Fréttablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 30
[ ] Margir eru uggandi yfir því að afnám á sameiginlegum hámarkstaxta leigubifreiða- stöðva kunni að koma illa nið- ur á farþegum. Páll G. Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlits, segir enga ástæðu til að óttast, þar sem gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana. „Að okkar mati er það ekki hlut- verk samkeppnisyfirvalda að ákvarða hámark ökutaxta fyrir leigubifreiðamarkaðinn hérlendis eins og lengi hefur viðgengist og þess vegna vildum við afnema það fyrirkomulag,“ segir Páll til að útskýra breytinguna og bætir við að sú tilhögun hafi verið arfur frá Verðlagsstofnun. „Að sama skapi var ákveðið að fella úr gildi sameiginlegan hámarkstaxta leigubifreiðastjóra, sem er í kjölfarið óheimilt að hafa verðsamráð,“ útskýrir Páll enn- fremur. „Þar með er grundvöllur lagður að verðsamkeppni þeirra á milli,“ bætir hann við. „Hins vegar var ákveðið að veita leigubílastöðvum tíma- bundna undanþágu til að hafa eigin hámarkstaxta,“ segir Páll. „Þetta gefur leigubílstjórum innan hverrar stöðvar færi á verðsam- ráði. Undanþágan gildir í eitt ár, en á þeim tíma ætti að sjást hvort þessi tilhögun gefst vel eða ekki.“ Nú telja margir að breytingin muni koma illa niður á farþegum, sem muni eiga í vandræðum með að átta sig á gildandi verði. Einnig er óttast að óprúttnir aðilar kunni að misnota sér aðstöðu sína, með því að hækka fargjöld upp úr öllu valdi. Neytendur viti því aldrei hverju þeir geta átt von á. Páll segir að þessi atriði hafi verið höfð í huga þegar undanþág- an var samþykkt. „Við settum það meðal annars sem skilyrði að plastspjald með gildandi hámarks- taxta viðkomandi stöðvar yrði komið fyrir í hverjum leigubíl gegn veitingu undanþágu og erum vongóðir um að það fyrirbyggi misskilning.“ roald@frettabladid.is Undanþága til verðsamráðs Páll G. Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlits, segir það stríða gegn hlutverki samkeppnis- yfirvalda að ákvarða hámark ökutaxta leigubifreiða. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Öryggi neytenda grundvallaratriði GUÐMUNDUR BOGASON, LEIGU- BÍLSTJÓRI HJÁ HREYFLI-BÆJAR- LEIÐUM Í 20 ÁR „Ákveðið óvissuástand skapast á meðan þetta gengur yfir,“ segir Guðmundur um afnám á hámarks- taxta leigubifreiðamarkaðarins. „Vonandi helst sama festa varðandi taxta, svo viðskiptavinir okkar geti áfram gengið að eðlilegri verð- lagningu sem vísum hlut. Öryggi neytenda er grundvallaratriði í þessu máli.“ Hreyfill-Bæjarleiðir er ein leigu- bifreiðastöðvanna sem Samkeppn- iseftirlit veitti árslanga undanþágu til að hafa einn taxta fyrir alla bíla. „Þetta er stærsta stöðin, með 350 bíla eða 65 prósenta markaðs- hlutdeild,“ útskýrir Guðmundur. „Vegna stærðarinnar bjóst ég ekki við að stöðin fengi undanþáguna. Við fengum hana samt og er ég ánægður bæði með það og eins að stjórn Hreyfils skuli hafa ákveðið að fylgja sömu verðstefnu og áður. Gömlu taxtarnir eru enn í gildi.“ Guðmundir segir enga ástæða til bölsýni, takist að halda málum í svipuðum farvegi. „Nú er boltinn hjá rekstraraðilum leigubifreiða- stöðvanna,“ segir hann. „Ég tel ólík- legt að þeir geri glappaskot enda hafa þeir talsverða ábyrgðartilfinn- ingu gagnvart atvinnugreininni og neytendum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Bitnar á neyt- endum og leigubílstjórum KRISTINN MATTHÍASSON, LEIGUBÍLSTJÓRI Í TUTTUGU ÁR, STARFAR NÚ HJÁ BSR. „Ég er ekki hlynntur þessu frelsi sem verið er að gefa með afnámi á hámarkstaxta leigubifreiðamarkaðarins,“ segir Kristinn. „Það leynist misjafn sauður í okkar röðum eins og annars staðar. Hætta er á að einhverjir leigubílstjórar taki upp á því að undirbjóða hvern annan í meiri mæli en áður eða hækki fargjald upp úr öllu valdi, sérstaklega þegar erfitt er að fá bíl, þannig að viðskiptavinir munu ekki vita að hverju þeir ganga. Að mínu áliti mun þetta því bæði bitna á neytendum og eins leigubílstjórunum sjálfum. Það er helst að undanþágan sem Samkeppniseftirlit veitti á dögunum stemmi stigu við þeirri þróun.“ Ýta vandamál- inu á undan sér HAUKUR GESTSSON, LEIGU- BÍLSTJÓRI HJÁ BSR Í TÍU ÁR. „Það er einfaldlega ekki hægt að treysta 570 mönnum fyrir svona löguðu,“ segir Haukur um afnám á hámarkstaxta leigubifreiða og er greinlega mikið niðri fyrir. „Það þarf að hafa ákveðinn mælikvarða sem allir geta fylgt. Það verða alltaf einhverjir óprúttnir aðilar sem munu misnota sér aðstöðuna. Margir bílstjórar brjóta nú þegar reykingabann- ið með því að reykja í eigin bílum, þannig að ekki er von á góðu.“ Haukur segist ekki sjá tilganginn með undanþágunni, sem Samkeppniseftirlit veitti ákveðnum leigubifreiðastöð- um. „Menn eru einfaldlega að ýta vandamálinu á undan sér, þar sem þeir hafa uppgötvað hversu fánýtt þetta fyrirkomu- lag er.“ Tengdamömmubox eru frábær uppfinning. Þau auka geymsluplássið til muna og það hentar stórum fjölskyldum vel. Opið virka daga 8-18 Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni! Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.