Fréttablaðið - 15.07.2006, Qupperneq 6
6 15. júlí 2006 LAUGARDAGUR
Birta er komin út!
Sigríður Arnardóttir
Trúir á örlögin
Súpermann
Leikhús
Tíska
Öflugasta sjónvarpsdagskráin
STARFSLOK Indriði H. Þorláksson
ríkisskattstjóri hefur óskað eftir
lausn frá embætti frá og með 1.
október næst-
komandi. Fjár-
málaráðherra
hefur fallist á
beiðnina og mun
Indriði því
hætta störfum
að september
loknum.
Indriði er 65
ára og hefur
gegnt starfi rík-
isskattstjóra frá 1. janúar 1999.
Þar áður var hann um langt árabil
skrifstofustjóri í fjármálaráðu-
neytinu og starfaði þar áður í
menntamálaráðuneytinu. - sh
Ríkisskattstjóri hættir í október:
Indriði hættir
sem skattstjóri
INDRIÐI H. ÞOR-
LÁKSSON
KJÖRKASSINN
Hefurðu unnið í garðinum í
sumar?
Já 22%
Nei 78%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefurðu smakkað hrefnukjöt?
Segðu þína skoðun á Vísi.is
MATVÆLAVERÐ Helst steytti á hug-
myndum um afnám verndartolla
landbúnaðarvara í starfi matvæla-
nefndar forsætisráðherra. Hávær-
ar kröfur voru uppi í nefndinni um
að gerð yrði tillaga um afnám
þeirra en fulltrúi bænda lagðist
alfarið gegn þeim. Samkvæmt
útreikningum starfsfólks Hag-
stofunnar myndi matarreikningur
meðalheimilis í landinu lækka um
rúmar 80 þúsund krónur ef vernd-
artollarnir yrðu aflagðir.
Alþýðusambandið, sem átti
fulltrúa í nefndinni, krafðist þess
að landbúnaðarkerfið yrði stokkað
upp og fært „úr kerfi hafta og
hamla, í kerfi með verulegum
auknum beinum greiðslum sem
rynnu til bænda,“ eins og segir í
yfirlýsingu þess. Þar sem ekki
náðist samstaða um þær hug-
myndir vildi sambandið ekki
standa að sameiginlegum tillögum
nefndarinnar „sem leiða myndu til
verulegra lækkana á sælgæti og
gosi en óverulegra lækkana á
verði venjulegra matvæla,“ eins
og það er orðað.
Samtök verslunar og þjónustu
vilja einnig að tollar vegna inn-
flutnings á búvöru verði afnumdir
en telja mikilvæg skref stigin með
afnámi vörugjalda og að öll mat-
vara beri sama hlutfall virðisauka-
skatts. Um leið er mótmælt hug-
myndum Lýðheilsustofnunar um
að halda beri í hærri skattlagn-
ingu á einstakar tegundir matvæla
sem taldar eru óhollari en aðrar.
Slík opinber neyslustýring hafi
hingað til alltaf mistekist.
Það kemur Össuri Skarphéðins-
syni, þingmanni Samfylkingarinn-
ar, ekki á óvart að ekki hafi náðst
samstaða í
nefndinni enda
hafi fulltrúar
landbúnaðarins
átt þar sæti.
Össur telur mik-
ilsvert að sam-
staða hafi náðst
um ákveðin
skref, sem feli í
sér nokkra
lækkun matar-
verðs ef að lögum verða, en segir
mikilvægt að ganga lengra. „Það
er ljóst að til að ná árangri sem
munar um og skiptir neytendur
miklu máli þá verður að afnema
ofurtollana á innfluttum matvör-
um. Við í Samfylkingunni munum
strax í haust leggja til að stigið
verði stórt skref, til dæmis með
helmingslækkun, og að síðar verði
stefnt að því að afnema þá alveg.“
Hann segir að á móti verði að
ganga til viðræðna við bændur um
aðgerðir til að hjálpa þeim á aðlög-
unartímanum.
„Markmiðið á að vera að hér
verði matarverð ekki hærra en í
Evrópusambandslöndunum og ég
held reyndar að besta leiðin til að
ná verðinu verulega niður sé að
ganga í ESB,“ segir Össur og
minnir á að lækkun matarverðs sé
eitt þeirra mála sem flokkur hans
hefur lagt hvað mesta áherslu á á
síðustu árum.
Forsætisráðherra vildi það eitt
um málið segja að skýrslan yrði
tekin til skoðunar. Ekki náðist í
landbúnaðarráðherra.
bjorn@frettabladid.is
Steytti á afnámi verndar-
tolla landbúnaðarvara
Fulltrúi bænda í matvælaverðsnefnd forsætisráðherra lagðist gegn hugmyndum um afnám verndartolla
búvara. ASÍ vildi ekki standa að sameiginlegum tillögum nefndarinnar þar sem ekki var lögð til stórfelld
uppstokkun landbúnaðarkerfisins. Össur Skarphéðinsson segir nauðsynlegt að afnema ofurtolla.
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
KEYPT INN Matarreikningur meðalheimilis myndi lækka um 130 þúsund krónur á ári, yrði
farið að þeim hugmyndum sem helst voru ræddar í matvöruverðsnefnd forsætisráðherra.
WASHINGTON, AP Valerie Plame,
fyrrverandi njósnari hjá banda-
rísku leyniþjónustunni CIA, hefur
lagt fram kæru á hendur Dicks
Cheney, varaforseta Bandaríkj-
anna, Karls Rove, ráðgjafa Banda-
ríkjaforseta, og fleiri embættis-
manna Hvíta hússins í Washington.
Hún sakar þá um að hafa skipu-
lagt „hvíslherferð“ með það að
markmiði að eyðileggja feril
hennar hjá leyniþjónustunni.
Hún heldur því fram í kærunni
að Cheney, Rove og I. Lewis Libby,
sem er fyrrverandi starfsmanna-
stjóri Hvíta hússins, hafi lekið því
til fjölmiðla að hún væri njósnari
hjá CIA gagngert til þess að refsa
eiginmanni hennar, Joseph Wil-
son, sem er fyrrverandi sendi-
herra Bandaríkjanna, fyrir það að
hann sagði Bandaríkjastjórn hafa
ýkt hættuna af Íraksstjórn til þess
að réttlæta innrásina í Írak.
Wilson hafði ferðast til Nígers
í Afríku og komist þar að raun um
að líklega væri ekkert hæft í ásök-
unum Bush Bandaríkjaforseta um
að Saddam Hussein hefði ætlað að
útvega sér úran frá Afríku.
Opinberlega var fyrst ljóstrað
upp um að Plame væri njósnari í
júlí árið 2003 í grein sem pistla-
höfundurinn Robert Novak skrif-
aði. Novak hefur upplýst að hann
hafi á sínum tíma fengið staðfest-
ingu fyrir því að Plame væri
njósnari bæði hjá Karl Rove og
Bill Harlow, upplýsingafulltrúa
CIA. - gb
Valerie Plame, fyrrverandi njósnari og sendiherrafrú:
Hefur kært Dick Cheney
fyrir að leka til fjölmiðla
JOSEPH WILSON OG VALERIE PLAME Sendi-
herrahjónin fyrrverandi segja bandaríska
ráðamenn hafa stofnað lífi þeirra í hættu
með því að leka til fjölmiðla að hún væri
njósnari á vegum CIA. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÁHRIF Á TEKJUR RÍKISSJÓÐS
Að teknu tilliti til veltuaukningar í kjölfar
skattalækkana. Í milljörðum króna.
Afnám vörugjalds -1.170
Niðurfelling tolla -490
Samræming virðisaukaskatts -800
Lækkun virðisaukaskatts af
veitingaþjónustu -810
Alls -3.270
Afnám tollverndar af búvöru 1.510
Alls -1.760
LÆKKUN ÁRSÚTGJALDA HEIMIL-
ANNA
Afnám vörugjalds 21.900 kr.
Niðurfelling tolla 8.700 kr.
Samræming virðisaukaskatts 8.100 kr.
Lækkun virðisaukaskatts
af veitingaþjónustu 10.900 kr.
Alls 49.600 kr.
Afnám tollverndar af búvöru 81.800 kr.
Alls 131.400 kr.
DÓMUR Romas Kosakovskis, Lithá-
inn sem reyndi að smygla rúmum
tveimur lítrum af amfetamínbasa
og tæpum lítra af brennisteinssýru
inn til landsins í lok febrúar síðast-
liðnum, var dæmdur í tveggja og
hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Þar að auki var
honum gert að greiða rúma milljón
króna í sakarkostnað.
Romas sýndi engin svipbrigði
við dómsuppkvaðninguna, en létt
virtist yfir honum áður en dómari
gekk í salinn því hann gantaðist
við lögfræðing sinn, Björgvin
Jónsson, áður en dómshald hófst.
Að dómsuppkvaðningu lokinni
kaus Romas að una dómnum ekki
og áfrýjaði máli sínu til Hæsta-
réttar Íslands. Gæsluvarðhald
yfir honum var því framlengt þar
til Hæstiréttur kveður upp dóm í
málinu. Vökvinn sem Romas
reyndi að smygla inn til landsins
fyrr á þessu ári hefði dugað til
framleiðslu á um sautján kílóum
af amfetamíni. Ef hann hefði haft
það magn í fórum sínum þegar
hann var handtekinn, hefði hann
mátt búast við 12 til 13 ára dómi.
Samkvæmt Daða Kristjáns-
syni, lögfræðingi ákæruvaldsins,
er vaninn sá að erlendir glæpa-
menn afpláni aðeins helming
dóms, á meðan heimamenn séu
látnir afplána tvo þriðju hluta
refsingarinnar. Hann segir ástæðu
þess vera að erfiðara reynist
erlendum glæpamönnum að
afplána dóm í íslenskum fangels-
um heldur en íslenskum kollegum
þeirra. - æþe
Litháinn Romas Kosakovski var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í gær:
Gantaðist við verjanda sinn
SAKBORNINGURINN Romas hefur áfrýjað
máli sínu til Hæstaréttar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Spilliefni á lagersvæði Mikið magn
spilliefna stendur enn á gamla lager-
svæði Olís við Köllunarklettsveg þrátt
fyrir að fyrirtækið hafi sagt að öll efni
yrðu horfin af lóðunni í lok þessarar
viku. Undanfarnar þrjár vikur hafa
ýmis spilliefni staðið á svæðinu vegna
flutninga.
MENGUN
Skorað á Birki Jón Fufan, Félag ungra
Framsóknarmanna á Akureyri og
nágrenni, skorar á Birki Jón Jónsson,
þingmann Framsóknarflokksins í
Norðausturkjördæmi, að bjóða sig fram
til forystu flokksins á flokksþinginu sem
verður í ágúst.
STJÓRNMÁL
SVÍÞJÓÐ, AP Sænskur maður hefur
verið ákærður fyrir stríðsglæpi
í Bosníu þegar hann barðist þar
sem málaliði á tíunda áratugnum.
Jackie Arklov er sakaður um að
hafa pyntað og misþyrmt föngum,
og var árið 1995 dæmdur í 13 ára
fangelsi í Bosníu fyrir stríðsglæpi,
en sænsk yfirvöld létu málið falla
niður vegna skorts á sönnunum
þegar hann far fluttur til Svíþjóð-
ar árið 1996.
Nýja ákæran byggir á nýjum sönn-
ungargögnum. Arklov situr nú í
sænsku fangelsi fyrir morð á
tveimur lögreglumönnum eftir
bankarán árið 1999, en hann hlaut
lífstíðardóm fyrir þann glæp. - smk
Sænskur maður:
Ákærður fyrir
stríðsglæpi