Fréttablaðið - 13.07.2006, Síða 59
FIMMTUDAGUR 13. júlí 2006 39
Einkasýningu Sigtryggs Bergs Sig-
marssonar „The Curse of Sigtrygg-
ur Berg Sigmarsson“ lýkur á laug-
ardaginn en hún hefur staðið yfir í
sýningarýminu Gallerí Dvergur, í
kjallara bakhúss að Grundarstíg 21 í
Þingholtunum.
Sigtryggur sýnir ljósmyndir,
texta- og vídeóverk en hann hefur
einnig flutt gjörninga í tengslum við
sýninguna. Sigtryggur Berg Sig-
marsson stundaði myndlistarnám í
Hannover en áður stundaði hann
nám í sonologiu í Hollandi.
Sigtryggur hefur bæði sýnt verk
sín og komið fram á hljómleikum
víða, jafnt undir sínu eigin nafni
sem og með hljóðtilrauna-dúettnum
Stilluppsteypu.
Fyrr í júnímánuði tók Sigtryggur
þátt í listahátíðinni „Sonambiente“ í
Berlín, þar sem hann sýndi vídeó-
verk, teikningar, ljósmyndir og
texta, sem hann hefur verið að vinna
með síðustu tíu árin og er sýningin í
Gallerí Dvergi nokkurskonar smá
útgáfa af þeirri sýningu.
Sýningin verður opin frá 17-19 á
morgun og laugardag.
Bölvun aflétt
SIGTRYGGUR BERG SIGMARSSON MYND-
LISTARMAÐUR Sýningum er að ljúka í
Galleríi Dvergi.
Lára Rúnarsdóttir heldur tónleika í
Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld í
tilefni af útkomu plötu hennar
Þögn. „Við unnum að plötunni allt
síðasta sumar. Svo fór hún í smá
bið því það eru svo margir sumars-
mellir á henni,“ segir Lára hlæj-
andi. „Annars er þetta er svona
lágstemmd melódísk tilfinninga-
plata – svona tilfinningamúsík.“
Tólf lög eru á plötunni og eru
þau öll eftir Láru. Flest þeirra eru
sungin á íslensku. Lára gaf út plöt-
una Standing Still fyrir þremur
árum en þá söng hún einungis á
ensku. „Ég sem alltaf á ensku en
ákvað að breyta til fyrir nýju plöt-
una og semja nýja íslenska texta
við lögin. Það gekk í 60-70 prósent-
um tilvika. Hin lögin urðu bara
óþjál og því eru þau á ensku,“ segir
Lára en á nýju plötunni syngur hún
mikið um sínar daglegu hugsanir.
„Á þeim tíma sem ég var að semja
lögin var ég að velta fyrir mér
ýmsum spurningum sem ég skildi
ekki þá en skil betur í dag.“
Lára lék á nokkrum tónleikum í
Los Angeles fyrir skömmu og gekk
að eigin sögn nokkuð vel. „Ég spil-
aði á svona litlum sætum klúbbum
í Hollywood. Það gekk rosalega vel
og fór í reynslubankann. Það er
ágætt að spila fyrir aðra en nán-
ustu vini og fjölskyldu,“ segir Lára
sem er á leið til Spánar sem skipti-
nemi en hún er í tónlistarkennara-
námi í Kennaraháskóla Íslands.
Bræðurnir Birkir og Daði Birg-
issynir, úr hljómsveitinni Jagúar,
unnu með Láru að plötunni sem og
trommuleikarinn Kiddi, sem áður
var í Hjálmum, og bassaleikarinn
Pétur Sigurðsson. Þeir munu allir
spila með Láru á tónleikunum í
kvöld sem hefjast kl. 21. - kh
LÁRA RÚNARSDÓTTIR Lára segist ekki
vita hvort hún muni syngja á ensku eða
íslensku í framtíðinni.FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Tilfinningatónleikar hjá Láru
Landsbankinn fagnar 120 ára afmœli um þessar
mundir. Af því tilefni höfum við opnað sýninguna
„Kraftur heillar þjóðar“ þar sem gefur að líta hið
einstaka safn af verkum Jóhannesar S. Kjarvals sem
bankinn hefur eignast í gegnum tíðina. Einnig höfum
við opnað myndlistarvef á landsbanki.is þar sem
verk Kjarvals og umfjöllun um þau er að finna.
Verið velkomin á fund við meistara Kjarval í
Gerðarsafni í Kópavogi.
Boðið er upp á leiðsögn listfræðinga
um sýninguna og mun Aðalsteinn
Ingólfsson fræða áhugasama um verk
Kjarvals næstkomandi laugardag,
15. júlí kl. 15.00.
Í dag troða hljómsveitin Shadow
Parade og tónlistarmaðurinn Bela
upp á vegum tónleikaraðar tíma-
ritsins The Reykjavík Grapevine og
útgáfufyrirtækisins Smekkleysu.
Fyrri tónleikarnir fara fram í Gall-
eríi Humri eða frægð í gamla Kjör-
garði kl. 17 en um kvöldið færist
fjörið niður í bæ því síðari tónleik-
arnir verða á Café Amsterdam í
Hafnarstræti kl. 21.30.
Hljómsveitin Shadow Parade
leikur lágstemmt nýbylgjurokk.
Bela er listamannsnafn Baldvins
Ringsted en í tónlist sinni blandar
hann saman gömlu rokki og nýju.
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
starfi við Rás 2. -khh
Tvöföld skemmtun
BELA LEIKUR ÁSAMT SHADOW PARADE
Sumartónleikar Grapevine og Smekkleysu.
Sýnt í Landnámssetri í Borgarnesi
Sýningar í júlí
Föstudag 7. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 8. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 9. júlí kl. 20 laus sæti
Föstudag 14. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 15. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 16. júlí kl. 20 laus sæti
Föstudag 21. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 22. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 23. júlí kl. 20 laus sæti
Föstudag 28. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 29. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 30. júlí kl. 20 laus sæti
LEIKHÚSTILBOÐ
Tvíréttaður matur, miði og frítt
í Göngin til baka í boði
Landnámsseturs
Frá kr. 4000 - 4800
MIDAPANTANIR Í SÍMA 437 1600