Fréttablaðið - 13.07.2006, Page 64
13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR44
maturogvin@frettabladid.is
Hvaða matar gætirðu síst verið án?
Mjólkur. Það er mikið drukkið af mjólk, léttmjólk, á mínu heimili.
Fyrsta minning um mat?
Kjötbollur í brúnni sósu á sunnudögum hjá mömmu þegar ég var lítil.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Ég held að það séu dádýralundir. Ég elda þær sjálf og hef þá með anda-
paté í forrét. Ég kaupi villiandapaté og svo bý ég til sultaðan lauk með.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Svið, það er eitthvað sem ég hef reynt að borða en get það ekki.
Leyndarmál úr eldhússkápnum?
Ég fæ mér oft suðusúkkulaði. En svo er sniðugt að nota hindberjaedik í
matargerð, til dæmis er það frábært út á sallat.
Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?
Mér finnst geðveikt að vefja hráskinku
utan um camembert ost og basilikum
lauf og setja þetta inn í ofn í pínustund.
Þetta er hrikalega gott.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum?
Ég á alltaf mjólk, jógúrt fyrir börnin og
ávexti.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvað tæk-
irðu með þér?
Ætli maður myndi ekki taka með sér
hveiti til að geta bakað eitthvað.
Hvað er það skrítnasta sem þú hefur
borðað?
Það er sennilega innan úr ígulkeri, beint upp úr sjónum, með fullt af
Tabasco sósu með. Þetta var alveg ágætt.
ÞRÚGUR GLEÐINNAR
> EINAR LOGI VIGNISSON
TRYGGÐU ÞÉR BLAÐIÐ
Í ÁSKRIFT MEÐ
30% AFSLÆTTI
Á AÐEINS 489 KR.
EINTAKIÐ OG FÁÐU
VEGLEGA GJÖF
Í KAUPBÆTI
GLÆNÝTT
VEGGFÓÐUR ER KOMIÐ ÚT
ÁSKRIFTARSÍMI 550 5000 | WWW.VISIR.IS
> Prófaðu...
að setja hunangsmel-
ónubita og ristaðar
möndluflögur í
salatið, ásamt
þremur teskeiðum
af ferskum lime safa,
einni teskeið af sykri,
örlítið af söxuðum ferskum
engifer og ólífuolíu.
Á Kirkjubæjarklaustri er
að finna veitingastaðinn
Systrakaffi sem er tilvalinn
áningarstaðar fyrir ferða-
langa sem orðnir eru leiðir á hinu klass-
íska sjoppufæði. Matseðill staðarins er
afar fjölbreyttur og freistandi og stað-
urinn býður líka upp á góða aðstöðu
til setu utandyra og er einnig með leik-
horn fyrir börnin. Systrakaffi reynir að
tengja sig við sögu nunnuklausturins
sem var á Kirkjubæjarklaustri í eina
tíð með því að skreyta veitingastaðinn
með nunnustyttum en í raun mætti
ganga enn lengra í því og til dæmis láta
starfsfólkið klæðast nunnukyrtlum. Í
heild er staðurinn hlýlegur en kannski
fullmikið af dúllerí á staðnum.
Matseðillinn: Matseðilinn er afar
girnilegur og allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi. Hvernig væri
til dæmis að prófa pítsurnar Abba-
dísin og tvær nunnur og ein í fríi?
Klausturbleikjan er einnig freist-
andi sem og skaftfellskt þurrkað
og hangið lambalæri sem borið er
fram með brennivínsstaupi. Svo er
líka bara hægt að fá sér salat og
beyglu.
Verð: Verðið er svipað og á veit-
ingastöðum í höfuðborginni. Súpa
dagsins kostar 850 kr, enskur
morgunverður fæst á 1300 krónur,
hamborgari á 950kr og glóðarsteikt
kjúklingabringa á 2.600 kr.
VEITINGASTAÐURINN SYSTRAKAFFI, KLAUSTURVEGI 13, KIRKJUBÆJARKLAUSTRI,
Fjölbreyttur matseðillinn við þjóðveginn
SYSTRAKAFFI Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
Nýverið hófust þemadagarnir „sumarvín“ í vínbúðunum og fást vín á
kynningarverði fram að verslunarmannahelgi. Hér er ekki um að ræða
daga tengda svæðum eða þrúgum (á vordögum voru slíkir dagar haldn-
ir Chile og S-Afríku til vegsauka) heldur er hér einfaldlega verið að
kynna hin og þessi vín og kynningunni pakkað inn í sumarumbúðir.
Vínin eru að jafnaði með ríflega 100 kr. afslætti en sá afsláttur er allur
frá umboðsaðilum og framleiðendum kominn, ríkið lækkar sína álagn-
ingu ekkert. Neytendur fagna þessu en margir spyrja sig kannski af
hverju ríkið leggi ekki sitt af mörkum til að auka afsláttinn þannig að
um afslátt sem einhverju skiptir sé að ræða en ástæðan er sögð laga-
bókstafir sem varna vínbúðunum að veita afslátt. Sjálfur kysi ég að vín-
búðirnar gerðu meira af því að vera með þemadaga sem þjóna ein-
hverjum menningarlegum tilgangi og létu afsláttardaga á sumar- og
jólavínum eiga sig.
Hvimleiður fylgifiskur þessara árstíðabundnu þemadaga er sá að
umboðsaðilarnir setja vín frá sömu framleiðundunum fram aftur og
aftur. Þeir vilja verja sterkustu merkin sín og kerfið er óhagstætt
stærstu umboðunum þar sem kvóti er á því hversu mörg vín hvert
umboð má tilnefna. Minni umboðin með sérhæft framboð njóta sín
hins vegar og er ánægjulegt að sjá að sum þeirra nota sumardagana til
að kynna virkilega áhugaverð vín. Eitt hlutverk mitt í þessum pistlum
er auðvitað að benda fólki á það sem áhugavert er og lýk ég
því aðfinnslum mínum um fyrirkomulag þemadaga og sný
mér að vínunum sem eru á boðstólum!
Afar viðeigandi er að fagna heimsmeistaratitli Ítala í fót-
bolta með ítölskum vínum. Sé rennt yfir þau vín sem í boði
eru á sumardögunum eru ítölsk vín nokkuð áberandi og það
sem meira er, ansi mörg af vínum sem vekja sérstakan áhuga
eru ítölsk. Mörg eru frá eldhuganum Arnari Bjarnasyni sem
rekur innflutningsfyrirtækið Vín og matur. Arnar bjó um
nokkurt skeið á Ítalíu og breiðir fagnaðarboðskap ítalskr-
ar matar- og víngerðar út af miklum móð eins og lesa má
á síðu hans, vinogmatur.is. Frá honum er t.d. hið prýði-
lega hvítvín Casal di Serra (1.390 kr.) úr verdicchio
þrúgunni skemmtilegu. Einnig tvö fyrirtaks chianti-vín,
Fontodi (1.690 kr.) og Castello Di Querceto (1.590 kr.).
Sumardagarnir ganga út á að gera góð kaup og þau
verða vart mikið betri en í Farnese Sangiovese á 850 kr.
Einnig eru á kynningarverði flott vín frá þekktum
framleiðendum á borð við Banfi, Dievole, Masi, Pasqua
og Tommasi.
VERT AÐ SPÁ Í:
Ítölsku sætvínin sem kölluð eru því helga nafni Vin Santo eru
skemmtileg sem fordrykkur eða eftir mat. Eitt slíkt er í boði á sum-
ardögum, Vin Santo Sommavite á aðeins 990 kr.
Ítölsku sumarvínin
Brynja Baldursdóttir,
deildarstjóri hjá Símanum,
er þekkt fyrir góða takta
í eldhúsinu meðal vina og
vandamanna. Hér gefur
hún uppskrift þar sem ein-
faldleikinn er í fyrirrúmi.
„Ég smakkaði þennan borgara
fyrst á lítilli hamborgarabúllu í
Los Angeles, Father‘s Office. Vin-
kona mín sem býr í LA var svo
snjöll að finna út hvað var í borg-
aranum. Það er rúmlega ár síðan
ég fékk uppskriftina en ég breytti
henni svolítið og púslaði þessu
saman,“ segir Brynja, en lúxus-
hamborgararnir vekja alltaf mikla
lukku í matarboðum Brynju. „Ég
hef eldað þetta mjög oft og við-
held þeirri reglu sem er á veit-
ingastaðnum að það er ekki hægt
að breyta eða bæta. Þetta er bara
hinn fullkomni hamborgari, hin
eina og sanna uppskrift,“ segir
Brynja. Hún segir að meðlætið,
sætar kartöflur með hvítlauks-
rjómaosti og sýrðum rjóma, sé
ómissandi, en það er einnig ættað
frá Father‘s Office.
Brynja er dugleg að prófa eitt-
hvað nýtt þegar hún eldar. „Ég er
hrifnust af réttum þar sem hráefn-
ið fær að njóta sín og einfaldleik-
inn er í fyrirrúmi. Ég vil ekki
drekkja hráefninu í kryddi og
sósum,“ segir hún. Hún mælir með
lúxushamborgarakjöti frá Gallerí
Kjöti en ciabatta brauðin er hægt
að fá í flestum bakaríum og stór-
verslunum.
LA BORGARI FYRIR FJÓRA:
4 200 gr. hamborgarar
4 ciabatta brauð
Rucola salat
Gráðaostur
Salt
Pipar
SULTAÐUR LAUKUR:
2 laukar
hálft box sveppir (má sleppa)
5-6 msk púðursykur
MEÐLÆTI:
2-3 sætar kartöflur
ein dós hvítlauksrjómaostur (t.d.
Boursin)
ein dós sýrður rjómi
„Aðalatriðið er sultaði laukur-
inn. Það má alveg setja nóg af púð-
ursykri og ég set stundum miklu
meira en ég tilgreini hér,“ segir
Brynja. Fyrst eru laukurinn og
sveppirnir skornir í hæfilega bita
og brúnaðir á pönnu í ólífuolíu þang-
að til laukurinn er gylltur. Þá er
púðursykrinum bætt út í. Gott getur
verið að setja eina til tvær mat-
skeiðar af sjóðandi vatni á pönnuna
um leið og sykurinn er settur út á.
Þá er lok sett á pönnuna og þetta
látið malla í minnst hálftíma.
Hamborgararnir eru grillaðir á
útigrilli en hægt er að steikja þá á
pönnu ef veðrið býður ekki upp á
grill. Hamborgararnir eru saltaðir
og pipraðir og undir lokin er gráða-
osti bætt ofan á. Hamborgararnir
eru bornir fram í ciabatta brauðinu
með rucolasalati og sultaða laukn-
um.
Kartöflurnar eru skornar í
ræmur eða bita og settar í eldfast
mót. Þá er ólífuolía sett út á og sjáv-
arsalt mulið yfir.
Þetta er bakað við háan hita í
ofni í ca. hálftíma. Hvítlauksrjóma-
ostinum og sýrða rjómanum er
blandað saman og sósan er borin
fram með kartöflunum.
rosag@frettabladid.is
Lúxushamborgari með
sætum kartöflum
BRYNJA BALDURSDÓTTIR Hinn fullkomni borgari á rætur sínar að rekja til lítillar hamborg-
arabúllu í Los Angeles. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
MATGÆÐINGURINN ELÍN MARÍA BJÖRNSDÓTTIR DAGSKRÁRGERÐARKONA
Dádýrasteik með andapaté í uppáhaldi