Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 48
 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR28 og fólk ? Vissir þú?að Baldur frá Bakka á 369 skráð afkvæmi? Þar af eru 44 komin með fyrstu einkunn en hæst dæmda af- kvæmið er Depill frá Votmúla sem hlotið hefur 8,57 í aðaleinkunn. www.worldfengur.com Olil Amble sigraði síðustu helgi í fjórgangi á Íslandsmeistaramótinu á stóðhestinum Suðra frá Holtsmúla. Þetta er í þriðja sinn á fjórum árum sem þetta glæsilega par hampar titlinum. „Suðri er gullfallegur, viljugur klárhestur með tölti og er mjög sterkur persónuleiki.“ Þannig lýsir Olil Suðra sem hún hefur þjálfað á fimmta ár en áður var hann taminn í Holtsmúla þar sem hann er fæddur. Innt að því hvort þjálfunin hafi verið eintómur dans á rósum neitar hún því og játar að hafa oft lent í hremmingum. „Þetta er hreyfingarmikill hestur og mikill persónuleiki. Þegar maður hefur verið með hest svona lengi þá er maður farinn að þjálfa inni á einhverju sviði sem maður hefur aldrei verið á áður sem knapi. Maður er farinn að ríða á afleiðingum þjálfunarinnar og í þessari þróun getur enginn sagt þér hvað er eðlilegt og hvað ekki. Maður þarf að þreifa sig áfram og lendir þá stundum í ógöngum sem maður þarf að bakka út úr og finna nýja leið,“ útskýrir Olil sem er þó mjög sátt við útkomuna enda segir árangurinn sína sögu. „Við höfum náð sáttum og ég held að hesturinn hafi þróast mjög vel á milli ára og sé alltaf að verða betri.“ Það sem fólk tekur helst eftir hjá Suðra er glæsilegt og hreyfingarmikið brokkið. Spurð að því hvernig hægt sé að ná fram slíku brokki svarar Olil því til að þetta sé meðfætt. „Hæfileikinn er meðfæddur en síðan er það knapans að láta hestinn halda hæfileik- anum og jafnvel þróa hann og magna. Það vona ég að ég hafi gert,“ segir Olil sem stefnir með Suðra á heims- meistaramótið á næsta ári. Hún segir algera sátt ríkja meðal eigenda hestsins um það enda hafi það verið ákveðið strax þegar Jón Ólsen og Erla kona hans keyptu helminginn í hestinum af Holtsmúlabúinu. Ekki er búið að selja hestinn en Olil telur að það verði leikur einn að selja hann að loknu mótinu. Ekki er dauður punktur í lífi Olil sem undirbýr nú utanför með landsliði Íslands á Norður- landamót þar sem hún mun starfa sem þjálfari og aðstoð- armaður Hafliða Halldórssonar landsliðseinvalds. HESTAMAÐURINN: OLIL AMBLE Stefnir með Suðra á heimsmeistaramót MYND/HESTAR, AXEL Hestamannafélagið Smári heldur árlega gæðingakeppni á Murneyri næstkomandi laugardag 22. júlí. Þetta er í síðasta sinn sem slík keppni verður haldin á Murneyri. Guðni Árnason, formaður hesta- mannafélagsins, segir keppnina á Murneyri eiga sér áratuga langa sögu. „Margir eiga mjög góðar minningar frá Murneyrarmót- um,“ segir Guðni og bætir við að Murneyrarmótið hafi ávallt verið stórt og veglegt. Hins vegar hafi á síðustu árum orðið mikil þróun í hestamennsku. Fólk keyri lang- ar leiðir til að keppa á hestum og fara með hryssur undir stóðhesta. „Þá voru Sleipnismenn alltaf með okkur í þessu. Þeir eru hins vegar komnir með toppaðstöðu á Sel- fossi og hafa því ekki tekið þátt í mótinu undanfarin ár. Þó að í hestamannafélaginu Smára séu um 130 félagar þá ber það sig ein- faldlega ekki að halda úti völlum í hverju sveitarfélagi eins og var áður,“ segir Guðni en framtíð- arkeppnissvæði Smára verður á Flúðum. „Ef nafni minn landbún- aðarráðherra lætur okkur hafa styrk til reiðhallarbyggingar eins og hefur verið beðið eftir, verður hún byggð á Flúðum,“ segir Guðni og bætir við að á vegaáætlun sé komin brú yfir í Reykholt sem stytti ökutímann frá Reykholti á Flúðir niður í fimm mínútur. „Þetta var einfaldlega orðið barn síns tíma,“ segir Guðni áfram um Murneyrarmótin en hestamannafélagið hafði svæð- ið á leigu. Hvað verður um það í framtíðinni er undir landeiganda komið. Síðasta Murneyrarmótið á laug- ardaginn stendur aðeins þennan eina dag og lýkur með kvöldvöku með varðeldi. Murneyrarmótið haldið í síðasta sinn: Barn síns tíma FRÁ MURNEYRARMÓTI Margir eiga mjög góðar minningar frá Murneyri. Hér eru sigurvegar- ar í tölti á Murneyrarmóti árið 1978. FRÉTTABLAÐIÐ/VORSABÆR 2 Þórarinn Eymundsson og Kraftur frá Bringu unnu einstætt afrek á nýafstöðnu Íslandsmóti. Þeir sigruðu bæði í fimmgangi og tölti meistara, en það mun ekki hafa gerst áður að sama par hampi þessum tveimur titlum. „Maður vinnur náttúrulega ekki Formúluna á Skóda,“ segir Þór- arinn Eymundsson sem vann það einstæða afrek á Krafti frá Bringu að sigra bæði í fimmgangi og tölti meistara á nýafstöðnu Íslandsmóti. Þetta er í fyrsta skipti sem sama par sigrar báðar þessar greinar á Íslandsmóti. Þeir hlutu 8,50 í einkunn í tölti og 7,98 í fimmgangi. Spurður hver sé galdurinn á bak við árangur af þessu tagi segir Þórarinn það fyrst og fremst vera góðan undirbúning hests og knapa. Kraftur sé hreinn snillingur eins og best hafi sýnt sig á mótinu. „Það eitt dugir þó ekki til. Það verður að vera gott samspil milli manns og hests,“ heldur Þórarinn áfram. „Þarna þurfa margir þættir að koma saman. Þjálfunin þarf að vera rétt og hesturinn þolinn, sem er mjög mikilvægt þegar verið er að taka tvær greinar saman. Þá þarf tæknilega hliðin að vera í lagi, þannig að hægt sé að stilla hestinn milli gangtegunda á réttum tíma og svo framvegis.“ Þórarinn útskýrir að hugsa þurfi sérlega vel um alla þætti sem snúi að líkamlegu og andlegu ástandi hestsins. Þá sé ekki síður mikilvægt að knapinn sé sjálfur í jafnvægi. Hann þurfi að vera vel úthvíldur og einbeitingin í góðu lagi. „Úrslitin ráðast að miklu leyti utan vallar. Upphitun þarf að fara rétt fram og að hún leiði það af sér að hestur og knapi séu búnir að stilla sig rétt inn þegar farið er í brautina, þannig að báðir viti hvað stendur til. Einbeiting hests og knapa er gríðarlega mikilvæg. Þarna eru mörg smáatriði sem þurfa að falla saman. Samhæfa þarf hreyfingar knapans, sem eru að vísu ekki miklar. En þær þurfa að eiga sér stað á réttu sekúndu- broti, á hárréttu augnabliki. Ég náði þessu þarna um helgina. Hest- urinn var einbeittur og þá náðum við að sýna okkar bestu hliðar.“ Þórarinn segir enga eina for- múlu fyrir því hvernig best sé að hita hest upp fyrir keppni. Sál- fræðiþátturinn sé stór. Knapinn þurfi að skynja hvað hesturinn sé að hugsa og geta brugðist við því. Það sé einmitt það sem geri keppni í hestaíþróttum svo flókna sem raun ber vitni. Sjálfur kveðst Þórarinn nú ætla að taka sér sumarfrí. Hann ætlar sér svo að halda áfram að keppa á hryssunni Ester frá Hólum sem hann vann 100 metra flugskeiðið á á Íslandsmótinu. jss@frettabladid.is ÞÓRARINN OG KRAFTUR FRÁ BRINGU Sigurhringurinn var farinn með glæsibrag, enda einstæður árangur að baki. MYND/HESTAR, AXEL Maður vinnur ekki Formúlu á Skóda Norðurlandamótið hefst mánudaginn 24. júlí og stendur til 30. júlí. Mótið er að þessu sinni haldið í Herning í Danmörku en skemmst er að minnast heimsmeistaramótsins sem haldið var þar með glæsibrag árið 2003. Íslenska landsliðið er skipað tíu knöpum í fullorðinsflokki, fimm í flokki ungmenna 16-21 árs og þremur ungling- um. Margir hestanna eru fengnir að láni fyrir Íslendingana enda ekki hlaupið að því að flytja hross út á slík mót. Hafliði Halldórsson er landsliðsein- valdur en honum til halds og trausts verður Olil Amble. Einar Ragnarsson var ráðinn yfirdómari en íslenskir dómarar verða Pétur Jökull Hákonarson og Sigurður Kolbeinsson. Á mótið koma keppendur frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Færeyjum og Danmörku. ■ Norðurlandamótið hefst á mánudag Hólaskóla bárust í vor 167 umsóknir um námsvist og hafa þær aldrei verið fleiri. Ákveðið var að fjölga nemendum í hrossaræktardeild en þar giltu áður fjöldatakmarkanir. Það jókst því mjög fjöldi umsókna í deildina. Hefja um þrjátíu nemendur nám í hest- afræðum og leiðbeinendanámi í haust. Áhugi er á að auka fjölda nemenda á næstu árum. Bygging nýs 200 hesta hesthúss ásamt reiðaðstöðu gerir þetta kleift og er áætlað að byggingunni verði lokið í sumar. ■ Nemum fjölgar í Hólaskóla Við höldum með þér! Frábær ferðaleikur fyrir alla fjölskylduna Komdu v ið á næs tu Olís-s töð og fáðu stimpil í Ævintýr akortið – og æv intýragl aðning í leiðinni . Vertu m eð í allt sumar!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.