Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 63

Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 63
FIMMTUDAGUR 20. júlí 2006 43 „Þetta er nútímasaga sem gerist í miðbæ Reykjavíkur,“ segir Guð- rún Ragnarsdóttir, handritshöf- undur og leikstjóri nýrrar stutt- myndar sem verið er að taka þessa dagana í miðbænum. Mynd- in nefnist Konfektkassinn og skartar Önnu Rakel Róberts- dóttur, Pétri Einarssyni og Ellert A. Ingi- mundar- syni í aðal- hlutverki. „Myndin segir frá sam- bandi Önnu og Péturs, en þau leika feðgin í myndinni, og leit þeirra að þriggja hæða konfekt- kassa frá Nóa Síríus. Þetta er ein- stök ferðasaga sem er eins konar uppgjör í sambandi föður og dótt- ur,“ segir Guðrún. „Tökurnar hafa gengið vel. Laugavegurinn er í stóru hlut- verki og á sunnudaginn síðasta í veðurblíðunni lentum við í smá vandræðum en þá þurftum við að stoppa umferðina um miðjan dag og reyndist það þrautin þyngri. Það endaði með því að aðstoðarframleiðandinn þurfti að dansa fyrir bílana til að fá þá til þess að nema staðar,“ segir Guðrún hlæjandi. Það má segja að myndin sé eins konar fjölskylduverkefni því Anna Rakel er dóttir Guðrún- ar og er þetta frumraun hennar á hvíta tjaldinu. Anna Rakel hefur um árabil starfað sem fyrirsæta auk þess að vinna í sjónvarpi svo eitthvað sé nefnt. Framleiðandi myndarinnar er Cinema Reykja- vík og það er Brynhildur Birgis- dóttir sem stjórnar þessu verk- efni en hún er systurdóttir Guðrúnar. Myndin er tekin upp á tíu dögum og eru upptökur hálfn- aðar. Guðrún býst við því að myndin rati inn í bíóhús í byrjun næsta árs. - áp Anna Rakel á hvíta tjaldið GUÐRÚN RAGNARSDÓTTIR Leikstýrir og skrifar handritið að nýju stuttmyndinni Konfektkassinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ANNA RAKEL RÓBERTSDÓTTIR Þreytir frum- raun sína á hvíta tjaldinu í stuttmyndinni sem verður frumsýnd á næsta ári. Sumarkjólar áður 19.990 nú 9.990 áður 17.990 nú 5.390 áður 9.990 nú 1.990 Spurningakeppnin Drekktu betur á Grand rokk verður með óvenjulegum hætti á föstudaginn eftir viku, hinn 28. júlí. Þá munu drag- drottningarnar Keikó og Roxie verða í hlutverki spyrla og spurningar þeirra tengjast flestar samkyn- hneigð í ljósi sögunnar. „Við erum með drag- keppnina 9. ágúst næstkom- andi og fengum þarna tæki- færi til að taka smá þjófstart á keppnina,“ segir drag- drottningin Keikó. „Við ætlum að reyna að kveikja í fólki fyrir keppnina og spurningarnar verða eflaust margar í flóknari kantinum, eins og venjan er í þessum keppnum á Grand rokk,“ segir Keikó. Keikó segir að fastagest- ir á Drekktu betur hafi vissulega erindi á keppnina eftir viku, því allir muni vita nóg til að vera með. „Fólk má endilega mæta í dragi ef það vill. Við Roxie verð- um alla vega í fullum skrúða og reynum að skemmta fólkinu.“ Dragdrottningar á Grandrokk DRAGDROTTNINGIN KEIKÓ Verður spyrill á Drekktu betur á Grand rokk á föstudaginn eftir viku. Keppnin hefst klukkan 17.30 og allir eru velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.