Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 10
10 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR
KROSSFESTI LEIGUBÍLSTJÓRINN Það dugði
ekkert minna en krossfesting fyrir þennan
ítalska leigubílstjóra til að mótmæla
breyttri löggjöf um leiguakstur.
NORDICPHOTOS/AFP
Enn meira úrval af margskonar gjafavöru
sem prýðir heimilið
Gjafavara
Onde
matar – og kaffistell
Franskt gæða postulín
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
33
49
4
0
7/
20
06
www.lyfja.is
„Ég geri meira fyrir mig og mína á sumrin“
PGX - Drykkjarblanda
Bylting í þyngdarstjórnun.
Misstu fituna - ekki vöðvamassa eða vökva.
Metasys
Bætt úthald, orka og kjörið til
þyngdarstjórnunar.
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað
Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki
Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Nakd - Hráfæðisbar
Hollusta og orka í hverjum bita, engin aukaefni
og enginn viðbættur sykur.
SJÚKRAFLUG Starfshópur heilbrigð-
isráðuneytisins sem falið var að
gera úttekt á sjúkraflugi í
Vestmannaeyjum skilaði bráða-
birgðaniðurstöðu á dögunum.
Samkvæmt henni hefur flug-
rekstrarfélagið Landsflug, sem
sér um sjúkraflug í Eyjum, stað-
ist settan viðbragðstíma í öllum
þeim 33 sjúkraflugum sem farið
hafa þaðan frá áramótum, utan
eins þar sem viðbragðstíminn
var fimm mínútum lengri en
leyfilegt er. Ekki þykir tilefni til
tafarlausra aðgerða af hálfu
ráðuneytisins.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, sem bað um að
úttektin yrði gerð, segir ekki öll
kurl komin til grafar. „Ég tek strax
eftir því að í skýrsluna vantar tvö
sjúkraflug þar sem lífshætta skap-
aðist vegna fjarveru sjúkraflug-
vélar og tafa á viðbragðstíma,“
segir hann. „Við munum gefa
umsögn um skýrsluna og ég vona
að lokaniðurstaðan verði önnur en
þessi.“
Rúnar Fossádal Árnason, fram-
kvæmdastjóri hjá Landsflugi,
segir niðurstöðuna í takt við það
sem hafi verið vitað. „Við skiljum
ekkert í því að bæjarstjórinn og
aðrir í Eyjum séu að æsa sig yfir
þessu án þess að kynna sér báðar
hliðar málsins,“ segir Rúnar. - sþs
Starfshópur um sjúkraflug í Vestmannaeyjum skilar bráðabirgðaúttekt:
Telja ekki tilefni til aðgerða
EIN FLUGVÉLA LANDSFLUGS Framkvæmda-
stjóri hjá Landsflugi segir niðurstöðu
nefndarinnar í samræmi við það sem
félagið hafi þegar vitað.
SKIP Eitt stærsta og glæsilegasta
seglskip heims lagðist í gærmorg-
un að bryggju við Ægisgarð í
Reykjavíkurhöfn. Skipið ber nafn-
ið Sedov og er fjögurra mastra
skólaskip frá Tækniháskólanum í
Murmansk í Rússlandi. Um borð
eru 110 kadettar og fimmtíu
manna áhöfn.
Skipið er 118 metra langt og
fimmtán metra breitt en möstur
þess gnæfa 58 metra í loft upp,
mælt frá dekki þess. Frá sjólínu er
skipið því sem næst á við hæð
Hallgrímskirkju en turn hennar
er 74,5 metrar. Þegar öllum segl-
um skipsins er beitt í einu er sam-
anlagt flatarmál þeirra um fjórir
ferkílómetrar.
Skipið á sér langa sögu, en það
var byggt árið 1921 í Þýskalandi
og bar þá nafnið Magdalene
Vinnen. Þegar það var sjósett var
það stærsta seglskip heims og
þjónaði sem flutningaskip. Flutti
það aðallega kol og timbur á lengri
siglingaleiðum vegna stærðar
sinnar. Skipið hefur borið nafnið
Sedov frá árinu 1945 eftir að það
var afhent Rússum sem hluti af
stríðsskaðabótum Þjóðverja til
Sovétríkjanna sálugu. Frá 1945
hefur skipið aðallega verið notað
sem skólaskip en þó einnig til haf-
rannsókna og flutninga.
Sedov er að koma frá Wilhelms-
haven í Þýskalandi. Skipstjóri er
Viktor Misjenev en þeirri ábyrgð-
arstöðu hefur hann gegnt frá árinu
1993. „Ég kom til Íslands fyrir 23
árum og þá var ég undirforingi.
Það var mjög leiðinlegt veður. Ég
tek eftir því að það hefur verið
byggt mikið af húsum,“ segir hann
en vildi ekkert tjá sig um lífið um
borð. Til þess vísaði hann á einn
áhafnarmeðlima sinna: Þjóðverj-
ann Rudi. „Kadettarnir eru frá
mörgum háskólum í Rússlandi og
þeim er kennt allt sem þeir þurfa
að vita um aga, siglingafræði og
vélfræði.“ Rudi segir skipið sigla
milli hafna í sjö til átta mánuði á
ári og hafa vetrardvöl í Rússlandi
og Þýskalandi. Næsti viðkomu-
staður Sedov er Tromsö í Noregi.
Áhugasömum gefst kostur á að
skoða skipið frá klukkan 10 til 22 í
dag. svavar@frettabladid.is
Flatarmál seglanna
fjórir ferkílómetrar
Skólaskipið Sedov kom til hafnar í Reykjavík í gærmorgun. Skipið á sér merka
sögu og er eitt hið allra stærsta sinnar tegundar í heiminum. Möstur þess slaga
hátt í hæð Hallgrímskirkju. Um borð eru 110 kadettar og 50 manna áhöfn.
GLÆSILEGAR VISTARVERUR Rússneskur
uppruni skipstjórans fer ekki á milli mála
þegar komið er inn í klefa hans.
MISJENEV SKIPSTJÓRI Viktor Misjenev hefur verið skipstjóri á hinu glæsilega skólaskipi
Sedov síðan árið 1993. Hann kom síðast til Íslands fyrir 23 árum og er ekki frá því að
töluvert hafi bæst við af húsum síðan þá. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gífurlegur vatnavöxtur Eftir mikil
flóð og skriðuföll eru 100 Kóreumenn
taldir af eða týndir. Tæp 12.000 heimili
skemmdust og 9.000 fjölskyldur eru
á vonarvöl eftir gífurlegar rigningar og
vatnavöxt.
KÓREUSKAGINN
Ferðamenn í vanda Kalla þurfti til
björgunarsveit þegar ferðafólk lenti í
vandræðum við Langavatn í umdæmi
lögreglunnar í Borgarnesi. Þrennt
var í bílnum. Ferðafólkið, sem var af
erlendum uppruna, var á bílaleigubíl
sem þurfti að draga í burtu.
Keyrt á brúarhandrið Erlendir
ferðamenn lentu á brúarhandriði
þar sem þeir keyrðu eftir malarvegi á
Vatnsnesi. Fólkið slapp með nokkrar
skrámur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
KJARAMÁL Vegna greinar um að
áhöfnin á Sunnuberginu hafi hugs-
anlega verið svikin um löndunarfrí
vill Eggert B. Guðmundsson, for-
stjóri HB Granda, koma því á fram-
færi að til úrvinnslu sé hvort skip-
verjar skuli hafa löndunarfrí þegar
landað er á milli skipa við bryggju.
„Ef svo er myndu slíkar greiðslur
aðeins ná til þeirra meðlima sem
raunverulega vinna við löndun í
tímavinnu en ekki allrar áhafnar-
innar.“
Stjórn AFLs telur hafið yfir vafa
að greiða eigi fyrir landanir milli
skipa við bryggju. Reikningur sem
forsvarsmenn AFLs sendu fyrir hönd
skipverja er í endurskoðun. - hs
Reikningurinn endurskoðaður:
Ágreiningur
um greiðslur
Rafmagnslaust í Kópavogi Raf-
magnslaust varð í hluta Kópavogs seinni
partinn í gær vegna bilunar í háspennu-
streng við Smiðjuveg. Rafmagn komst á
að nýju innan við klukkustund síðar.
KÓPAVOGUR