Fréttablaðið - 13.07.2006, Qupperneq 71
FIMMTUDAGUR 13. júlí 2006 51
FÓTBOLTI Vjatšeslav Bulavin, þjálf-
ari eistneska liðsins TVMK Tall-
inn, var ekki nægilega sáttur eftir
að lið hans tapaði gegn Íslands-
meisturum FH í fyrstu umferð
Meistaradeildar Evrópu á þriðju-
daginn. Atli Guðnason skoraði sig-
urmark FH á 93 mínútu leiksins í
3-2 sigri en síðari leikurinn fer
fram þann 19. júlí. Tryggvi Guð-
mundsson og Sigurvin Ólafsson
skoruðu hin tvö mörk FH.
„Ég hefði verið sáttur með að
ná 2-2 jafntefli en eftir tapið erum
við alls ekki sáttir. Varnarmaður-
inn sem leyfði Guðnasyni að skora
gerði fáránleg mistök. Íslenska
liðið getur kennt okkur mikið.
Fyrsta markið var skólabókar-
dæmi um það hvernig á að spila
knattspyrnu og skora mark. Bolt-
inn gekk vel á milli manna sem
voru á réttum stöðum og sending-
arnar voru góðar og frábærlega
tímasettar. Við vorum ekki að
spila nógu vel og það vantaði alla
hreyfingu í liðið,“ sagði Bulavin
við Fréttablaðið í gær.
„Við horfðum á myndbönd af
FH og okkur fannst þeir alltaf
vera miklu ákveðnari í fyrri hálf-
leiknum en þeim síðari, þessvegna
byrjuðum við rólega og spiluðum
sókndjarfara í síðari hálfleiknum.
Það vantaði um tíu leikmenn í liðið
auk þess sem sumir spiluðu tæpir
en vonandi verðum við með full-
skipað lið á Íslandi en ég er reynd-
ar ekki mjög bjartsýnn á góð úrslit
þar,“ sagði Vjatšeslav Bulavin.
Miðjumaðurinn Kert Haavistu
var heldur ekki sáttur. „Við ætluð-
um okkur kannski um of undir
lokin en sigurmarkið var mjög
klaufalegt. Við gerðum mistök
undir lokin opg það var mjög
svekkjandi að fá á sig þetta mark,“
sagði Haavistu. - hþh
Þjálfari TVMK Tallinn var ekki nægilega sáttur eftir 3-2 tapið gegn Íslandsmeisturum FH á þriðjudaginn:
Er alls ekki bjartsýnn fyrir Íslandsförina
1-0 Tryggvi Guðmundsson skorar hér fyrsta mark FH í leiknum af þremur. Þjálfari eistneska
liðsins hreifst mjög af markinu.JOOSEP MARTINSON/ESTONIAN DAILY NEWSPAPER
FÓTBOLTI Líklegt er að Grindvík-
ingar semji við danska varnar- og
miðjumanninn Morten Overgaard
út tímabilið. Sigurður Jónsson,
þjálfari Grindavíkur, sagði við
Fréttablaðið í gær að Overgaard
væri stór og sterkur leikmaður
sem gæti hjálpað liðinu mikið í
sumar.
„Við höfum verið óheppnir með
meiðsli. Paul McShane var tæklað-
ur fáránlega í leiknum á móti ÍA,
þar sem var dæmt á hann í þokka-
bót sem var fáránlegur dómur.
Hann er með skurð á hnénu og er
óvíst hvað hann verður lengi frá,
sömu sögu er að segja af David
Hannah. Hann er líka meiddur en
prófar að æfa um helgina. Óli Stef-
án Flóventsson er kinnbeinsbrot-
inn og Mounir Ahandour gæti
verið frá í 3-4 vikur. Við höfum
verið óheppnir en vonandi fer
lukkan að snúast okkur í hag núna,“
sagði Sigurður í gær en auk þess
seldi liðið Sinisa Kekic til Þróttar.
Overgaard kemur frá AB í Dan-
mörku en hefur áður leikið með
Lyngby, Herfølge og Køge í Dan-
mörku þar sem hann á að baki 252
leiki. Hann hefur leikið tvo ung-
mennalandsliðsleiki fyrir Dani en
hann var á sinni fyrstu æfingu með
Grindvíkingum í gærkvöldi. - hþh
Daninn Morten Overgaard:
Semur líklega
við Grindavík
FÓTBOLTI „Ég er kominn 91,3 pró-
sent í stand en er til í allt eins og
staðan er í dag,“ sagði sláttuvélar-
sölumaðurinn Bjarni Þórður Hall-
dórsson við Fréttablaðið í gær.
Bjarni meiddist illa í nára en eftir
tvær vikur er nákvæmlega ár frá
því það gerðist.
„Ég er nýkominn í ágætis stand
en þetta hefur verið erfið törn. Það
er um mánuður síðan ég byrjaði að
leika mér með bolta en er nýbyrjað-
ur að sparka almennilega. Ég gerði
ekkert ráð fyrir því að vera í fót-
bolta í sumar og ég er því mjög
ánægður með að vera að æfa á
fullu núna,“ sagði Bjarni sem getur
nú farið að setja pressu á Fjalar
Þorgeirsson um byrjunarliðssæti í
Fylkisliðinu. Fylkismenn hafa hug
á því að lána markmanninn efni-
lega Jóhann Ólaf Sigurðsson og er
líklegt að hann fari til liðs í neðri
deildunum út sumarið. - hþh
Bjarni Þórður Halldórsson:
Kominn 91,3
prósent í stand
BJARNI ÞÓRÐUR Er ánægður með að vera
kominn á æfingasvæðið á nýjan leik.
FÓTBOLTI Enn og aftur er Gíneubú-
inn Sam Bangoura til vandræða
hjá gamla Íslendingafélaginu
Stoke City. Bangoura hefur ekki
enn mætt til æfinga hjá félaginu
síðan sumarfríi lauk fyrir tveimur
vikum og veit enginn hvar hann er
niðurkominn. Liðið hélt til Austur-
ríkis í gær í æfingaferð án Bang-
oura.
Hann mætti einnig of seint til
félagsins eftir að hann var keyptur
sem og eftir Afríkukeppnina í
febrúar síðastliðnum en þá sagðist
hann hafa þurft að dveljast heima
fyrir vegna „fjölskylduvandræða“.
Bangoura er dýrasti leikmaður
Stoke frá upphafi. Hann var keypt-
ur á 1,25 milljónir evra frá belg-
íska félaginu Standart Liege í
fyrra. - esá
Gíneubúinn Sam Bangoura:
Ekki mættur
til æfinga
Útsala
hefst í dag
Kringlunni