Fréttablaðið - 13.07.2006, Blaðsíða 24
13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
Töluverðu munar á
afkomuspám viðskipta-
bankanna til FL Group,
Landsbankans og
Straums. Munur gæti
falist í mismunandi mati
á hlutabréfaeign eða
gjaldeyrisstöðu.
Greiningardeildir bankanna eru
ekki alltaf sammála þegar þær
spá fyrir um hagnað félaga í
Kauphöll Íslands. Í nýútgefnum
afkomuspám fyrir annan árs-
fjórðung greinir þær mjög á um
hver hagnaður Dagsbrúnar, FL
Group, Landsbankans og Straums-
Burðaráss verði.
Allnokkur munur er á spám
bankanna gagnvart FL Group en
3.482 milljónum króna munar á
hæsta og lægsta gildi. Þar gerir
KB banki ráð fyrir tæplega 1.398
milljóna króna hagnaði, Glitnir
reiknar með 721 milljón króna
tapi en Landsbankinn með 2.084
milljóna tapi.
Haraldur Yngvi Pétursson,
sérfræðingur hjá KB banka, telur
að frávikin í spánum um afkomu
FL Group liggi að stærstum hluta
í mismunandi forsendum á því
hvernig þróun á gjaldeyrisstöðu
FL Group á öðrum ársfjórðungi
varð. Hún var jákvæð í erlendri
mynt um 93 milljarða króna við
loks fyrsta ársfjórðungs. „Þetta
er eitthvað sem þeir hafa ekkert
tjáð sig um á opinberum vett-
vangi.“
Landsbankinn spáir ekki fyrir
um sína eigin afkomu en KB banki
spáir honum um 7.382 milljóna
hagnaði en Glitnir aðeins 2.934
milljónum. Þarna munar 4.448
milljónum króna. KB banki reikn-
ar með því að hreinar rekstrar-
tekjur LÍ verði 5,5 milljörðum
meiri en það sem Glitnir ráðgerir.
Þótt allir aðilar spái Straumi
tapi á öðrum ársfjórðungi munar
nokkru á spánum eða 1.600 millj-
ónum króna á hæstu og lægstu
spá. Munar þar mestu um hvernig
gengistap af hlutabréfaeign er
metið. „Með jafnstórt hlutabréfa-
safn og Straumur-Burðarás hefur,
sem þannig séð liggja ekki
nákvæmar upplýsingar fyrir um
samsetningu og hreyfingar, er
ekki við öðru að búast en að menn
meti stöðuna misjafnt,“ segir
Davíð Rúdolfsson, sérfræðingur
hjá KB banka. Hann á allt eins
von á að stjórnendur Straums nýti
sér tækifærið og færi niður við-
skiptavild er myndaðist við sam-
runa Burðaráss og Straums.
Þá spáir KB banki því að Dags-
brún hagnist um 328 milljónir
króna á fjórðungnum en bæði
Glitnir og Landsbankinn reikna
með sextíu til eitthundrað millj-
óna króna tapi. eggert@frettabladid.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.367 -0,42% Fjöldi viðskipta: 271
Velta: 3.137 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 63,00 +0,00% ... Alfesca
4,17 +1,71% ... Atlantic Petroleum 572,00 +0,70% ... Atorka 6,18
+0,49% ... Avion 33,00 +3,13% ... Bakkavör 46,10 +3,13% ...
Dagsbrún 5,60 -0,89% ... FL Group 17,00 +0,59% ... ... Glitnir
16,70 +0,60% ... KB banki 730,00 -0,41% ... Landsbankinn 20,10
+1,52% ... Marel 71,00 +1,14% ... Mosaic Fashions 15,50 +0,00%
... Straumur-Burðarás 16,40 +0,61% ... Össur 108,00 -0,46%
MESTA HÆKKUN
Bakkavör 3,13%
Avion 3,13%
Alfesca 1,71%
MESTA LÆKKUN
Dagsbrún 0,89%
Össur 0,46%
KB banki 0,41%
Við höldum með þér!
Frábær ferðaleikur fyrir alla fjölskylduna
Komdu v
ið á næs
tu Olís-s
töð
og fáðu
stimpil í
Ævintýr
akortið
– og æv
intýragl
aðning í
leiðinni
.
Vertu m
eð í allt
sumar!
STRAUMI SPÁÐ TAPI Greiningardeildir eru ósammála um hvert tap félagsins verði á öðrum
ársfjórðungi.
Ósamstíga í spánum
CA IB Securities mælir með kaup-
um á hlutabréfum í pólska fjar-
skiptafyrirtækinu Netia. Býst
verðbréfafyrirtækið við því að
Novator, sem er að stærstum hluta
í eigu Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, auki hlut sinn á næstu tólf
mánuðum en hlutur Novators í
Netia fór upp í 23 prósent í jan-
úar.
Novator hefur lýst yfir áhuga
sínum að auka hlut sinn í pólska
símafélaginu í þriðjungshlut.
CA IB setur verðmiðann 5,05
zloty á hvern hlut í Netia en síð-
asta gengi félagsins var 4,75. - eþa
Mæla með bréfum í Netia
Úr lauginni á leikinn
Forkólfar íslensks viðskiptalífs dvöldu í Berlín
um síðustu helgi og horfðu á úrslitaleik
heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu.
Frítt föruneyti KB banka kom snemma
og kíkti út á lífið daginn fyrir stórleik-
inn. Símamenn dvöldu sömuleiðis yfir
helgina. Bjarni Ármannsson, bankastjóri
Glitnis, mátti þó ekki vera að nein-
um léttúðugum leikaraskap heldur
flaug út á leikdag. Bjarni brá
hvergi út af hinni hefðbundnu
sunnudagsrútínu; tók góðan
skokkhring um morguninn og
skellti sér síðan í heitu pottana
í nýuppgerðri Seltjarnarnes-
laug. Bjarni var þó ekki lengi
í paradís því sundlaugarvörð-
urinn kom fljótlega og tilkynnti
honum að fluginu til Berlínar hefði
verið flýtt. Bjarni dreif sig þá upp úr en ekki fylgdi
sögunni hvort sundlaugarvörðurinn keyrði hann á
flugvöllinn.
Þrjár vaxtagreinar
Titringur er í atvinnulífinu yfir stýrivöxtum
Seðlabankans. Ljóst er að bankinn þarf að gæta
að hverju skrefi nú, enda ekkert grín að stýra
fyrirtækjum í slíku árferði. Í fjármála-
heiminum er haft í flimtingum að
aðeins þrjár atvinnugreinar þoli
það vaxtastig sem nú ríki í landinu.
Þetta eru vændi, fíkniefnasala og
fjárhættuspil. Alþjóðavæðingin
hefur gert það að verkum að
sérhæfing þjóða hefur aukist, en
það er tæplega stemmning fyrir
því að þessar þrjár atvinnugreinar
verði framtíðar framlag íslendinga
til alþjóðaviðskiptanna.
Peningaskápurinn...
ÓLÍKAR SPÁR GREININGARDEILDA
Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI
(Í milljónum kr.)
Glitnir KB Lands- Meðal-
banki bankinn tal
Dagsbrún -101 328 -60 56
FL Group -721 1.398 -2.084 -469
Landsbanki 2.934 7.382 0 5.158
Straumur -1.435 -3.100 -2.197 -2.244
MARKAÐSPUNKTAR...
Landsvirkjun hefur nánast lokið
fjármögnun ársins 2006 með útgáfu
skuldabréfs til tuttugu ára fyrir 150
milljónir evra sem samsvarar um 14,4
milljörðum króna. Franski bankinn IXIS
hafði umsjón með útgáfunni og fjárfest-
irinn er erlendur.
Í júní voru 44.720 skráðir atvinnuleysis-
dagar á landinu öllu. Það jafngildir því
að 2.029 manns hafi verið á atvinnu-
leysisskrá að meðaltali í mánuðinum
eða 1,3 prósent af áætluðum mannafla
á vinnumarkaði.
Útlán Íbúðalánasjóðs námu 4,3
milljörðum í síðasta mánuði. Hlutdeild
Íbúðalánasjóðs í nýjum lánum hefur
aukist eftir að bankarnir hækkuðu vexti
á íbúðalánum umfram vexti sjóðsins,
hertu á útlánareglum og lækkuðu við-
miðanir varðandi hámarksveðhlutföll.
Erlendar fjárfestingar Íslendinga
námu 439 milljörðum króna í fyrra
og hafa aldrei verið meiri. Fjár-
festingin ríflega tvöfaldaðist frá
árinu áður og hefur fimmtánfald-
ast frá árinu 2003.
Fram kemur á vef greiningar-
deildar Glitnis að þessar miklu
beinu fjárfestingar Íslendinga
erlendis skýrist að mestu leyti af
sókn íslenskra fjármálafyrirtækja
inn á erlenda markaði. Á síðasta
ári hafi verið mikið um stórar
fjárfestingar, til að mynda kaup
Kaupþings á Singer & Friedlander
banka og Bakkavarar á Geest. Þá
hafi Actavis verið umsvifamikið.
Ísland var í fyrra í sextánda
sæti á lista OECD yfir beinar fjár-
festingar erlendis, ofar en til að
mynda Finnar og Norðmenn. Þykir
það tíðindum sæta í ljósi þess að
Ísland er langminnsta OECD-
ríkið. - jsk
Metfjárfestingar erlendis
Fjárfestingar Íslendinga erlendis hafa fimmtánfald-
ast á þremur árum.
KAUP HANDSÖLUÐ Alls námu fjárfestingar Íslendinga erlendis 439 milljörðum árið 2005.
Sadakazu Tanigaki, fjármálaráð-
herra Japans, sagði í dag litla sem
enga þörf á því að hækka stýri-
vexti seðlabanka landsins. Stýri-
vextir í Japan hafa staðið í núll
prósentum í sex ár og hefur lengi
verið spáð um hugsanlega hækk-
un þeirra.
Tanigaki sagði ennfremur að
seðlabankinn ætti að slá á spár
manna um hækkun stýrivaxta og
gefa skýrar í skyn hvað bankinn
ætli að gera og hvort hann hyggist
gera breytingar á vaxtastefnu
sinni.
Fjármálasérfræðingar spá því
að seðlabanki Japans tilkynni um
25 punkta stýrivaxtahækkun á
föstudag. - jab
Engin þörf á hærri vöxtum
SADAKAZU TANIGAKI Fjármálaráðherra Jap-
ans segir enga þörf á að hækka stýrivexti í
landinu. MYND/AFP
Gulleign Seðlabanka Íslands nam
þremur milljörðum króna þann
30. júní samkvæmt efnahagsyfir-
liti sem bankinn hefur sent frá sér.
Frá áramótum hefur virði gullsins
hækkað um 940 milljónir króna.
Um síðustu áramót átti Seðla-
bankinn 64.179 únsur af gulli og
stóð gullverð í 513 dölum á únsu í
lok árs. Gullverð hefur hækkað
ríflega á árinu eða yfir fimmtung.
Gullið er varðveitt í Englands-
banka og er heimilt að leigja það
út gegn tekjum í gulli. - eþa
Þrír milljarðar króna í gulli