Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 20. júlí 2006 27 Það eru greinilega kosningar framundan, ekki aðeins í forystu flokka heldur styttist tíminn til næstu alþingiskosninga og þá eru síðustu forvöð að bæta ráð sitt gagnvart hópum sem hafa verið afskiptir, þótt ef til vill sé heldur seint í rassinn gripið. Siv Frið- leifsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti stefnumótun í málefnum aldraðra á dögunum, – tíu mánuð- um fyrir kosningar. Gott er að fá stefnumótun frá ríkisstjórninni þótt seint sé. Hingað til hefur málaflokkurinn verið afskiptur í heilbrigðisráðuneytinu og ástand- ið í málefnum aldraðra eftir því. Margir hafa styrkst í þeirri skoð- un að þennan málaflokk þyrfti að flytja til ráðuneytis félagsmála og verkefnin til sveitarfélaganna í auknum mæli. Nú vill ráðherra efla heima- þjónustu, færa heimahjúkrun undir félagsþjónustuna, þ.e. til sveitarfélaganna. Hún vill koma á nætur- og helgarþjónustu í heimahúsum. Samfylkingin og þingmenn hennar hafa á Alþingi hvað eftir annað hvatt til að þetta verði gert, en án árangurs. Samfylkingarstefnan nær eyrum ráðherra Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt sérstaka áherslu á öldr- unarmálin á þessu kjörtímabili og sett þau í forgang og nú virðist sá málflutingur vera að ná eyrum ráðamanna. Ég fagna sérstaklega viðsnún- ingi Sivjar í sambandi við geð- heilbrigðisþjónustu við aldraða. Nú ætlar hún að koma á öldrun- argeðdeild, − gott! Það vildi fyr- irrennari hennar ekki. Í vetur kallaði ég eftir því í fyrirspurnartíma á Alþingi og svaraði Jón Kristjánsson því neit- andi, hann taldi ekki þörf á sér- stakri öldrunargeðdeild, – þótt þörfin væri mikil samkvæmt mínum heimildum. Vonandi tekst Siv að fá fjármagn til þessa verks. Nú vill Siv að þeir sem eru í mestri þörf fái forgang á hjúkr- unarheimilin, – hún var ekki alveg viss í vetur þegar ég ræddi þessi mál við hana á Alþingi. Ég spurði hana hvort ekki væri nauð- synlegt að LSH hefði forgang í innlögnum á fleiri hjúkrunar- heimili en tvö eins og nú er, til að leysa vanda 100 aldraðra á spítal- anum, sem ekki var hægt að útskrifa. Hún var tilbúin að íhuga það þá. Það hefur hún greinilega gert og ég fagna þessum áhersl- um hennar. Hún vill líka fjölga fagfólki í þjónustunni og er það vel. Samfylkingin hefur ítrekað lagt áherslu á að það verði gert. Nú vill hún koma á sjúkra- hússtengdri heimaþjónustu fyrir aldraða, – sem hún var andvíg í vetur þegar ég hvatti til að það yrði gert í fyrirspurnatíma á Alþingi. Ekki er vanþörf á henni eins og við í Samfylkingunni höfum oft bent á. Í vetur voru heldur ekki til neinar upplýsing- ar um það hversu oft aldraðir kæmust ekki heim um helgar vegna skorts á heimaþjónustu. Það var oft samkvæmt mínum upplýsingum og einnig var það oft ástæðan fyrir því að ekki var hægt að útskrifa gamalt fólk heim af sjúkrahúsi. Blágræna bandalagið – orð án athafna Fjölgun hjúkrunarrýma er gam- alkunnur söngur úr ráðuneytinu; hann hefur verið ótrúverðugur á sama tíma og tæplega helmingur þess fjár sem á að renna til upp- byggingar hjúkrunarheimila með skatti til Framkvæmdasjóðs aldr- aðra hefur farið í annað í ellefu ára stjórnartíð blágrænu flokk- anna tveggja, Bé og Dé. Skyldi Siv ná að breyta þessu fyrir kosn- ingar? Ekki er von á úrbótum í hjúkrunarmálunum fyrr en eftir þær, miðað við núverandi áætlun. Vonandi fylgja athafnir orðum ráðherrans nú. Upplýsingagjöf og ráðgjöf við aldraða og aðstandendur þeirra á að auka, en í þeim efnum er víða pottur brotinn eftir ellefu ár Framsóknar yfir málaflokknum. Ekki er ólíklegt að hin öflugu samtök aðstandenda aldraðra, AFA, með Reyni Ingibjartsson í fararbroddi, og Félag eldri borg- ara undir styrkri forystu Mar- grétar Margeirsdóttur hafi náð eyrum ráðherrans í þessum efnum nú á síðustu vikum og mánuðum. Ráðherra ætlar að berjast fyrir fjárveitingum til að ná þessu fram. Þar reynir á vilja samstarfsflokksins í blágræna bandalaginu, en fjármálaráð- herra hefur mikið um það að segja. Nú er að sjá hvernig fjárlaga- frumvarpið, það síðasta fyrir kosningar, mun líta út í þingbyrj- un. Ef áform Sivjar eiga að verða að veruleika verður að veita fé til þeirra í fjárlögum. Ella er þetta bara tómt tal, án efa til þess ætlað að plata kjós- endur til fylgis við sig í von um að þeir séu búnir að gleyma aðgerðaleysinu í málefnum aldr- aðra undanfarin tólf ár. Ásta R. Jóhannesdóttir þingmaður Samfylkingarinnar Tómt tal án fjármagns UMRÆÐAN HEILBRIGÐISMÁL ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR ALÞINGISMAÐUR Ég fagna sérstaklega viðsnún- ingi Sivjar í sambandi við geðheilbrigðisþjónustu við aldr- aða. Nú ætlar hún að koma á öldrunargeðdeild, – gott! Það vildi fyrirrennari hennar ekki. Hingað til hefur mála- flokkurinn verið afskipt- ur í heilbrigðisráðu- neytinu og ástandið í málefnum aldraðra eftir því. Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi • Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík • Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki • Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi • Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík Sérfræðingar í útimálningu fyrir íslenskar aðstæður Baldvin Már Frederiksen málarameistari ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - M A L 32 66 3 0 5/ 20 06 „Áður en þú velur málninguna, sem þú ætlar að nota, skaltu athuga hvort hún sé gerð fyrir íslenskar aðstæður. Íslenskt veðurfar er gjörólíkt því sem menn eiga að venjast erlendis. Þess vegna nota ég alltaf útimálningu frá Málningu hf.“ Baldvin Már Frederiksen, málarameistari 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.