Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 88
56 3. júní 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
410 4000 | landsbanki.isTryggðu þér miða á betra verði á
landsbankadeildin.is eða ksi.is
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
30
07
06
/2
00
6
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
30
07
06
/2
00
6
mán. 5. júní kl. 19:15
mán. 5. júní kl. 19:15
mán. 5. júní kl. 19:15
mán. 5. júní kl. 20:00
þri. 6. júní kl. 19:15
Víkingur - Valur
ÍA - Fylkir
Grindavík - ÍBV
FH - Keflavík
KR - Breiðablik
lau. 3. júní kl. 14:00
lau. 3. júní kl. 16:00
mán. 5. júní kl. 14:00
mið. 7. júní kl. 19:15
FH - KR
Valur - Breiðablik
Þór/KA - Fylkir
Stjarnan - Keflavík
4. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA
5. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA
> KA og Þór sameinuð?
Viðæður eiga sér stað þessa dagana um
sameiningu Þórs og KA í handboltanum.
Hannes Karlsson, formaður hand-
knattleiksdeildar KA, segir í samtali við
heimasíðu félagsins að engin ákvörðun
liggi fyrir en forsendan fyrir sameiningu
er sú að keppt verði undir kennitölu
KA enda sé KA með keppnisrétt í efri
deildinni en Þór
ekki. Ef af sam-
einingunni verður
er talað um að
liðið muni heita
hinu frumlega
nafni Akureyri
og svo eru
hugmynd-
ir um
að senda
sameiginlegan 2.
flokk í 1. deildar-
keppnina.
HANDBOLTI Fylkismenn ætla sér
stóra hluti í handboltanum á
næstu leiktíð og leggja ekki árar
í bát þó þeirra besti maður á síð-
ustu leiktíð, Heimir Örn Árna-
son, sé farinn til Danmerkur.
Fylkir gekk í gær frá samn-
ingi við Björn Guðmundsson sem
hefur leikið með Víkingi síðustu
ár. Stóra fréttin er Árbænum er
þó sú að liðið er langt komið með
að landa samningi við úkraínsk-
an landsliðsmann sem leikur í
þýsku Bundesligunni. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins heit-
ir leikmaðurinn Igor Andryus-
chenko og spilar hann með Tus
Lubbecke líkt og Þórir Ólafsson.
Þarna er á ferð geysilega öfl-
ugur leikmaður sem getur leikið
allar stöður. Hann er 26 ára gam-
all og 196 sentimetrar á hæð.
Mikil og kröftug rétthent skytta.
Að sögn Sigmundar Lárusson-
ar hjá Fylki er ætlunin að styrkja
hópinn enn frekar en þess má
geta að Fylkir var einnig á eftir
FH-ingnum Vali Arnarsyni en
hann ætlar væntanlega að spila
áfram með FH. - hbg
Fylkismenn safna liði í handboltanum:
Úkraínskur landsliðs-
maður á leið í Árbæinn
Á LEIÐ TIL FYLKIS? Úkraínumaðurinn Igor Andryuschenko mun eflaust sóma sér vel hjá
Fylki. Hann er hávaxinn, öflug, rétthent skytta.
HANDBOLTI Leikur Íslands og Dan-
merkur á þriðjudaginn fer fram á
Akureyri en það er fyrir tilstilli
HSÍ og Flugfélags Íslands sem
býður öllum Akureyringum á leik-
inn. 1500 miðar eru í boði og er
hægt að nálgast þá á skrifstofu
flugfélagsins á Akureyrarflugvelli
frá klukkan 10.00 í dag.
„Þetta er mikil ánægja fyrir
okkur að koma að þessu verkefni.
Við höfum komið að þessu með
landsliðinu undanfarin ár og það
er gaman að geta stutt landsliðið
sem slíkt og ekki síst að geta stuðl-
að að því að handboltinn eflist á
landsbyggðinni,“ sagði Árni Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Flugfé-
lags Íslands, við Fréttablaðið í
gær. „Aðrar íþróttagreinar hafa
ekki verið jafn duglegar að þessu
og við hvetjum bara aðra til að
taka HSÍ sér til fyrirmyndar.“ - hþh
Flugfélag Íslands:
Býður á völl-
inn á Akureyri
Í dag klukkan 16 taka Valsstúlkur á
móti stöllum sínum frá Kópavogi
þegar Breiðablik mætir í heimsókn á
Valbjarnavöllinn. Liðin eru í efsta sæti
Landsbankadeildarinnar og má því
búast við hörkuleik.
„Leikurinn leggst mjög vel í mig, maður
er í þessu fyrir svona stórleiki en ég held
að þetta verði fyrst og fremst baráttu-
leikur. Það má segja að þetta sé barátta
um völdin þar sem þetta eru tvö efstu
liðin og spurning um hvort liðið heldur
efsta sætinu,“ segir Elísabet Gunnars-
dóttir, þjálfari Valsstúlkna, fyrir leikinn.
Margir vilja meina að með þróun
kvennaknattspyrnunnar, sé þetta aðeins
annar af tveimur úrslitaleikjum Vals og
Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn.
„Ég er nú ekki sammála því, ég held að
það eigi meira eftir að gerast í þessu
móti. Ég held að KR hafi ekki sungið sitt
síðasta og ég er pottþétt á því að þær
eiga eftir að hrifsa stig af okkur topplið-
unum. Það kemur mér á óvart hversu
illa þær hafa byrjað mótið og það er út í
hött að þær séu í þessari stöðu. Þær eru
með gott lið og það er alveg
ljóst að þær eiga
eftir að þokast upp
töfluna,“ sagði Elísabet
en KR er aðeins með þrjú stig
eftir þrjá leiki.
Í byrjunarliði Vals í dag
verður þýska stúlkan Viola
Oderbrecht, en hún á að
baki 30 leiki fyrir þýska
landsliðið. „Mér lýst
rosalega vel á hana,
hún er að koma sterk inn. Við gerum
miklar væntingar til hennar en það er
ákveðin áhætta að setja hana strax inn
í svona leik. Hún er frábær leikmaður
en maður veit ekki hvernig það kemur
út að setja hana svona strax inn,“ sagði
Elísabet um landsliðskonuna, en þjálfar-
inn er hvergi bangin fyrir leikinn.
„Við getum alveg unnið þetta
Blikalið, á góðum degi í það
minnsta. Það er þó ekkert
mikið á milli þessara
liða og eins og staðan er
núna eru þetta tvo sterkustu
liðum í deildinni. Vonandi verð-
ur þetta skemmtilegur og
spennandi leikur og ég á
ekki von á neinu öðru,“
sagði Elísabet að lokum.
LANDSBANKADEILD KVENNA: STÓRLEIKUR VALS OG BREIÐABLIKS FER FRAM Í DAG
Baráttan um völdin á Valbjarnavelli
HANDBOLTI Guðmundur Guð-
mundsson kemur til með að vera
Alfreði Gíslasyni landsliðsþjálf-
ara til halds og traust í verkefnum
íslenska landsliðsins á næstu
vikum en Guðmundur var lands-
liðsþjálfari á árunum 2001 til 2004.
Framundan eru tveir æfingaleikir
við Dani, á Akureyri á þriðjudag-
inn og í Laugardalshöll á fimmtu-
daginn en fyrri leikurinn við Svía
verður í Globen í Stokkhólmi laug-
ardaginn 11. júní og hinn síðari í
Laugardalshöll laugardaginn á
þjóðhátíðardaginn 17. júní
„Minn gamli vinur og herberg-
isfélagi frá landsliðstímanum
kemur inn í þetta. Hann verður
aðstoðarmaður minn og betur sjá
augu en auga. Ég hef oft sagt að ég
sé erfiður að vinna með fyrir
aðstoðarþjálfara en við þekkjum
hvorn annan mjög vel. Við höfum
verið í miklu sambandi og erum
með svipaða skoðun á því hvernig
á að spila handbolta. Ég held að
hann hafi verið besti kosturinn í
stöðunni. Við verðum að gera allt
sem við mögulega getum gert til
að leggja Svíana,“ sagði Alfreð við
Fréttablaðið í gær.
Þetta leggst einstaklega vel í
mig og ég hlakka til að vinna aftur
með Alfreð. Ég mun koma að
greiningu á andstæðingnum og
aðstoða við undirbúning liðsins í
heild sinni. Ég er auðvitað öllum
hnútum kunnugur í þessum málum
og þekki alla strákana í liðinu,“
sagði Guðmundur.
„Ég lít á það sem ákveðinn heið-
ur í því að til mín sé leitað og
finnst það mög jákvætt. Við erum
að þjálfa á mjög svipaðri línu og
það er alltaf gott þegar þannig
menn vinna saman. Þetta snýst
bara um að vinna þessa vinnu eins
vel og hægt er og við þurfum á
öllum okkar kröftum að halda til
að komast áfram. Þetta kemur
kannski frekar á óvart en ég gat
ekki sagt nei þegar til mín er leit-
að,“ bætti Guðmundur við.
Danir koma hingað til lands
með sterkt lið en fyrri leikurinn
fer fram í heimabæ Alfreðs, Akur-
eyri, á þriðjudaginn. „Það er mjög
gaman fyrir mig að fara til Akur-
eyrar og spila þar. Allt annað en
troðfull höll á Akureyri væru klár-
lega mikil vonbrigði. Fyrir mig er
skemmtilegt að spila minn alvöru
landsleik sem þjálfari að byrja á
heimavelli mínum,“ sagði Alfreð,
sem hefur fylgst grannt með
Svíunum eftir að hann tók við sem
landsliðsþjálfari.
hjalti@frettabladid.is
Guðmundur við hlið Alfreðs í Svíþjóð
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Íslandsmeistara Fram, mun aðstoða Alfreð Gíslason landsliðsþjálfara í
umspilsleikjunum tveimur gegn Svíum. Alfreð segir að allir leggji sitt á vogarskálarnar til að leggja Svíana.
LOKAUNDIRBÚNINGUR HAFINN Alfreð Gíslason fer með lærisveina sína í landsliðinu norð-
ur eftir helgina þar sem liðið mætir Dönum í fyrsta leik Alfreðs sem landsliðsþjálfari.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Fjölskylduhátið á Val-
bjarnarvelli
Valur og Landsbankinn standa fyrir
fjölskylduskemmtun í dag fyrir stórleik
Vals og Breiðabliks í kvennaboltanum.
Fjörið hefst kl. 14 og leikurinn er kl. 16.
Veitingar eru í boði og skemmtanir fyrir
alla aldurshópa. Síðan er frítt á leikinn.
Gaman að sjá góða umgjörð í kringum
kvennalið Vals eftir dapra byrjun og
vonandi það sem koma skal.