Fréttablaðið - 13.07.2006, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 13.07.2006, Blaðsíða 28
 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR28 og fólk ? Vissir þú?Að hin 14 vetra Vigdís frá Feti hefur verið eigendum sínum notadrjúg? Hún á átta skráð afkvæmi og af þeim eru þrjú komin með fyrstu einkunn. Nú síðast hlaut sonur henn- ar Vilmundur frá Feti hæstu einkunn í flokki fimm vetra stóðhesta með 8,56 í aðaleinkunn. www.worldfengur.com Anna Fjóla Gísladóttir ljós- myndari hefur tekið myndir af hestum frá því hún man eftir sér. Hún hefur nú tekið saman það besta úr safni sínu og gefið út bókina Hestur guðanna. „Þetta er bara árátta,“ segir Anna Fjóla um ástæður þess að hún tekur myndir af hestum. „Ég starfa sem ljósmyndari og hesta- mennskan er áhugamálið þannig að svona sameina ég þetta tvennt,“ útskýrir Anna Fjóla, sem valdi nafnið á bókina eftir lestur bókar- innar Faxi eftir Brodda Jóhannes- son. Þá hafði hún einnig kynnt sér Hávamál og gamla speki en þar er oft minnst á hesta. Anna Fjóla segir það allt öðru- vísi að taka myndir af hestum en fólki eða landslagi. „Það er miklu meira ögrandi,“ segir Anna Fjóla og líkir því við veiði í laxveiðiá. „Þetta er eins og spennan yfir því hvort áin gefi eða ekki. Maður kemur kannski að stóði í fallegu landslagi og stóðið rýkur í burtu, kemur allt of nálægt manni eða maður þarf að ligga og bíða. Maður stillir hestum ekki upp heldur þarf að vera tilbúinn,“ segir Anna Fjóla sem finnst þó mun auðveldara að taka myndir á sumrin þegar birtu nýtur og hrossin með fallegan, snöggan feld. Hesti guðanna er skipt í fimm kafla. Þann fyrsta prýða stemn- ingsmyndir af hestum. Annar kaflinn heitir Gangur lífsins þar sem folöld, stóðhestar og merar skipa stóran þátt. Þriðji kaflinn fjallar um hestinn og landið þar sem lögð er áhersla á ferðalög sem eru stór hluti íslenskrar hest- mennsku. Göngur og réttir nefnist fjórði kaflinn. Þar má sjá hestinn í sínu gamla hlutverki sem þarfasti þjónn bænda enda hentar hann vel til ferðalaga um erfið landsvæði. Lokakaflinn heitir Hesturinn og mannlífið. Anna Fjóla segist hafa í lengstu lög reynt að forðast að sýna myndir af einstökum hest- um í keppni heldur vildi halda bókinni almennri. Eftir vinnslu og útgáfu bók- arinnar fann Anna Fjóla fyrir nokkrum tómleika og hafði enga löngun til að taka myndir af hest- um og var farin að hafa áhyggjur af því að þörfin væri horfin. „En síðan fór ég á Landsmót hestamanna og sá flottan regn- boga og stúlku á hvítum hesti. Ég náði mynd af henni þar sem hún reið á móti mér með regnbog- ann yfir sér og það var rosalega góð tilfinning að finna að ég var komin í gang á ný,“ segir Anna Fjóla sem mun líklega taka ófáa hestamyndina í framtíðinni. solveig@frettabladid.is Í fylgd guðlegra hesta YFIR ÓFÆRUR Íslenski hesturinn er mikið notaður í ferðalögum um hálendið. MYND/ANNA FJÓLA GÍSLADÓTTIR ALVEG EINS OG MAMMA Hryssa og folald við Langholtspart í Flóa brokka glöð í haganum. MYND/ANNA FJÓLA GÍSLADÓTTIR MEÐ BÓKINA GÓÐU Anna Fjóla Gísladóttir gaf nýlega út ljósmyndabókina Hestur guðanna og er ánægð með útkomuna. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Annað hvert ár flykkist til Íslands fjöldi útlendinga með það eitt í huga að sjá og upplifa íslenska hestinn í sínu náttúrulega umhverfi á Lands- móti hestamanna. Mæðgurnar Karin Rahbek Jensen og Pernille Rahbek Jensen voru staddar á Landsmótinu um síðustu helgi ásamt vinkonu þeirra Nönu Kjer. Jensen fjölskyldan hefur átt íslenska hesta á bóndabæ sínum nálægt Árhúsum í Jótlandi í um fimmtán ár en áður áttu þau stóra hesta. „Íslenski hesturinn er betri reiðhestur, hann er geðprúðari og hefur mikla orku. Þá er heillandi hvað þeir virðast vel tengdir nátt- úrunni,“ segir Karin, sem hefur áður komið til Íslands en elsta dóttir hennar stundaði nám í Reykjavík. Þetta er hins vegar fyrsta heimsókn þeirra mæðgna á Landsmót. „Ég hefði gjarnan viljað taka alla fjöl- skylduna með en það tókst ekki í þetta sinn,“ segir Karin sem vonast til að geta látið verða af því síðar. „Ástæðan fyrir því að við erum hér er auðvitað áhugi okkar á íslenska hestinum, við keppum báðar og ríðum út okkur til yndisauka auk þess sem við stundum hrossarækt í litlum mæli. Þess vegna hef ég sérstakan áhuga á að fylgjast með kyn- bótahrossunum,“ segir Karin og lítur upp til að fylgjast með einum af fjölmörgum stóðhestum sem verið er að dæma á vellinum. Þær mæðgur höfðu ekki verið lengi á Landsmóti þegar blaðamaður náði tali af þeim. Þær voru samt búnar að mynda sér skoðun á því. „Þetta er yndislegt því umhverfið er ægifagurt, opnunarhátíðin var með þeim hætti að ég fékk hjartslátt og þar spilaði saman sýningin, náttúr- an og söngurinn.“ HESTAKONURNAR: KARIN, PERNILLE OG NANA Fengu hjartslátt á opnunarhátíðinni GLAÐAR Á LANDSMÓTI Karin og Pernille Rahbek Jensen ásamt vinkonu þeirra Nönu Kjer. Íslandsmót fullorðinna verður haldið í hestamannafélag- inu Gusti í Glaðheimum nú um helgina. Mótið hefst klukkan tíu á föstudagsmorgni á keppni í 150 og 250 metra skeiði og lýkur klukkan fjögur á sunnudag en þann dag verða A-úrslit í öllum flokkum. Sjónvarpið mun senda beint út frá kl. 14.00 til 16.15 á sunnudag. Íslandsmót barna og unglinga verður síðan haldið í hestamannafélaginu Sleipni í Hafnarfirði dagana 10. til 13. ágúst. ■ Íslandsmótið hefst á morgun Fyrir stuttu kom jarpskjótt meri í heiminn á Lækjamóti í Húnaþingi vestra. Folaldið er undan Jarlhettu frá Neðra-Ási og Þristi frá Feti, en hann er jarpskjóttur eins og afkvæmið. Svo skemmtilega vill til að merin litla er með tvo hvíta bletti, sinn í hvorri hliðinni. Líktist bletturinn hægra megin Frakklandi en sá vinstra megin var eins og Ítalía í laginu. Þótti mörgum knattspyrnuáhugamann- inum þetta skemmtileg tilviljun, en kastið átti sér stað stuttu fyrir úrslitaleik Ítala og Frakka í HM í fótbolta. Beðið var með nafngift folaldsins þar til úrslitin voru ljós og verður folaldið prúða að öllum líkindum nefnt Ítalía. Á Lækjamóti búa hjónin Þórir Ísólfsson og Elín R. Líndal oddviti. Þórir er eigandi Ítalíu ásamt Vigdísi Gunnarsdóttir en dóttir Þóris, Sonja Líndal, heldur í móður Ítalíu á myndunni. ■ Fótboltafolaldið Ítalía FRAKKLAND ÍTALÍA Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma 567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar MARKISUR www.markisur.com VILTU SKJÓL Á VERÖNDINA?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.