Fréttablaðið - 15.07.2006, Síða 60
15. júlí 2006 LAUGARDAGUR44
utlit@frettabladid.is
MÓÐUR VIKUNNAR
> ÁLFRÚN FER YFIR MÁLIN
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
Þ að er búið að hamra mikið á uppgangi kvenleikans í tískunni um þessar mundir.
Meira að segja gallabuxur eru að
verða kvenlegri með hærra mitti
og Marilyn Monroe vöxturinn,
oftar nefndur 90-60-90, fær að
njóta sín vel í vetur ef marka má
helstu hönnuði heimsins.
Slaufur hafa alltaf verið ákveðið
tákn fyrir konur og kvenleika.
Ungabörn fá slaufur aðeins nokk-
urra vikna gömul og er það oft til
þess að greina á um kyn barnsins,
sem oft er óljóst svona fyrst um
sinn. Það eru undantekningar-
laust slaufur á stúlknakjólum, og
allar stelpur hafa einhvern tímann
gengið með slaufur í hárinu. Þó að
karlmennirnir sjáist stundum
með slaufur um hálsinn komast
þeir ekki með tærnar þar sem
konurnar hafa hælana.
Núna er hægt að finna slaufur
úti um allt, á hálsmenum, kjólum,
pilsum, peysum og skóm. Annað-
hvort eru þær stórar og áberandi
eða bara lítil smáatriði í
munstrum. Hægt er að búa til
slaufur með einföldum borðum
og setja flottan hátískusvip á
annars einfalt dress. Einfaldar en
fallegar.
alfrun@frettabladid.is
SVARTUR KJÓLL
Flottur kjóll og
lítil svört slaufa
í miðjunni.
Spáir þú mikið í tískuna?
Ég hef gaman af því að fylgjast með tísk-
unni og fá þannig hugmyndir að fatnaði
og stíl.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?
Mér líður best í þægilegum fötum og
einhverju sem klæðir mig vel enda er
ég oftast í gallabuxum, hettupeysu og
strigaskóm.
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki?
Dolce & Gabbana. Ef ég ætti endalaust af
peningum væri fataskápurinn minn fullur
af fatnaði frá þeim.
Flottustu litirnir?
Grænn er svolítið uppáhalds, sérstaklega
í kjólum og bolum. Þessa dagana klæðist
ég líka mikið hvítu, enda er það klassískur
sumarlitur.
Hverju ertu veikust fyrir?
Ég er alveg skósjúk. Ég hef ekki einu sinni
hugmynd um hversu mörg pör ég á og ég
er í algerum vandræðum með geymslu-
pláss fyrir þau öll.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast?
Ég keypti mér hvítan leðurjakka í
Kringlunni fyrir útskriftina mína.
Hvað finnst þér flottast í tískunni núna?
Ég er ánægð með kjólatískuna sem er í
gangi. Mér finnst algert „möst“ að eiga
flotta kjóla á sumrin og maður á að vera
duglegur að nota þá þrátt fyrir leiðinlegt
veður.
Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir
sumarið?
Ég á eflaust eftir að kaupa mér fleiri kjóla
og jafnvel hvítar buxur. Svo er aldrei að
vita nema maður kaupi sér nokkur skópör,
svona í tilefni sumarsins.
Uppáhaldsverslun?
Urban Outfitters er mín uppáhaldsverslun.
Ég skil ekki af hverju hún er ekki komin til
Íslands, ég held hún myndi slá í gegn hér.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt
á mánuði?
Það er mjög mismunandi. Ég
versla mest erlendis og eftir góðar
verslunarferðir getur VISA reikn-
ingurinn minn orðið ansi hár.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið
án?
Ég gæti ekki verið án allra galla-
buxnanna minna. Ég er rosalega
mikið í gallabuxum og á þær í
öllum helstu litum og gerðum.
Uppáhaldsflík?
Sumarkjóllinn minn frá Dolce &
Gabbana sem ég keypti mér á
Spáni síðasta sumar. Hann er hvítur með
bláu, svörtu og grænu mynstri og rosalega
þröngur. Ég nota hann ekki oft, en hann
er samt algert uppáhald.
Hvert myndir þú fara í verslunarferð?
Klárlega til New York. Ótrúlega skemmtileg
borg og endalaust af flottum búðum. Það
er mjög auðvelt að missa sig í verslunar-
sýkinni þar.
Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér?
Ég keypti mér einu sinni fáránlega
ljóta hælaskó í einhverri búð
í L.A. Þeir voru bleikir, með
krókódílaleðursmynstri úr
ógeðslegu plastefni. Ég veit
ekki hvað hljóp í mig þegar
ég festi kaup á þeim. Ég á
þá ennþá inni í skáp en hef
aldrei notað þá.
SMEKKURINN MINN: ÞÓRDÍS ANNA ODDSDÓTTIR VERKFRÆÐINEMI
Skór og Dolce & Gabbana í miklu uppáhaldi
SOKKAR Hnésokkar með bleikum
slaufum frá Spúútnik.
Tákn kvenleikans
YVES SAINT LAURENT Mikið var um slaufur á
sýningu YSL fyrir þetta sumar. Hér er risastór
slaufa um hálsinn á einu módelinu.
FLIPPAÐ Skemmtilegar slaufur í hárið frá
Rokki og Rósum og Spúútnik.
GLÆSILEGIR
Lakkskór frá
Spúútnik.
FLOTTIR Rauðir
lakkskór með
doppóttum
slaufum frá
skóversluninni
Kron.
GLIMMER SLAUFA
Jakki frá Kronkron.
KÖFLÓTT SLAUFA Stutterma-
bolur frá merkinu Fred Perry
sem fæst í Kronkron.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STAERK Slá
frá Kronkron
með borða í
miðjunni.
SÆTUR Ljósbleikur
kjóll frá Rokki og
Rósum.
STÓR Flott risa slaufa
á grænum kjól frá
Rokki og Rósum.
SUMARLEGUR Bróderaður
kjóll frá GK með borða.
HÁLSMEN Slaufan
á hálsmeninu er
punkturinn yfir
i-ið. Fæst í Rokki
og Rósum.
FRÉTTIBLAÐIÐ/VALLI
> Við mælum með
... nýjasta ilmin-
um frá Roberto
Cavalli. Hér er á
ferðinni mjúk-
ur ilmur með
ávaxtakeimi
sem hentar jafnt
hversdags og við
fínni tilefni.
Ég fæ alltaf ákveðna deyfð yfir mig á þessum tíma árs og þá sérstak-
lega núna í sumar. Hálft sumarið er búið en samt er ég einhvern
veginn ennþá að bíða eftir að það byrji. Fékk áfall þegar ég fattaði að
það er bara rúmlega einn mánuður eftir og nokkrar vikur í það að
tískuvöruverslanir borgarinnar fyllist af nýju haust-og vetrarflíkun-
um.
Þar sem ég er ekkert búin að fara til útlanda í sumar er ég varla
búin að nota neitt af sumarfötunum sem ég keypti mér í vor.
Sandalarnir standa óhreyfðir inni í skáp og kjólarnir hafa bara verið
notaðir við þykkar sokkabuxur og stígvél, ekki við hunangsbrúna
kálfa eins og til stóð í byrjun sumars. Síðar peysur og fallegir klútar
standa uppi sem mest notaði sumarfatnaðurinn hingað til. Þvílík
sóun og ef ég þekki mig rétt er ég ekki að fara að nota þetta aftur
næsta sumar. Þá bætast við nýir fataleppar í fataskápinn sem vonandi
fá að njóta sín meira en þessi sumartíska.
Var að tala við vinkonu mína um daginn sem býr í Danmörku og
hún var að lýsa fyrir mér ofsahitabylgjunni sem er þar. Hún er
svakalega ánægð, sprangandi um í léttum sumarkjólum og eyðir
meirihlutanum af deginum berfætt. Ég heyrði hana brosa gegnum
símann á meðan ég sat inni í lopapeysu og ullarsokkum með gæsa-
húð og kökk í hálsinum af öfund.
Þetta er nóg til að lýsa andlegu ástandi landans þetta sumarið og
ef að veðurguðirnir fara ekki að gera vel við okkur klakabúa þá eiga
þeir eftir að fá ærlegt hikstakast vegna ills umtals næstu árin. Þessu
sumri verður seint gleymt.
Ónotaðir fataleppar