Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 94

Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 94
 3. júní 2006 LAUGARDAGUR62 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 NÚNA BÚIÐ Nýr humar, grillpinnar sólþurrkaður saltfiskur opið alla laugardaga 11-14 Að raka sig. Alskegg eða sexí broddar − karlmenn bæjarins eru hárprúðir þessa dagana og greini- legt að skeggið er inni. Kokteilar. Nú er sumarið á leiðinni og þá er um að gera að blanda sér sumarlega kokteila í miðnætursólinni. Á Netinu er fullt af uppskriftum! Motorola Razr síminn. V3-síminn frá Motorola hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum og fæst nú í nokkrum litum þar. Síminn er nýkominn til landsins, reyndar bara í svörtu en alveg jafn töff, grannur og spengi- legur. Sundlaugar. Úr því að hitastigið er ekkert að hækka er um að gera að skella sér í sund og heitu pottana á sólardögum. Þannig er hægt að ná ágæt- isbrúnku á náttúrulegan hátt þrátt fyrir 8 stiga hita. Sterkar strípur. Af Ungfrú Ísland að dæma er greini- legt að málið er að vera með heillit, annað hvort alveg ljóshærð eða alveg dökkhærð. Þó er alltaf flott að setja penar náttúrulegar strípur í hárið til þess að fá smá hreyfingu í það. Silvía Nótt. Silvía var töff, en nú er komið nóg. En Silvía er hæfileika- rík stúlka og hlýtur að finna sér eitthvað betra að gera. Arfleifð hennar er fólgin í glystískunni, ekki tónlistinni eða talsmátanum. LÁRÉTT: 2 plat 6 hæð 8 drulla 9 starfsgrein 11 leita að 12 yfirráð 14 híbýli sjávardýra 16 nafnorð 17 flana 18 tunna 20 í röð 21 lokka. LÓÐRÉTT: 1 létu 3 samtök 4 hlykkjast 5 augnhár 7 skemmtun 10 kvenmannsnafn 13 geislahjúpur 15 óbundinn 16 til sauma 19 til. LAUSN: LÁRÉTT: 2 Gabb, 6 Ás, 8 Aur, 9 Fag, 11 Gá, 12 Umráð, 14 Kóral, 16 No, 17 Asa, 18 Áma, 20 Tu, 21 Laða. LÓÐRÉTT: 1 Gáfu, 3 Aa, 4 Bugðast, 5 Brá, 7 Samkoma, 10 Gró, 13 Ára, 15 Laus, 16 Nál, 19 Að. Nýjasti bar bæjarins, Barinn á Laugavegi 22, skartar skemmti- legum veggskreytingum sem vakið hafa eftirtekt gesta. Lista- mennirnir sem heiðurinn eiga að verkunum heita Guðmundur Hall- grímsson og Friðrik Svanur Sig- urðarson, betur þekktir sem Mundi og Morri, en þeir nema báðir graf- ískra hönnun við Listaháskóla Íslands. Verkin sem um ræðir eru þrjú. Eitt er í stigaganginum sem liggur upp á þriðju hæðina og sýnir það konu horfa girndaraug- um á epli á meðan hárið á henni flaksast upp allan vegginn. „Mynd- in er af Evu í aldingarðinum og sýnir syndafallið. Okkur fannst þessi saga mjög viðeigandi sem þema í veggskreytingu á skemmti- stað þar sem margar syndir eiga líklega eftir að verða framdar hér inni,“ segir Morri. Hinar tvær myndirnar eru á miðhæðinni og eru einnig trúartengdar. Önnur þeirra sýnir prest sem er að biðj- ast fyrir og hin sýnir slökkviliðs- mann að kljást við loga helvítis. „Við erum samt hvorugir sérstak- lega trúaðir,“ ítrekar Mundi og segir að myndin af syndafallinu hafi verið útpæld og mikil vinna lögð í hana á meðan hinar mynd- irnar tvær hafi verið unnar meira spontant og án fyrirfram gefinn- arútkomu. Salernin á þriðju hæðinni hafa einnig verið skreytt en verkin þar inni eru eftir bandaríkjamann að nafni Skyler. Þannig er kvennaklós- ettið alsett hundum en strákarnir horfa á sökkvandi bát og þung- brýndar verur meðan þeir pissa. Mundi og Morri hafa annars komið víða við þegar listin er ann- ars vegar. Morri á t.d. heiðurinn að veggskreytingunum í bakgarði Dillon og Mundi er á kafi í fata- hönnun og hannaði m.a. skreyting- una á metanstrætisvögnunum sem keyra um götur borgarinnar. Meiri samvinna er á döfinni hjá strákun- um því framundan er sýning á sex- tán verkum þar sem klámmyndir og ástarsögur koma mikið við sögu en sýningin verður að öllum lík- indum fljótlega sett upp í verslun- inni Kronkron. Gaman er líka að segja frá því að strákarnri hafa nú þegar fengið tilboð um fleiri vegggskreytingar í kjölfar verk- anna á Barnum. snaefridur@frettabladid.is LISTAMENNIRNIR MUNDI OG MORRI: SKREYTTU VEGGINA Á BARNUM Syndafall í stiganum FLOTTUR VEGGUR Tvíeykið Mundi og Morri við vegginn góða á Barnum sem sýnir Evu þar sem hún er að láta freistast af eplinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FRÉTTIR AF FÓLKI Breytingar eru fyrirhugaðar á dagskrá útvarpsstöðvarinnar X-ins 977. Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni eru Egill Einarsson og félagar í Köllunum.is komnir með þátt á stöðinni á laugardögum. Nú um mánaðamótin rann Helvít- is morgunþátturinn sitt skeið á enda en samningur við stjórnendur þáttarins, Gunnar Sigurðsson og Viðar Pétursson, var ekki endurnýjaður. Þorkell Máni Pétursson leysir þá félaga af á morgunvaktinni fyrst um sinn en Frosti Logason dagskrárstjóri vinnur nú hörðum höndum að því að endurskipuleggja dagskrána. Búast má við nýrri og sumarlegri dagskrá X-ins í næstu viku. Þetta var því ekki góð vika fyrir Gunnar Sigurðsson, eða Gunna samloku eins og hann er oft kallaður, því eins og Fréttablaðið greindi frá í gær verða Strákarnir ekki á dagskrá Stöðvar 2 næsta vetur. Gunnar og Atli Albertsson hafa komið ferskir inn í Strákana í vetur en fyrirhugaðar breytingar gera ekki ráð fyrir þeim áfram í félagi við Sveppa, Audda og Pétur. Ekki er alveg útséð með að þeir félagar muni áfram birtast á skjám lands- manna þó ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Margaret Beckett 2 Mikael Torfason 3 Sleater-Kinney HRÓSIÐ... fær Valgeir Sigurðsson sem stjórnaði nýverið upptökum á nýjustu plötu Wills Oldham. Í sumar verður starfræktur flóa- markaður á horni Klapparstígs og Laugavegs, nánar tiltekið í bak- garði Sirkus. Það er kvikmynda- gerðarkonan Silja Hauksdóttir og leikkonan Elma Lísa Gunnarsdótt- ir sem standa að markaðnum sem er opinn alla föstudaga og laugar- daga í sumar á milli kl. 12-18. „Það má finna glitrandi gim- steinaflíkur inn á milli gallabuxna og lopapeysna og því má segja að hér sé að finna fatnað sem hentar jafnt á laugardagskvöldi sem á mánudagsmorgni,“ segir Silja sem lofar fjölbreyttu fataúrvali. Síðastliðin tvö sumur hefur markaður verið rekinn á þessum sama stað en fyrsti markaðsdagur sumarsins var í gær og þá var boðið upp á förðun á þúsund kall og spákona spáði frítt fyrir gesti. Gestir mega búast við álíka uppákomum á markaðnum í sumar og verður þar einnig boðið upp á tískusýningar, tónlistaratriði, hár- greiðslu og fleira. Úrvalið á mark- aðnum í gær lofaði góðu en fyrir utan fatnað var þar að finna alls konar töskur, glingur, klúta, belti og svo má búast við því að ýmislegt annað dót slæðist með í bland við fötin. Öllum tískudrósum bæjarins er velkomið að leigja bás á mark- aðnum og er áhugasömum bent á að setja sig í samband við stelpurnar. -snæ Glitrandi flóamarkaður NOTAÐAR GERSEMAR Elma Lísa og Silja Hauks standa fyrir Sirkus-markaðnum í miðbæ Reykjavíkur alla föstudaga og laugardaga í sumar þar sem ýmsar tískutýpur selja fatnað og glingur. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI �������������� ������� ���������� ���� ���������� ����������� �������������� ��������������� 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Hópur fólks vinnur um þessar mundir að skipulagningu samtaka sem nefn- ast Framtíð Íslands. Um er að ræða frjáls félagasamtök af því tagi sem á ensku eru nefnd „think tank“ eða hugveitu eins og mætti ef til vill útleggja það á íslensku. Slík samtök búa jafnan yfir mikilli þekkingu á tilteknu sérsviði og veita jafnvel ríkisstjórnum ráðgjöf í viðkomandi málaflokki. Irma Erlingsdóttir, forstöðu- maður Rannsóknarstofu í kvennafræðum við HÍ, er sögð potturinn og pannan í skipulagningu Framtíðar Íslands, sem mun einblína á umhverfismál í víðum og þverpólitískum skilningi, allt frá nátt- úruvernd að atvinnustefnu. Ekki þarf að koma á óvart að þekktir áhugamenn um umhverfismál koma að samtökunum, þar á meðal Andri Snær Magnason rit- höfundur og María Ellingsen leikkona. Þessa dagana bera félagsmenn Framtíðar Íslands saman bækur sínar og munu væntanlega greina frá samtökun- um og tilgangi þeirra í fjölmiðlum á næstu dögum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.