Fréttablaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 55
FIMMTUDAGUR 20. júlí 2006 35
50-70% afsláttur
af öllum útsöluvörum
Nýtt kortatímabil
Blússur 1500kr. 4990kr.
Toppar 1500kr. 6990kr.
Gallabuxur 2000kr. 6990kr.
Hörbuxur 2000kr. 4990kr.
KRINGLUNNI
Veitingastaðurinn Þrír Frakkar kúrir á kyrrlátum
stað, neðarlega á Baldursgötunni, og hefur getið sér
slíkt frægðarorð að flestir ferðamenn sem koma til
Íslands líta á það sem jafnnauðsynlegt að heimsækja
Þrjá Frakka og að skoða Gullfoss og Geysi. Það eru
einkum hugkvæmni og matreiðslusnilld Úlfars
Eysteinssonar sem hafa aflað Þrem Frökkum slíkrar
frægðar. Hugkvæmnin lýsir sér í því að bjóða upp á
hrátt hvalkjöt sem er stranglega forboðinn ávöxtur í
flestum öðrum löndum, og matreiðslusnilld Úlfars
sést af því að hann átti ásamt öðrum góðum kokkum
stóran þátt í að kenna Íslendingum að fiskur er veislu-
kostur - meira að segja plokkfiskur er sælgæti.
Það er best að koma sér beint að efninu. Forréttur-
inn hrár hvalur með japanskri piparrót og soyasósu
(1.490 kr.), meyr eins og iðrandi syndari, er algjört
sælgæti. Sömuleiðis taðreyktur Skútustaðasilungur
(1.590 kr.). Hina fornlegu plastprjóna sem fylgdu
hvalnum mætti endurnýja.
Aðalréttir voru pönnusteiktur saltfiskur með furu-
hnetum, rúsínum og eplum (2.700) sem var mátulega
útvatnaður og vel matreiddur. (Hvítvínsglas með kost-
aði 800 kr). Smjörsteikt smálúða með humri og humar-
sósu (3.100) var ágæt út af fyrir sig, en setti talsvert
niður við að vera borin fram með forsoðnum vatnsósa
kartöflum sem ekki voru verðugir fylgifiskar hinnar
göfugu smálúðu.
Eftirréttir voru metnaðarlítill vanilluís (850) sem
gerði skyldu sína og boldangssneið af framagjarnri
skyrtertu (950) sem vakti meiri athygli. Einnig er
hægt að fá eftirrétt hússins „sviðið skyr“ (skyr bru-
lee), sem er skemmtilegt tilbrigði við hinn heims-
fræga „sviðna rjóma“ (creme brulee). Og kaffið var
gott!
Það var allt að því kraftaverk hversu stuttan tíma
þessi máltíð tók. Þjónustan var vingjarnleg og hröð án
þess að það væri asi á fólkinu. En það vildi ég óska að
öll veitingahús með snefil af metnaði sæju gestum
sínum fyrir alvöru munnþurrkum, því að þunnar
pappírsservíettur detta samstundis á gólfið við
minnstu hreyfingu - og þótt það sé í sjálfu sér ekki
mikið verk að teygja sig eftir servíettunni er maður
hikandi við að þurrka sér um munninn á einhverju
sem maður hirðir upp á gólfinu. Matargestir voru
flestir kátir mjög og svo háværir að glymjandin inni í
þessu litla rými var við hættumörk.
ATH: Í síðasta MEÐ HNÍF OG GAFFLI misritaðist
fyrirsögn við umfjöllun um Lækjarbrekku. Prentvillu-
púkinn skrifaði GAMALT. Höfundur skrifaði hins
vegar GAMALT OG GOTT.
Frægur hvalastaður
Með hníf og gaffli
> Þráinn Bertelsson
Þrír Frakkar Baldursgötu 14 101 Reykjavík
Máltíð fyrir tvö á Þrem Frökkum kostaði 12.180 kr.
Plúsarnir eru heimilislegt umhverfi, góð þjónusta og áhersla
og augljós kunnátta í meðferð fiskrétta - og hvalkjöts.
Mínusarnir eru skortur á metnaði til að gera góðar máltíðir
frábærar, samanber vatnsósa kartöflur og ódýrar pappírs-
servíettur.
Vegfarendur í miðborg Reykjavík-
ur hafa margir hverjir rekið augun
í svarthvít plaköt á dönsku með
fyrirsögnum á borð við: „Hvorfor
er Laugavegur en unik gade?“ og
„Hvad skal vi bruge Hljómskála-
garðurinn og Vatnsmýri til?“ sem
hanga nú víðsvegar um borgina.
Það er danski arkitektinn Tanja
Jordan sem á heiðurinn af þessum
veggspjöldum en hún býr nú í
Reykjavík gagngert til þess að
kanna viðhorf Íslendinga til mið-
borgarinnar. Tanja býður fólki að
taka þátt í umræðum á vefslóðinni
www.urbanaffair.blogspot.com en
þar mun hún einnig kynna eigin
hugmyndir sem nýst gætu borgar-
yfirvöldum við þróun miðborgar-
innar. Þetta uppátæki Tönju er
liður í verkefni á vegum NIFCA
(Nordic Institute for Contempor-
ary Art) sem kallast Social Per-
spectives on Architeture and
Design.
Fleiri arkitektar og hönnuðir
eru í öðrum borgum að vinna að
sama verkefni en taka þó ekki
sama pól í hæðina og Tanja. „Það
er svo margt að gerast í Reykjavík
um þessar mundir, breytingar sem
eru mjög spennandi en hafa einnig
mjög mikil áhrif á þróun borgar-
innar og munu breyta henni,“ segir
Tanja, sem vill sjá meiri umræðu
um þróun miðborgarinnar hvað
varðar Laugaveginn, Vatnsmýr-
ina, höfnina og Hljómskálagarð-
inn.
„Í Kaupmannahöfn eru venju-
lega mjög líflegar umræður í
kringum ný verkefni og þar er
venja að íbúar og arkitektar vinni
saman að þróun hugmynda,“
segir Tanja, sem er 36 ára gömul
og stundar sjálfstæðan rekstur í
Kaupmannahöfn. Nú þegar hafa
nokkrir sagt skoðun sína og komið
með hugmyndir að betri miðborg
á heimasíðunni en Tanja vonast
til þess að hún geti tekið hug-
myndirnar saman og komið áleið-
is til skipulags- og byggingar-
sviðs Reykjavíkur í lok
mánaðarins.
snaefridur@frettabladid.is
Glöggt er gests augað
HVERS VEGNA ER LAUGAVEGURINN EINSTÖK GATA? Danski arkitektinn Tanja Jordan hvetur
fólk til þess að svara þessari spurningu og öðrum á heimasíðunni www.urbanaffair.blog-
spot.com FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI