Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 2
2 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR FRAMKVÆMDIR Ferðamönnum sem hafa átt leið um Kárahnjúkasvæð- ið að undanförnu hefur brugðið í brún við að sjá skilti á svæðinu þar sem þeim er bannað að taka myndir. „Ég var mjög hissa þegar ég frétti af slíku skilti fyrir örfáum dögum síðan,“ segir Sigurður Arn- alds, kynningarstjóri Kárahnjúka- virkjunar. Skiltið er á ábyrgð verktakafyrirtækis, sem hann segir að hafi sett það upp fyrir misskilning. „Væntanlega áttu þeir þetta skilti og ég geri ráð fyrir að eitthvað meira sé skrifað á það. Við höfum farið fram á að málað verði yfir þann hluta sem bannar myndatökur eða að skiltið verði einfaldlega tekið niður.“ Sigurður ítrekar að aldrei hafi verið meiningin af hálfu Lands- virkjunar að banna myndatökur á virkjanasvæðinu. - at Skilti á Kárahnjúkum: Myndatökur ekki bannaðar BJÖRGUNARMÁL „Við finnum virki- lega fyrir því að aðstoðarbeiðnum til okkar er að fjölga,“ segir Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri hjá Lands- björg. Í sumar hafa björgunarsveit- ir verið kallaðar til tvisvar til þrisvar sinnum á dag að jafnaði. Gunnar segir fjölgun ferða- manna aðalástæðu þess að björg- unarsveitir landsins hafi haft mikið að gera í sumar, en nefnir þar að auki miklar rigningar með tilheyr- andi aurbleytu. „Einnig er mikið af erlendum ferðamönnum sem hafa kannski ekki okkar þekkingu á vegunum. Þeir halda að þeir geti farið lengra en gert er ráð fyrir að bíllinn komist, eins og á fólksbílum upp á hálendið,“ segir Gunnar. - at Björgunarsveitir Landsbjargar: Fleiri útköll í sumar en áður BJÖRGUNARSVEITIR Sumarið hefur verið óvenju annasamt hjá Landsbjörg. BRUSSEL, AP Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hyggst koma á fót sérstökum viðbragðssveitum, sem eiga að gæta landamæra aðildarríkja sambandsins. Til að byrja með er einkum búist við því að sveitirnar hafi það hlutverk að efla eftirlit með straumi ólöglegra innflytjenda frá Afríku yfir Miðjarðarhafið til Spánar, Ítalíu og annarra aðildar- ríkja Evrópusambandsins við Mið- jarðarhafið. Franco Frattini, sem fer með dómsmál í framkvæmdastjórn- inni, kynnti þessi áform í gær fyrir fjölmiðlum í höfuðstöðvum fram- kvæmdastjórnarinnar í Brussel. Einnig vill framkvæmdastjórn- in koma upp öflugum gagnagrunni þar sem skráðar verða bæði komur og brottfarir fólks frá öðrum lönd- um til og frá Evrópusambands- löndunum. Þessi gagnagrunnur á að auðvelda stjórnvöldum Evrópu- sambandslandanna að fylgjast með því hvort fólk dvelji ólöglega í landinu, auk þess sem hægt verður að nota hann til þess að skrá far- andverkamenn sem koma tíma- bundið til Evrópusambandsland- anna. - gb FRANCO FRATTINI Kynnti í gær áform Evrópusambandsins um nýjar sérsveitir til landa- mæragæslu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Evrópusambandið vill herða landamæravörslu og hindra ólöglega innflytjendur: Koma á fót viðbragðssveitum Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 ������������ ���������������� ALDRAÐIR Hækkun lífeyris- greiðslna almannatrygginga, lækkun skerðinga bóta og sveigj- anleg starfslok eru meðal atriða í nýju samkomulagi ríkisstjórn- arinnar og Landssambands eldri borgara sem miðar að því að bæta afkomu og aðbúnað ellilíf- eyrisþega. Samkomulagið er byggt á starfi nefndar, undir for- sæti Ásmundar Stefánssonar ríkissáttasemjara, sem skipuð var í janúar. Geir H. Haarde forsætisráð- herra lýsti ánægju með sam- komulagið á fundi í Ráðherra- bústaðnum í Tjarnargötu í gær. Rakti hann innihald þess og sagði miklum fjármunum varið á næstu árum til að uppfylla það. Talsverðar umbætur eru gerðar á almannatryggingakerfi elli- lífeyrisþega sem einnig ná til örorkuþega. Lífeyrisgreiðslur hækka um 15 þúsund krónur frá og með síðustu mánaðamótum, í takt við samkomulag á almenn- um vinnumarkaði. Þá er dregið úr skerðingum bóta vegna tekna maka og annarra tekna bóta- þega, vasapeningar fólks á stofn- unum hækka um 25 prósent og með frestun lífeyristöku hækka allar bótafjárhæðir um 0,5 pró- sent fyrir hvern mánuð fram til 72 ára aldurs. Auka á heimahjúkrun veru- lega frá því sem nú er, tryggja fullnægjandi framboð þjónustu- íbúða í samvinnu við sveitar- félögin og auka framlögin til bygginga hjúkrunarheimila. Er í því samhengi sérstaklega kveðið á um að 1.300 milljónir renni til styttingar biðlista. Ólafur Ólafsson, formaður Landssambands eldri borgara, er ánægður með samkomulagið og þakkar stjórnvöldum fyrir að koma til móts við eldri borgara. Sagði hann að ekki hefðu allar kröfur náð fram að ganga en margur vandinn væri leystur. „Þetta eru fyrstu sporin á langri göngu,“ sagði Ólafur og lýsti sig sérstaklega ánægðan með að laun þeirra sem lægst hafa ellilaunin skyldu hækka um 30-40 prósent. Einnig nefndi hann upptöku frí- tekjumarks sem kveður á um að ellilífeyrisþegar geti haft 30 þús- und króna tekjur á mánuði án þess að ellilífeyririnn skerðist. Kemur það ákvæði til fullrar framkvæmdar árið 2009. Spurður hvort ekki hefði verið hægt að afnema með öllu skerðingar bóta vegna tekna svaraði Geir H. Haarde því til að með þessum aðgerðum væri stigið mjög myndarlegt og þýð- ingarmikið skref. Ólafur Ólafs- son sagði að það yrði áfram bar- áttumál eldri borgara. Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra undirritaði sam- komulagið fyrir hönd Sivjar Friðleifsdóttur, heilbrigðis- og tryggingaráðherra. Sagði hann að dagurinn væri einn sá ánægjulegasti í ráðherratíð sinni enda ríkti nú sátt milli stjórnvalda og eldri borgara. bjorn@frettabladid.is Skerðingar lækka og þjónustan bætt Ríkisstjórnin og Landssamband eldri borgara hafa náð saman um bætta af- komu og aðbúnað ellilífeyrisþega. Aðgerðirnar kosta um tíu milljarða á ári þegar allt er komið til framkvæmda. Lífeyrishlutinn nær einnig til öryrkja. MEGINATRIÐI SAMKOMULAGSINS: ■ Hækkun lífeyrisgreiðslna almannatrygginga. ■ Einföldun bótakerfisins með fækkun og sam- einingu bótaflokka. ■ Lækkun skerðingar bóta vegna maka. ■ Lækkun skerðingar bóta vegna annarra tekna bótaþega. ■ Tekið verði upp frítekjumark vegna atvinnu- tekna ellilífeyrisþega. ■ Hækkun vasapeninga. ■ Starfslok verði sveigjanleg þannig að lífeyris- greiðslur hækki við frestun á töku lífeyris. ■ Heimaþjónusta verði stóraukin og áhersla færð frá stofnanaþjónustu. ■ Fjármagn sem nú gengur til rekstur stofnana úr Framkvæmdasjóði aldraðra gangi til upp- byggingar öldrunarstofnana. ■ Verulega aukið fjármagn til framkvæmda og reksturs átaks vegna biðlista eftir hjúkrun- arrými. ■ Aukin áhersla verði lögð á fullnægjandi fram- boð þjónustu- og öryggisíbúða. Ráðhústurninn tekinn Nokkrir ungir Danir bundu sig við Ráðhústurninn í fyrradag til að vekja athygli á tilraun borgarinnar til að taka aftur hús sem unglingum borgarinnar var gefið fyrir 24 árum síðan. Fólkið fleygði salernisrúllum og miðum út um glugga turnsins með skilaboðum. DANMÖRK HEILBRIGÐISMÁL Samkomulag hefur tekist milli framkvæmdastjórnar Landspítala - háskólasjúkrahúss og Tómasar Zoega um að hann haldi áfram yfirlæknis- starfi sínu við geðsvið spítalans. Tómas mun eftir sem áður sinna stofurekstri úti í bæ, að eigin sögn. „Ég er mjög ánægður með þessa niður- stöðu,“ sagði hann eftir að samkomulag hafði náðst. „Ég er þakklátur framkvæmda- stjórn Landspítalans, læknaráði spítalans, Læknafélagi Íslands og Reykjavíkur og öðrum þeim sem stuðluðu að því að þetta samkomu- lag reyndist mögulegt.“ - jss TÓMAS ZOEGA Samkomulag á Landspítala: Tómas aftur í starf yfirlæknis SPURNING DAGSINS Ásgeir, þurfið þið þá að ganga menntaveginn? „Við erum sennilega jafn fljót að því og að taka strætó.“ Stúdentaráð Háskóla Íslands segir niðurfell- ingu leiðar S5 hjá Strætó bs. tvöfalda þann tíma sem tekur að fara frá Árbænum í Háskól- ann. Ásgeir Runólfsson er framkvæmdastjóri Stúdentaráðs. BAUGSMÁL Jón Ásgeir Jóhannes- son, forstjóri Baugs Group hf., mætir til skýrslutöku hjá Ríkis- lögreglustjóra, vegna kæru sem barst til embættisins frá skatt- rannsóknarstjóra, í ágúst. Jóni Ásgeiri var upphaflega gert að mæta í skýrslutöku hinn 28. júní en henni var frestað fram í ágúst vegna sumarfría. Skýrslutakan fer fram í tengsl- um við mál er fjallar um meint brot gegn skattalögum, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga og almennum hegningarlögum. Ekki hefur verið ákveðið ennþá hvenær í ágúst skýrslutökurnar fara fram. - mh Jón Ásgeir Jóhannesson: Fer í skýrslu- töku í ágúst GEIR H. HAARDE OG ÓLAFUR ÓLAFSSON Ólafur segir undirritunina vera fyrstu sporin á langri göngu. Hinsegin dagar bannaðir Borgar- yfirvöld í Riga, höfuðborg Lettlands, hafa bannað göngu samkynhneigðra. Ástæðan er sú að þau telja sig ekki geta tryggt öryggi þeirra sem taka þátt í henni. Gangan átti að fara fram nú um helgina. Efast nú margir um getu borgaryfirvalda í Riga til að halda fund Atlantshafsbandalagsins. LETTLAND ATVINNUMÁL Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, hefur áhyggjur af hluta þess fólks sem missir vinnu sína vegna brott- hvarfs varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli í september. „Menn telja sig hafa tíma en við höfum áhyggjur af því að ekki séu allir að huga að framtíð sinni,“ sagði Árni í samtali við Frétta- blaðið. Nú hefur um þriðjungur þeirra íslensku starfsmanna varnarliðs- ins sem búa í Reykjanesbæ fengið aðra vinnu og er verið að aðstoða aðra. Ráðgjafarstofa fyrir starfs- fólk á varnarsvæðinu tók til starfa í lok mars og veitir þeim margvíslega aðstoð sem vilja. Boðið er upp á námskeið og aðstoð við gerð ferilskráa og starfsumsókna, auk þess sem fólk er búið undir atvinnuviðtöl. Þá eru laus störf sem kunna að henta varnarliðsstarfsfólki aug- lýst sérstaklega á vef ráðgjafar- stofunnar. Árni Sigfússon segir starfsem- ina hafa gengið ágætlega og almenn bjartsýni ríki um að úr greiðist hjá flestum. Hann ítrekar þó fyrr- nefndar áhyggjur enda líði tíminn hratt og senn komi að því að þeir standi uppi án atvinnu sem ekki geri eitthvað í sínum málum. - bþs Bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur áhyggjur af andvaraleysi varnarliðsstarfsmanna: Huga ekki allir að framtíðinni ÁRNI SIGFÚSSON Hefur áhyggjur af starfs- mönnum varnarliðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.