Fréttablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 24
 15. júlí 2006 LAUGARDAGUR24 timamot@frettabladid.is Ástkær móðir okkar , tengdamóðir og amma, Kristín Magnúsdóttir Rjúpufelli 42, Reykjavík, áður Vestmannabraut 10, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Einar Ottó Högnason Magnús Hörður Högnason Hrafnhildur Sigurðardóttir Guðmundur Ingi Einarsson Kristín Högna Magnúsdóttir Þennan dag árið 1815 gafst Napó- leon Bonaparte upp eftir orrustuna við Waterloo. Á rétt rúmum áratug börðust herir Frakka við næstum öll stórveldi Evrópu og náðu völdum í mestöll- um mið- og vesturhluta álfunnar. Misheppnuð innrás í Rússland árið 1812 og tap í orrustunni við Leipzig í október 1813 urðu til þess að Napóleon missti völdin og var hrakinn í útlegð á eyjunni Elbu. Hann náði aftur völdum í stuttan tíma en tapaði svo orrustunni við Waterloo hinn 18. júní 1815. Í kjölfarið gafst hann upp og var hrakinn í útlegð. Hann dó á eyjunni St. Helenu eftir sex ára útlegð. Eftir útlegðina á Elbu hafði Napóleon komið sér aftur til Frakklands af ótta við að verða sendur til fjarlægrar eyjar í Atlantshafinu. 1. mars árið 1815 kom hann til Frakklands, en Loðvík 18. konungur hafði sent herdeild sem áður hafði þjónað Napóleoni til að mæta honum. Þegar Napóleon mætti þeim steig hann niður af hesti sínum og hrópaði: „Hermenn fimmtu deildar, þið þekkið mig. Ef nokkur ykkar vill skjóta keisara sinn, má hann það núna.“ Eftir stutta þögn hrópuðu hermennirnir „Lifi keisarinn!“ og fylgdu honum til Parísar. Hann kom þangað 20. mars, safnaði stórum herafla og ríkti í hundrað daga. Hann beið svo ósigur í orrustunni við hertogann af Wellington og Gebhard Leberecht von Blücher við Waterloo og gafst upp á skipinu HMS Beller- ophon í höfninni við Rochefort, þennan dag fyrir 191 ári. ÞETTA GERÐIST 15. JÚLÍ 1815 Napóleon Bónaparte gefst uppJESSE VENTURA FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1951. „Skipulögð trúarbrögð eru svikamylla og hækja fyrir þá veikbyggðu sem þurfa að leita til fjöldans til að fá styrk.“ Jesse „Kroppurinn“ Ventura var atvinnumaður í fjölbragðaglímu en varð óvænt ríkisstjóri í Minnesota í Bandaríkjunum. Hann er talinn einn fyrsti stjórnmála- maðurinn til að nýta sér internetið í kosningabaráttu. MERKISATBURÐIR 1799 Rósettusteinninn finnst í egypska þorpinu Rosetta, en hann var lykillinn að því að ráða ritmál Egypta, híróglýfur. 1870 Georgía er seinast Suðurríkjafylkjanna til að sameinast Bandaríkjunum. 1954 Fyrsta flug Boeing 707 þotu, fyrstu bandarísku farþega- þotunnar. 1958 5.000 bandarískir land- gönguliðar lenda í Beirút, höfuðborg Líbanons, til að styðja við bakið á ríkis- stjórninni. 1974 Grískir þjóðernissinnar gera uppreisn á Kýpur og gera Nikos Sampson að forseta eyjunnar. 1997 Gianni Versace myrtur fyrir utan heimili sitt í Miami, Bandaríkjunum, af fjölda- morðingjanum Andrew Phillip Cunanan. ÚTFARIR 11.00 Steingrímur Kolbeinsson, Miðstræti 22, Neskaupstað, verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju. 14.00 Hafsteinn Guðvarðarson, vélstjóri, verður jarðsunginn frá Durup kirkju í Nørager í Danmörku. 18.00 Runólfur Gíslason frá Hvanneyri, Brekastíg 26, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju. AFMÆLI Kristján Þór Júlíus- son, bæjarstjóri á Akureyri, er 49 ára. Þorleifur Örn Arnarson leikari er 28 ára. Á morgun, sunnudaginn 16. júlí, eru liðin 25 ár frá stofn- un Blóðgjafafélags Íslands. „Forgöngu um stofnun félagsins hafði Ólafur Jens- son, fyrsti formaður þess, árið 1981,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson, núver- andi formaður félagsins og sýslumaður á Selfossi. „Við ætlum bara að halda upp á daginn með því að minnast afmælisins. Við eigum nú ekki mikla pen- inga, en við höfðum áhuga á að fá þá afmælisgjöf að hús- næðismál Blóðbankans yrðu leyst til nokkurrar frambúð- ar,“ segir Ólafur. Deilur um húsnæðið hafa verið leystar, en framkvæmdanefnd um nýtt sjúkrahús fékk hálfa af þremur hæðum í nýju hús- næði Blóðbankans við Snorrabraut, en Alfreð Þor- steinsson er formaður henn- ar. „Það er nú ekki hægt að sjúga neitt blóð úr honum lengur,“ segir Ólafur og hlær, en bætir þó við að Alfreð og framkvæmda- nefndin hafi sýnt Blóðbank- anum mikinn skilning og hjálpað til við að leysa hús- næðisvandamálið. En hvaða starfi sinnir Blóðgjafafélagið? „Það er alltaf þörf fyrir blóðgjafa. Blóðgjafafélagið er fyrst og fremst hagsmunafélag blóð- gjafa og það hefur alltaf verið hægt að ganga út frá því á Íslandi að til sé fólk sem vill gefa blóð. Það er ekkert sjálfsagt. Það er víða vandamál í heiminum að fá fólk til að gefa blóð. Við höfum reynt að stuðla að áróðri til að fá fleira fólk til að gefa blóð og það hefur skilað árangri. Við reynum að vekja fólk til umhugsun- ar og vekja athygli á því að ef einhver úr stórum hópi íslenskra blóðgjafa verður fyrir skaða, til dæmis ef eitthvað kemur fyrir við blóðtökuna eða hann slasast á leið til eða frá Blóðbankan- um, sækir hann sér rétt sem sjúklingur, en víða annars staðar eru sérstakar trygg- ingar fyrir blóðgjafa. Blóð- gjafar eru heilbrigt fólk að veita samfélaginu þjónustu með sjálfboðavinnu, en ekki sjúklingar, og það verður að koma fram við þá sam- kvæmt því,“ segir Ólafur Helgi. „Blóð er mjög sérstök afurð. Það jafngildir lyfi að mörgu leyti, það er ekki hægt að komast af án þess við læknismeðferð, upp- skurð eða slys. En þetta lyf er ekki framleitt eins og önnur lyf, heldur treystum við á ólaunaða sjálfboða- vinnu Íslendinga. Blóðgjaf- ar hafa ekki áhuga á því að fá greitt, það eru mannúðar- sjónarmið og samfélagsleg skylda sem ráða því að fólk gefur blóð,“ segir Ólafur. Í Blóðgjafafélaginu eru um 3.000 manns og er það því með stærri félögum. Ólafur hvetur alla sem hafa áhuga á blóðgjöfum og ekki síst blóðgjafa til að ganga í félagið. Félagar borga ekki félagsgjöld, en Ólafur segir að sem betur fer hafi félagið fengið framlög frá ríkinu undanfarin ár. „Félagið heiðrar félaga sem ná ákveðnum áföngum. Karl- menn mega gefa blóð fjór- um sinnum yfir árið og konur þrisvar sinnum, ef heilbrigði leyfir. Um 45 Íslendingar hafa gefið blóð hundrað sinnum yfir ævina. Sex hafa gefið blóð 125 sinn- um,“ segir Ólafur. Hann er sjálfur meðal þeirra sem hafa komist yfir hundrað blóðgjafir, en ætla má að því marki geti maður náð á um það bil 25 árum ef blóð er gefið reglulega. „Meginmarkmiðin okkar eru að fjölga blóðgjöfum, vinna með Blóðbankanum og heilbrigðisyfirvöldum og gæta hagsmuna blóðgjafa,“ segir Ólafur Helgi og óskar blóðgjöfum til hamingju með daginn. steindor@frettabladid.is BLÓÐGJAFAFÉLAG ÍSLANDS: 25 ÁRA AFMÆLI Á MORGUN Samfélagsleg skylda ÓLAFUR HELGI KJARTANSSON GEFUR BLÓÐ Formanni Blóðgjafafélagsins reiknast til að hann hafi gefið um 54 lítra af blóði yfir ævina í 120 blóðgjöfum, en til gamans má geta að í líkamanum eru að staðaldri aðeins um 6 lítrar af blóði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun í samráði við hreindýraráð að veiðitíma- bilið hefjist 15. júlí, en það hófst á sama tíma í fyrra. Heimilt er að veiða tarfa á öllum veiðisvæðum, en óheimilt er þó að veiða þá tarfa sem halda sig með hreinkúm fram til 1. ágúst. Veturgamlir tarfar eru þó alfriðaðir eins og áður. Hreinkýr má veiða eins og áður frá og með 1. ágúst. Veiðistjórnunarsvið hvetur hreindýraveiðimenn til að nýta sér allan veiðitímann og reyna að koma í veg fyrir mikið álag í lok veiðitímans. Hreindýraveiðar njóta sífellt meiri vinsælda og mikið er um að erlendir ferðamenn taki þátt í veið- unum. Tímabil hrein- dýraveiða byrjað HÚSNÆÐIÐ VIÐ SNORRABRAUT Blóðbankinn flytur í haust í nýtt húsnæði við Snorrabraut, þar sem áður var Skátabúðin. Miklar vonir eru bundnar við að þetta leysi það húsnæðisvandamál sem bankinn hefur þurft að glíma við. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Óttar Ketilsson Reykhúsum 4d, Eyjafjarðarsveit, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 12. júlí sl. Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju föstudaginn 21. júlí kl. 13.30. Sigrún Halldórsdóttir Halldór Óttarsson Lovísa Guðjónsdóttir Þórir Óttarsson Yocasta Óttarsson Rosa Rósberg Halldór Óttarsson Þórdís Rósa Sigurðardóttir Hrafnborg Óttarsdóttir Hansen Mogens Ingemann Hansen Brynjar Karl Óttarsson Hildur Hauksdóttir og barnabörn. 250 ára afmæli Til að fagna þessum tímamótum með þeim er öllum vinum og vandamönnum boðið að Heimalandi undir Eyjafjöllum laugardaginn 22. júlí. Formleg móttaka verður frá klukkan 20.00. Þar verður etið, drukkið, dansað, og gamli tíminn rifjaður upp. Tjaldstæði ER á staðnum. Sigurður í Varmahlíð Markús frá Ystabæli Jóhann og Bragi frá Mið-Grund Ásgeir í Stóru-Mörk Árið 1956 fæddust þessir síungu og fjallmyndarlegu menn. Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.