Fréttablaðið - 13.07.2006, Blaðsíða 32
[ ]
Dýrustu og íburðarmestu kjól-
ar í heimi voru sýndir í París
í síðustu viku þar sem „haute
couture“ línur stærstu tísku-
húsanna fyrir næsta haust og
vetur prýddu sýningarpallana í
tískuhöfuðborginni.
Það var mikið um dýrðir þegar
meistarinn sjálfur John Galliano
opnaði þriggja daga tískuveisluna
á miðvikudaginn í síðustu viku
með hönnun sinni fyrir Christian
Dior.
Galliano brást ekki bogalistin
frekar en fyrri daginn og kynnti
línu sem var undir miklum áhrif-
um af hinum myrku miðöldum.
Sumir kjólanna jöðruðu við að
vera búningar í leiksýningu þar
sem fígúrur á borð við hafmeyjur,
hirðfífl og riddara stigu á stokk.
Samt sem áður fór Galliano ekki
alveg yfir strikið og komust nokkr-
ir kjólarnir mjög nálægt því að
sóma sér vel á rauða dreglinum.
Valentino brást ekki aðdáend-
um sínum, en hann er þekktur
fyrir að klæða allar helstu stjörn-
urnar vestan hafs þegar mikið
stendur til. Hann klikkar aldrei á
flottum smáatriðum og kvenlegri
hönnun og notaði rússnesk munst-
ur á skemmtilegan hátt. Bóleró-
jakkar kórónuðu flotta kokkteil-
kjóla og var litapalletan mjög ljós
- kampavínsgult, drapplitað, grátt,
gyllt og svart.
Karl Lagerfeld hjá Chanel var
með smá uppsteyt og poppaði ann-
ars hefðbundna Chanel-hönnun
með stígvélum sem minntu helst á
gallabuxur. Hjá Lacroix var einn-
ig eitthvað um nýjungar þar sem
efnum, litum og áferð var blandað
saman á ýmsa vegu.
Fyrst og fremst voru þessir
þrír dagar algjör veisla fyrir
augað og því ættu myndirnar að
segja miklu meira en nokkur orð
fá lýst.
lilja@frettabladid.is
Ein af fjölmörgum fígúrum sem prýddu
pallana í sýningu John Galliano.
Gjörsamlega geðveikur kjóll hjá John Galliano fyrir Dior. MYNDIR/GETTY IMAGES
Kvenlegt og glæsilegt frá Giorgio Armani.
Tískuveisla fyrir augað
Valentino er ekki vinsæll meðal stjarnanna
fyrir ekki neitt og sýnir hér að hann er einn
sá fremsti í bransanum.
Þessi kjóll frá Chanel á eflaust eftir að sjást
á rauða dreglinum í nánustu framtíð.
Lag eftir lag af fallegum efnum var áber-
andi hjá Christian Lacroix.
Drungaleg stemning hjá Givenchy.
Gullið fer aldrei úr tísku. Dásamlega klassískt.
Trind handsnyrtivörur alltaf no. 1
Nú Nýtt
Nail Antibite til að For Girls Only Traveling set
Hætta að naga neglur. Aðeins fyrir stelpur ferða sett
20%-50%
Hlíðarsmára 11 • Kóp • S: 517 6460
Opið mán. - fös. 11-18, lau. 11-15 • www.belladonna.is
Núna er hægt að gera frábær kaup
(st. 38-60)
Þú verður að eignast
Skóverslun, Rauðarárstíg 14, 101 Reykjavík. trippen.is
Flottir
leðurjakkar
á góðu verði
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
Laugavegi 67
Sími: 551 8228
LUCKY WANG NYC
Allur
barnafatnaður
á 50% afslætti