Fréttablaðið - 15.07.2006, Page 61
LAUGARDAGUR 15. júlí 2006 45
Það eru margir sem kannast við
Sophiu Kokosalaki enda er erfitt
að gleyma þessu langa nafni. Hún
er fatahönnuður af grískum ættum
og hannar hún undir sínu eigin
nafni.
Eins og margir aðrir
frægir hönnuðir útskrif-
aðist hún úr hinum
fræga listaskóla Cent-
ral Saint Martins í
London og eru höf-
uðstöðvar hennar
þar á bæ. Árið 2004
var hún fengin til
að hanna fatnað
fyrir lokahátíðina
á Ólympíuleikun-
um sem haldin var
í hennar heimabæ,
Aþenu.
Í hönnun Koko-
salaki má sjá áhrif
frá Grikklandi
hinu forna enda er
mikið um fellingar
í efnum og hand-
gerðum smáatriðum.
Hennar sérgrein eru
fallegir og léttir kjól-
ar.
Hún er talin vera
rísandi stjarna í
tískuheiminum en
hönnun hennar er
enn sem komið er
ekki seld á Íslandi,
en vel er þess virði
að leita hönnun
hennar uppi í
útlöndum.
Einn frægasti og vinsæl-
asti trommari heims er
stelpa. Það er hún Meg
White úr tvíeykinu
fræga White Stripes.
Eins og kunnugt er þá
eru hún og Jack White,
söngvarinn í hljóm-
sveitinni, fyrrverandi
hjón en miklar sögur
hafa verið um að
þau væru systkini.
Henni svipar til
Mjallhvítar með
sitt síða svarta
hár og ljósu húð.
Það er alveg
greinilegt að
rauður er hennar
uppáhaldslitur
enda notar hún
hann óspart í bland við svartan
og hvítan. Hún er með frekar
einfaldan fatastíl og dáir
„second hand“-föt og -dót að
eigin sögn. Hún er feimin og
því ekki daglegur gestur á
rauða dreglinum, en þegar
það gerist er hún í falleg-
um kjólum og oft eins og
klippt út úr tímabilinu
1940-1950.
- áp
FÍN OG SÆT ROKKSTELPA Fallegur hvítur
síðkjóll með svörtum blómum sem fer
henni vel.
RAUÐUR JAKKI Rokkuð í hvítum buxum,
með rautt belti og í jakka í stíl.
MJALLHVÍT Lítur út eins og gömul leikkona
í bíómynd en er meðal þekktustu trommar-
anna í heiminum í dag.
FLOTT SAMSETNING
Stuttur svartur kjóll
klikkar sjaldan og setur
hvíti keipurinn flottan
svip á heildarútlitið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Grísk gyðja
FELLINGAR Flottur ljósgrár toppur með
fallegum smáatriðum.
GYÐJAN SJÁLF
Þrátt fyrir ungan
aldur er Sophia
Kokosalaki talin
vera rísandi
stjarna í tísku-
bransanum.
KYNÞOKKA-
FULLT
Fallegur
kjóll úr léttu
efni.
MJÓTT MITTI
Flott svart
mittispils sem
dregur fram
kvenleikann.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
ET
TY
IM
A
G
ES
Rauðklæddi rokkarinn
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI