraverndunarsamtökum
fyrir að klæðast ekta loðfeldum.
Paul Smith var aðeins 15 ára gam-
all þegar hann hóf störf í tísku-
heiminum. Smith byrjaði sem
sendill í vöruhúsi en hefur jafnt
og þétt unnið sig upp, svo vægt sé
til orða tekið. Hann er í dag meðal
fremstu hönnuða Bretlands,
þekktur fyrir vandaða og flotta
vöru. Smith selur vörur sínar um
allan heim og
hér á landi er
það verslunin
Kultur Menn í
kringlunni sem
selur herra-
fatalínu hans.
Smith byrj-
aði á að selja
eingöngu
herrafatnað en
árið 1994 bjó
hann til dömu-
línu. Smith er
hugmyndarík-
ur hönnuður og
undir hans nafni er ilmvatnslína,
innanstokksmunir og alls konar
fylgihlutir. Vöru-
merkið hans
eru marglit-
ar rendur
sem hann
notar
óspart í
vörurnar
sínar. Þar
sem heims-
meistara-
keppnin í
fótbolta er á
næsta leyti
hefur Smith
hannað eins
konar fótboltalínu sem sam-
anstendur af hátísku fótbolta-
treyjum og fallegum leðurboltum.
Vor og sumarlína hans einkennist
af blómamunstri, jafnt hjá herr-
um sem dömum. - áp
Veit hvað
hann syngur
BLÓMLEGT LÍF Skyrta
úr vor- og sumarlínu
hans árið 2006.
RÖNDÓTTUR MINIBÍLL Þessar rendur eru
vörumerki Paul Smiths og er fáanlegt alls
konar dót með þessu sama munstri.
PAUL SMITH SJÁLFUR Hann er skemmti-
legur skopkarl og kann að gera grín að
sjálfum sér.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
G
ET
TY
IM
A
G
ES
NÝJASTA TÍSKA Í FÓTBOLT-
UM Þennan skemmtilega
rósótta fótbolta gerði
Smith sérstaklega fyrir
heimsmeistarakeppnina.