Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 20
 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR20 fréttir og fróðleikur Indverjar reyna nú að finna meiningu í árás hryðju- verkamanna á lestakerfi Mumbai, sem varð yfir 200 manns að bana í síðustu viku. Tengja þeir árásina óhjákvæmilega við aðrar svipaðar sem framdar hafa verið á síðustu mánuðum. Á síðustu tíu mánuðunum hafa þrjár vel skipulagðar sprengju- árásir orðið yfir 275 manns að bana í þremur borgum Indlands. Þrátt fyrir gríðarmikla rannsókn hafa yfirvöld ekki ákært neinn vegna hryðjuverkanna, og þær ábyrgðaryfirlýsingar sem komið hafa teljast ótrúverðugar. Jafnframt virðist erfitt að finna ástæðu fyrir sprengjunum. Forsætisráðherrann Manmo- han Singh segir líklegt að ástæðan liggi í uppsveiflunni sem nú ríkir í Indlandi og segir öfgahópa vilja koma í veg fyrir að Indverjar verði ein valdamesta þjóð heims. Aðrir segja hryðjuverkasam- tök reyna að vekja óöld milli hind- úa og múslima, og enn aðrir telja sökina liggja hjá pakistönskum múslimum sem hafa lengi barist fyrir aðskilnaði Kasmír-héraðs frá Indlandi. Þar ber einna hæst sam- tökin Lashkar-e-Tajba. Sprengingarnar Sprengingarnar í síðustu viku ollu miklum áhyggjum á alþjóðavett- vangi og sendu fjölmargar þjóðir samúðarkveðjur til Indlands. Sjö tímastilltar sprengjur sprungu í lestakerfi Mumbai-borgar (áður Bombay) á háannatíma síðdegis þriðjudaginn 11. júlí og ollu dauða 207 manns, en yfir 800 manns særðust. Ekki eru nema fjórir mánuðir síðan sprengjur sprungu í helgi- húsi í Varanasi, helgustu borg hindúa, og urðu þær tuttugu manns að bana. Þar áður fórust 62 í sprengjuárás á markaði í höfuð- borg Indlands, Nýju-Delí, í október 2005. Undrun vekur að árásirnar eiga það allar sameiginlegt að enginn trúverðugur hópur hefur lýst ábyrgðinni á hendur sér og þó ind- verska lögreglan hafi yfirheyrt hundruð manna, aðallega mús- lima, hefur enginn verið ákærður. Hindúar, múslimar og Kasmír Flestir Pakistanar eru múslimar, á meðan meirihluti Indverja er hindúar. Hins vegar eru flestir íbúar Kasmír-héraðs múslimar. Eftir að Bretar höfðu sig á brott frá Indlandi árið 1947 klofnaði landið í Pakistan og Indland í blóð- ugum átökum. Bæði löndin gerðu tilkall til Kasmír, og skiptu Sam- einuðu þjóðirnar því á milli Ind- lands og Pakistans árið 1949. Hafa löndin tvö svo barist um það síðan. Lashkar-e-Tajba Fjölmargir hátt settir Indverjar hafa sagt árásirnar í síðustu viku bera merki Lashkar-e-Tajba, hóps herskárra múslima sem starf- ræktur er í Pakistan. Þó hefur ind- verska ríkisstjórnin ekki lýst ábyrgð á hendur samtökunum, og talsmenn Lashkar-e-Tajba hafa neitað aðild þar að. Upphaflega var eina takmark meðlima Lashkar-e-Tajba að frelsa Kasmír frá Indlandi, en hópurinn hefur vaxið mikið undanfarin ár og rekur nú bæði munaðarleysingja- hæli og æfingabúðir skæruliða. Samtökin voru bönnuð í Pakist- an árið 2001, en leiðtogar hans reyna þó ekki að fara huldu höfði. Suma fréttaskýrendur grunar að Lashkar-e-Tajba njóti stuðnings al-Kaída samtakanna, sem Osama bin Laden leiðir, og að þeim sé ætlað að færa baráttu al-Kaída yfir til Suður-Asíu. Þó eru engar beinar sannanir fyrir þessu. Viðbrögð Indverja Á þriðjudag, viku eftir árásirnar í Mumbai, höfðu Indverjar tveggja mínútna þögn til að minnast fórn- arlambanna. Forsetinn Abdul Kalam leiddi þjóð sína í minning- arathöfninni og safnaðist gríðar- legur fjöldi manna á þeim stöðum þar sem árásirnar voru framdar. Fólkið kveikti á kertum, öll umferð stöðvaðist og kvikmyndahús gerðu hlé á sýningum sínum. Á laugardag og þriðjudag komu tölvupóstsendingar til indverskr- ar sjónvarpsstöðvar, þar sem sendandinn sagðist vera talsmað- ur lítt þekktra samtaka herskárra múslima, Lashkar-e-Qahhar eða Ógnarherinn. Sagði hann samtök- in bera ábyrgð á sprengingunum í Mumbai. Í gær sagði lögregla hins vegar ungan dreng frá Bhopal-borg hafa sent skeytin og að hann væri ekki talsmaður samtakanna. Þessi samtök hafa sagst bera ábyrgð á sprengingunum í Var- anasi í mars, en mikill vafi leikur á lögmæti þeirrar yfirlýsingar. Indversk lögregluyfirvöld hafa sakað hryðjuverkahópa í Pakistan um að bera ábyrgð, en pakistönsk stjórnvöld, sem og viðurkenndir talsmenn ýmissa hópa, þeirra á meðal Lashkar-e-Tajba, hafa neit- að þeim ásökunum. Ljóst er þó að árásirnar og afleiðingar þeirra hafa ekki ein- faldað friðarviðræður milli land- anna tveggja, né fært nokkra lausn á deilunni um Kasmír. Svona erum við 1995 66 7. 90 7 72 2. 71 4 79 8. 22 2 49 8. 80 8 1998 2001 2004 > Sláttur grassvæða á Akureyri í fermetrum Öldungadeild Bandaríkjaþingsins samþykkti á dögunum frumvarp sem eykur fjárveitingar til rannsókna á stofnfrum- um. George Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur sagst ætla að beita neitunarvaldi gegn frumvarpinu. Málið hefur vakið hörð viðbrögð, bæði hjá þeim sem segja stofn- frumurannsóknir nauðsynlegar fyrir framþróun í læknavís- indum og hjá þeim sem segja rannsóknirnar eyðileggja mannslíf. Hvað er að gerast í deilunni? Öldungadeildin samþykkti þrjú mismun- andi frumvörp sem tengjast stofnfrumu- rannsóknum hinn 18. júlí, þar á meðal frumvarpið umdeilda sem Bush hefur hótað að stöðva. Hin frumvörpin tvö snerust annars vegar um rannsóknir á stofnfrumum sem koma ekki úr fóstur- vísum og hins vegar bann á ræktun fósturvísa til stofnfrumurannsókna. Hvað segir Bush? Þótt Bush sé fylgjandi rannsóknum á stofnfrumum fullorðinna segir hann að notkun efna úr fósturvísum sé allt annað mál. Í hans augum eigi skattpeningum ekki að vera varið í „vísindi sem eyðileggja líf til þess að bjarga lífi“. Árið 2001 lýsti hann því yfir að fjármagn frá alríkisstjórninni bærist aðeins rannsóknar- stofnunum sem notuðu stofnfrumur sem þegar væru til. Hvað segja andstæðingar hans? Stuðningsmenn rannsókna á stofnfrumum úr fósturvísum segja að mannslífinu sé sýnd virðing með því að nota tæknina til að finna lækningu við sjúkdómum. Margir þeirra viðurkenna að þörf sé á ströngu eftirliti með rannsóknum en segja núverandi hömlur vera hugsjónalegs eðlis. Í seinustu forsetakosningum í Bandaríkjunum lofaði John Kerry, frambjóðandi demókrataflokksins, að yrði hann kosinn myndi hann gera stofnfrumurannsóknir að forgangsatriði í ríkisstofnunum, háskólum og lækna- samfélaginu. FBL GREINING: STOFNFRUMURANNSÓKNIR Í BANDARÍKJUNUM Harðar deilur um stofnfrumurannsóknir � ������� ���� ������ ��� ��� � ���������� ������ ��� ��� ��� ����� ���� ��������� ���������� ��������� ������ ������� �������� Heimild: Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar Óþekktir hryðjuverka- menn vekja ótta KORT AF INDLANDI KORTAGRUNNUR SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA, KORT 4140 SPRENGJUR Slökkviliðsmaður stendur við eina lestanna sem eyðilögðust í sprenging- unum í Mumbai fyrr í þessum mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MINNINGARATHÖFN HALDIN Fjöldi fólks minntist þeirra sem fórust í hryðjuverkum í Mumbai á Indlandi hinn 11. júlí. Minningarathöfnin var haldin um allt Indland á þriðjudag, viku eftir árásirnar. Þetta var þriðja stóra sprengjuárásin á Indlandi á tíu mánuðum, en enginn hefur verið ákærður í tengslum við þær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FRÉTTASKÝRING SIGRÚN MARÍA KRISTINSDÓTTIR smk@frettabladid.is Á þriðjudag kviknaði eldur í skemmu rétt við gömlu Áburðar- verksmiðjuna í Gufunesi, skemmu sem Íslenska gámaþjónustan hafði til umráða. Jón Frantzson er framkvæmdastjóri Íslenska gámafélagsins. Hve langt er síðan áburðar- framleiðslunni var hætt? Það er á bilinu 4 til 6 ár síðan. Það er engin áburðarframleiðsla á landinu í dag. Áburðarframleiðslan er samt til, þessi gamla góða. Hún flytur inn áburð. Hver á húsnæðið? Reykjavíkurborg á húsnæðið og við leigjum það af henni. Svo framleigjum við það til ýmissa aðila. Hér er stál- smiðja, heildverslun, listamenn og margt fleira. Á húsnæðið að standa áfram? Ekki um ókomna tíð. Hér er blómleg starfsemi í flestum húsum, þannig að það stendur ekki til að rífa þetta á næstu tveimur til fjórum árum, held ég. Þarna á í framtíðinni að rísa blönduð byggð, íbúðar- og iðnaðarbyggð. SPURT OG SVARAÐ GAMLA ÁBURÐARVERKSMIÐJAN Listamenn og heildverslun JÓN FRANTZSON FRAMKVÆMDASTJÓRI ÍSLENSKA GÁMAFÉLAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.