Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 20. júlí 2006 3
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Samnefnari fyrir sól og drauma
Franska Riverían og St. Tropez hafa löngum verið samnefnari fyrir
lúxus og drauma. Fyrir þotuliðið, hvort sem um er að ræða það franska
eða alþjóðlega, er St. Tropez ómissandi viðkomustaður yfir sumarið. Í
dag er franska suðrið orðið aðgengilegra almenningi en áður, um það
vitna tjaldstæði og hjólhýsabyggðir. Alltaf er þó ákveðinn hefðar-
sjarmi yfir Provence-alpes-cote d´azur-héraði. Eftir sólbað og sjóferð-
ir á einkaströndum eru dregin fram fínu fötin frá tískuhúsunum í
París, kampavínið sötrað og næturklúbbarnir þræddir fram á morg-
un. Þá er vissara að vera á gestalistanum. Víst er að nóg er af sól um
þessar mundir á Ríveríunni. Við höfum séð allt að 36 gráður í skugga
í París og enn hærra hitastig í Suður-Frakklandi.
Eitt nafn sem við tengjum við sól, hita og lúxus á frönsku Ríveríunni
er Riva. Riva er í hraðbátum það sem Ferrari er í bílaiðnaðinum. Tákn
glæsileika, hraða og nákvæmni. Saga Riva hófst 1842 með Pietro Riva
sem byrjaði að smíða fiskibáta fyrir nágranna sína í smábæ á Ítalíu en
það var á þriðja áratug tuttugustu aldar sem Riva varð ómissandi
þáttur í kappsiglingum og þá voru slegin heimsmet í hraða.
Eftir seinni heimstyrjöldina fór Carlo Riva, ungur verkfræðingur, að
hanna báta sem urðu seinna lykillinn að velgengni þessa fjölskyldu-
fyrirtækis. Hann byrjaði á að hanna bátalínu í takmörkuðu upplagi og
fékk svo frægustu arkitekta til að hanna innbúið. Það var úr viði frá
Fílabeinsströndinni og krómi, með stórum leðurstólum líkt og flott-
ustu amerísku bílarnir á sjötta áratugunum. V-laga báturinn varð
aðalsmerki Riva. Um 1960 mátti sjá allar helstu stjörnurnar, hvort
sem var í St. Tropez eða Portófinó í Mónakó, sigla um í þessum bátum
og sitja fyrir hjá ljósmyndurum blaðanna. Brigitte Bardot, Kirk
Douglas, Rainer af Mónakó, Anita Ekberg, Taylor og Burton eða Huss-
ein af Jórdaníu, öll áttu Riva-bát. Seinna, þegar trefjaplast og fleiri
léttari efni koma til sögunnar á sjöunda áratug tuttugustu aldar, urðu
Riva-bátarnir léttari og enn straumlínulagaðri. Loks, eftir 1970, lét
Carlo fyrirtækið úr höndum sér og dró sig í hlé en tók áður þátt í að
byggja höfn sem heitir eftir honum. Hún er skammt frá Portófínó þar
sem að Riva-bátarnir eru endurbyggðir og sérfræðingar í bátasmíð-
um eru þjálfaðir til að halda þeim við. Hver og einn þeirra er nefni-
lega varðveittur eins og safngripur þó eigendurnir vilji gjarnan sigla
þeim stöku sinnum.
Brad Bitt, Matt Damon og George Clooney hafa tekið við af Kirk, Eliz-
abeth og Richard. Enn er það toppurinn að láta mynda sig í Riva-bát.
www.66north.is
REYKJAVÍK: Kringlan - Bankastræti 5 - Faxafen 12
GARÐABÆR: Miðhraun 11 - AKUREYRI: Glerárgata 32
Bakpokar
15-70 l,
verð frá 1.900 kr.
Svefnpokar
fyrir allar aðstæður
verð frá 6.900 kr.
Tjöld
2ja - 6 manna
verð frá 4.900 kr.
Gönguskór
margar gerðir
Vertu
um helgina
útivera
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI